LeBron James er örvhentur en valdi að nota hægri Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. ágúst 2019 22:30 LeBron James með boltann í vinstri. Getty/John W. McDonough
LeBron James hefur verið einn allra besti körfuboltamaður heims undanfarin sextán ár eða síðan að hann kom inn í NBA-deildina sumarið 2003. Það vita færri af því að hann er ekki að spila körfubolta með „réttri“ hendi. LeBron James kom inn í NBA deildina sem stórstjarna enda hafði spilamennska hans með St. Vincent-St. Mary menntaskólanum gert hann að einum eftirsóttasta nýliða í körfuboltasögunni. Cleveland Cavaliers hafði heppnina með sér og fékk fyrsta valrétt. LeBron James skoraði 25 stig í fyrsta leik sínum í NBA og var seinna valinn nýliði ársins. Á sextán tímabilum sínum í NBA hefur LeBron James verið með 27,2 stig, 7,4 fráköst og 7,2 stoðsendingar að meðaltali í 1198 deildarleikjum. Hann hefur auk þess spilað 239 leiki í úrslitakeppni og er með 28,9 stig, 8,9 fráköst og 7,1 stoðsendingu að meðaltali í þeim. Það er vegna allrar þessarar velgengi á körfuboltavellinum í næstum því tvo áratugi sem nýjar fréttir af LeBron James koma svo mörgum á óvart. LeBron James hefur sagt frá því að hann sé í raun örvhentur en hafi þvingað sjálfan sig í því að nota frekar hægri hendina. Hann sjálfur veit ekki alveg hvernig það kom til. „Ég hef enga hugmynd um það hvernig ég varð rétthentur körfuboltamaður. Kannski var það vegna Michael Jordan, Penny Hardaway og fleiri leikmann sem ég horfði upp til þegar ég var að alast upp. Ég sá þessa leikmenn skjóta með hægri og ákvað því bara að nota hægri. Ég er samt örvhentur,“ sagði LeBron James en Basketball Forever síðan hefur þetta eftir honum eins og sjá má hér fyrir ofan. Það er því bara rétt hægt að ímynda sér hvað LeBron James hefði gert ef hann hefði notað „rétta“ hendi.
NBA Mest lesið HM-minning: Leyfði herbergisfélaganum að vera hetjan Fótbolti Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Er hægt að stöðva Víkingana? Sport Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Banna taktísku markvarðarleikhléin á HM Fótbolti Stóru liðin á eftir Kroupi Enski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Gerir lítið úr „slagsmálunum“ hjá Real Madrid Fótbolti Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Fleiri fréttir Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Sjá meira