Einn, tveir & elda nú í boði um allt land Einn og tveir & elda kynnir 3. september 2019 08:45 Nú er hægt að panta þjónustu Einn, tveir & elda um allt land.
Matarpakkafyrirtækið Einn, tveir & elda byrjar haustið af fullum krafti með spennandi nýjungum. Fyrirtækið hefur nú hafið dreifingu um allt land í samstarfi við Samskip, og eru því fyrsta matarpakkafyrirtækið sem dreifir vörum sínum á alla landshluta. „Frá því að við hófum starfsemi 2018 höfum við fundið fyrir þörf fyrir svona þjónustu á landsbyggðinni í sífellt auknum mæli og höfum við fengið ótal fyrirspurnir frá fólki úr ýmsum bæjarfélögum hvort að við ætlum ekki að fara að dreifa út á land líka. Við hófum fljótlega dreifingu á Akureyri sem hefur gengið mjög vel og því sáum við ekkert annað í stöðunni en auka dreifinguna enn frekar,“ segir Jenný Sif Ólafsdóttir, verkefnastjóri Einn tveir & elda. „Viðskiptavinir okkar eru fyrst og fremst að versla þægindin og fjölbreytnina sem felst í því að fá öll hráefni í nákvæmum skömmtum ásamt ítarlegum uppskriftum sem gerir eldamennskuna bæði auðvelda og skemmtilega.“Meira val fyrir viðskiptavininnTil viðbótar við þessa breytingu hefur vefsíðan einnig verið uppfærð útlitslega og úrval máltíða hefur aukist. „Fram að þessu hafa matarpakkar yfirleitt verið staðlaðir og innihaldið fyrirfram valda rétti sem ekki er hægt að breyta. Við viljum gefa viðskiptavininum meira vald til þess að setja saman sinn eigin pakka og stjórna dálítið förinni,“ segir Jenný. „Við vorum með tvo staðlaða pakka; LKL pakkann og Vegan pakkann, en í Klassíska pakkanum gat viðskiptavinurinn valið þrjá rétti af sex mögulegum. Nú höfum við uppfært kerfið okkar enn frekar, og bjóðum nú tólf rétti í Klassíska pakkanum. Þannig getur fólk stjórnað því enn frekar hvaða rétti það velur.“Áskriftarleiðin sífellt vinsælliViðskiptavinir geta skráð sig í áskrift og fá þá nýjan matarpakka sendan í hverri viku. Þetta er mjög þægileg lausn fyrir þá sem skortir tíma til að ákveða og skipuleggja matinn. „Við höfum uppfært áskriftarkerfið okkar þannig að viðskiptavinir í áskrift geta breytt pöntun sinni fyrir komandi viku, til dæmis ef fólk vill prófa annan pakka, á von á gestum og vill stækka pöntunina eða einfaldlega skipta út réttum. Að öðrum kosti ákveðum við réttina og tryggjum skemmtilega upplifun í eldhúsinu. Við bjóðum einnig ákveðinn ávinning af því að vera í áskrift, en þeir sem skrá sig í áskrift hjá okkur hér á höfuðborgarsvæðinu fá fría heimsendingu.“ Þessi kynning er unnin í samstarfi við Einn, tveir & elda.
Matur Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Lífið Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira