
Samgönguás og Borgarlína
En það var ekki bara það.
Hugmyndin byggði ekki bara á þessum starfrænu markmiðum, heldur stóð hún á traustri og sterkri skipulagshugmynd. Menn vildu breyta skipulagsstefnunni úr nánast stjórnlausri útþenslu þar sem aðalsamgöngutækið var einkabíllinn, í þétta og líflega borg. „Þróunar- og samgönguás“ var kynntur til sögunnar, sem átti að binda borgina saman í línulega sjálfbæra borg. Frábær hugmynd sem lengi hafði verið beðið eftir.
Ekki var komið nafn á hugmyndina, en henni lýst sem „strætisvögnum á sérakgreinum“ eða „léttlest í framtíðinni“. Samgönguásinn átti að liggja eftir endilangri borginni í miðjum svokölluðum „þróunarás“. Þessi hugmynd, sem síðar fékk hið ágæta nafn Borgarlína, átti að liggja frá Granda í vestri eftir borginni endilangri að Keldum í austri. Við Keldur bíður landsvæði sem er litlu minna en ríkislandið sem nú er undir Reykjavíkurflugvelli og hentar vel fyrir mjög fjölmenna vinnustaði. Svæðið gæti verið eins konar La Defense Reykjavíkur. Uppbygging þarna gæti minnkað þrýstinginn á miðborgina og verið andstæður póll við hana og skapað þannig traustan rekstrargrundvöll Borgarlínunnar og jafnað umferðarflæðið til austurs og vesturs.
Leiðin var um 9 kílómetra löng og átti að þræða sig í gegnum þéttasta svæði borgarinnar þar sem fyrirhugað var að þétta byggðina enn frekar.
Slíkur línulegur miðbær er í raun „vísbending um þróun sem þegar hefur átt sér stað“ eins og það er orðað í aðalskipulaginu. Línulegi miðbærinn er í samhljómi við þá viðurkenndu skoðun að eðlilegasta þróun borga gerist hægt og sígandi á löngum tíma. „Hugmyndin felst í því að viðurkenna í hugsun og verki, línulegan vöxt miðborgarinnar til austurs“ að Keldnalandi, svo aftur sé vitnað í aðalskipulagið.
Þessi áætlun var sérlega áhugaverð og raunhæf. Mörg okkar töldu að fljótlegt væri að hrinda hugmyndinni í framkvæmd. Hún var óumdeild í borgarstjórn og í umræðunni almennt. Hún virtist fjárhagslega yfirstíganleg og „win-win“ hugmynd. Hún var af þeirri stærðargráðu að borgin gæti staðið undir henni sjálf. Fólk hélt að þetta yrði komið í rekstur með einhverjum hætti, t.d. Grandi-Skeifa, innan 3-5 ára.
Nú þegar skipulagstímabilið er næstum hálfnað og aðeins 10 ár eftir sér maður að þessi frábæra hugmynd hefur verið leidd á nokkuð aðra slóð en upphaflega var ætlað. Hún hefur blásið út. Næstum í óyfirstíganlega stærð. Leiðin hefur lengst úr tæpum tíu kílómetrum upp í 54 kílómetra og þanist út um allt höfuðborgarsvæðið. Kostnaðaráætlanir eru gagnrýndar og rekstraráætlanir liggja ekki fyrir svo ég viti.
Verkefni sem átti að breyta Reykjavík í línulega þétta borg með öflugum almenningsflutningum þar sem umferðin er mest og byggðin þéttust fór í vinnslunni að dreifa sér á strjálbýlustu svæði höfuðborgarsvæðisins. Hún hefur ekki lengur þessi sterku tengsl við frábæra skipulagshugmynd AR2010-2030. Manni virðist samgönguás aðalskipulagsins vera að þróast í e.k. „Borgarlínu útþenslu“ alls höfuðborgarsvæðisins sem fæstir átta sig almennilega á. Þetta sveitarstjórnarmál er orðið svo stórt að það er komið á ríkisstjórnarplan og eina úrræðið til að fjármagna framkvæmdina er talið vera með veggjöldum.
Áætlunin er eðlilega umdeild og líklega of stór og dýr til þess að leggja á eina til tvær kynslóðir að framkvæma. En sem betur fer virðist stuðningur við Borgarlínuna fara vaxandi. Hlúa þarf að þessum stuðningi og auka hann með því að vanda til verka, einbeita sér að viðráðanlegum áföngum og fara ekki of geyst. Það þarf að taka minni skref og auka ekki byggingarheimildir fyrr en einstakir áfangar Borgarlínunnar er komnir í fullan rekstur. Ekki öfugt.
Nú í vikunni voru kynntar hugmyndir um fyrstu áfanga Borgarlínunnar og góðu heilli sýnir það sig að að þær eru mun lágstemmdari en áður hafa verið kynntar og í ágætu samræmi við það sem kom fram í AR2010-2030. Fyrsti áfanginn virðist samkvæmt þessu vera af viðráðanlegri stærð sem ætti að vera hægt að fjármagna án þess að leggja skatt á vegfarendur í formi vegtolla innan höfuðborgarsvæðisins eins og nú er stefnt að.
Hafa þarf í huga að Borgarlínan er engin patentlausn eða eina lausnin á umferðarvanda höfuðborgarsvæðisins, eins og oft heyrist. Það finnast margir aðrir kostir og það ber að nýta þá sem flesta, samtímis.
Skoðun

