Þar að auki gagnrýndi Trump fjölmiðla, menntunarstofnanir og samfélagsmiðla sérstaklega harðlega og sagði þá grafa undan lýðræði og málfrelsi. Þeir væru að ráðast á sögu, hefðir og gildi Bandaríkjanna. Þá sagði hann „varanlega stjórnmálastétt“ gera lítið úr vilja fólksins. Við það má bæta að Trump hlaut færri atkvæði en Hillary Clinton í forsetakosningunum 2016.
Repúblikanar í Bandaríkjunum hafa iðulega sakað samfélagsmiðla um að grafa undan röddum íhaldsmanna. Án þess þó að hafa getað sýnt fram á það með öðru en samsæriskenningum.
Í ræðu sinni sagði Trump einnig að Bandaríkin stæðu með LGBTQ-fólki um heim allan og hvatti þjóðir heimsins til að afglæpavæða samkynhneigð.
Sakaði Kína um þjófnað
Hann talaði hvað verst um Venesúela, Íran og Kína, auk þess að skammast yfir aðgerðarsinnum og frjálsum félagasamtökum og sakaði um að stuðla að mansali á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó, sem er alfarið innihaldslaus ásökun.Trump ráðlagði flótta- og farandfólki sem væri að íhuga að reyna að setjast að í Bandaríkjunum að gera það ekki. Þeim yrði ekki hleypt inn í Bandaríkin.
Margar ásakanir af þessu tagi hafa beinst gegn Kína á undanförnum árum.
Þá sagðist hann fylgjast náið með stöðu mála í Hong Kong, þar sem umfangsmikil mótmæli hafa staðið yfir undanfarnar vikur, og sagði að heimurinn allur byggist við því að Kínverjar stæðu við skuldbindingar sínar gagnvart Hong Kong.
Vill einangra Íran áfram
Trump sagði Íran styðja hryðjuverkasamtök víða um heim og að engar aðrar þjóðir ættu að styðja við „blóðþorsta“ Írana. Hann sagði koma til greina að styrkja viðskiptaþvinganir og refsiaðgerðir gegn Íran, breyti forsvarsmenn ríkisins ekki hegðun sinni.Hann stærði sig af því að hafa slitið Bandaríkin frá kjarnorkusamkomulaginu svokallað, sem ætlað var að koma í veg fyrir að Íranar kæmu upp kjarnorkuvopnum. Samkomulagið var gert á milli Íran, Bandaríkjanna, Kína, Rússlands, Bretlands, Frakklands og Þýskalands og var því ætlað að binda enda á kjarnorkuvopnaáætlun Íran. Í skiptum fyrir að þvingunum og öðrum refsiaðgerðum yrði aflétt samþykktu yfirvöld Íran að hætta við þróun kjarnorkuvopna og hleypa eftirlitsaðilum í landið.
Vill ekki leiðrétta sig
Á einum tímapunkti í ræðu sinni sagði Trump að Bandaríkjamenn „myndu aldrei skjóta, eða þreytast,“ á því að standa vörð um trúfrelsi. Þarna virðist sem að forsetinn hafi lesið orðið „tire“ vitlaust og sagði hann „fire“. Iðulega þegar Trump misles ræðutexta bætir hann við „eða“ og les rétta orðið, í stað þess að leiðrétta sig.Donald Trump's “America First” fixation was on stark display in his #UNGA19 speech, where he boasted of his accomplishments as president while emphasizing his nationalist ideology https://t.co/e6N08pyQDT pic.twitter.com/RXWyCVDatU
— POLITICO (@politico) September 24, 2019
Donald Trump's “America First” fixation was on stark display in his #UNGA19 speech, where he boasted of his accomplishments as president while emphasizing his nationalist ideology https://t.co/e6N08pyQDT pic.twitter.com/RXWyCVDatU
— POLITICO (@politico) September 24, 2019
US President Donald Trump tells the #UNGA that "no responsible government should subsidise Iran's blood lust" and that US sanctions on Iran "will be tightened" unless the country changes its "menacing behaviour"https://t.co/VcbZRHn14g pic.twitter.com/TOAAZqVj99
— BBC News (World) (@BBCWorld) September 24, 2019