Menntamál eru ekki afgangsstærð
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

‘Vók’ er djók
Alexandra Briem skrifar

Er friður tálsýn eða verkefni?
Inga Daníelsdóttir skrifar

Kattahald
Jökull Jörgensen skrifar

Framtíðin er rafmögnuð
Jóhanna Hlín Auðunsdóttir skrifar

Ekki biðja um undanþágur heldur krefjast réttar samkvæmt EES-samningnum
Erna Bjarnadóttir skrifar

Þjóðarmorðið í blokkinni
Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar

Breiðholtið er frábært! Gerum betur í umfjöllun og orðræðu
Kristín Dögg Kristinsdóttir skrifar

Ég hataði rafíþróttir!
Þorvaldur Daníelsson skrifar

Því miður hefur lítið breyst
Áslaug Hulda Jónsdóttir skrifar

Versta sem Ísland gæti gert
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Eru græn svæði í útrýmingarhættu í Reykjavík?
Sigrún Ásta Einarsdóttir skrifar

Efla á forvarnir og setja börn í öndvegi með 5,7 milljarða niðurskurði
Grímur Atlason skrifar

„...ég lærði líka að nota gagnrýna hugsun“
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir skrifar

Risastór niðurskurður ríkistjórnarinnar er áfall fyrir foreldra og börn í landinu
Sigurður Sigurðsson skrifar

Látið okkur í friði
Vilhjálmur Árnason skrifar

Gefðu fimmu!
Ágúst Arnar Þráinsson skrifar

Allar hendur á dekk!
Oddný G. Harðardóttir skrifar

Engin sátt án sannmælis
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Að finna rétt veiðigjald...
Bolli Héðinsson skrifar

Hvað viltu að samskiptin á vinnustaðnum kosti?
Carmen Maja Valencia skrifar

Stórt inngrip í rekstur íþróttafélaga!
Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir skrifar

Börn voga sér inn í afbrotaheim fullorðinna eða er það öfugt?
Davíð Bergmann skrifar

Sósíalistaflokkurinn verður að snúast um meira en rassgatið á Gunnari Smára
Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Og hvað svo?
Eyrún Birna Davíðsdóttir skrifar

Óboðlegt svar um ótæka stjórnsýslu
Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Sannleikurinn í tengdamömmumálinu
Ólöf Björnsdóttir skrifar

Hann breytti öllu – og gerði það með háði
Jónas Sen skrifar

Ekki fylla höfnina af grjóti
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Lengri útivistartími barna
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar