Sækja titilinn í ljóð Jóhannesar úr Kötlum Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 2. október 2019 09:30 Ásta Soffía og Anders kynntust þegar þau voru í námi í Noregi.
Úr augum þér fiðrildi fljúga er yfirskrift íslensk-norskra tónleika í Sigurjónssafni á Laugarnestanga í kvöld. Flytjendur eru Ásta Soffía Þorgeirsdóttir á harmóníku og Anders Abelseth á saxófón. Titillinn er sóttur í ljóðið Fiðrildi eftir Jóhannes úr Kötlum. Fleiri ljóð, bæði eftir Þórarin Eldjárn og Gro Dahle, koma við sögu og líka norsk þjóðsaga. Tónlistin er ný af nálinni, hún er eftir Ásbjörgu Jónsdóttur og Birgit Djupedal en flytjendurnir tengja tónverkin saman með fríum spuna. Það er þar sem ljóðin blandast inn í, að sögn Ástu Soffíu. Hún segir verkefnið vera óð til íslenskrar og norskrar bókmenntalistar. „Oftast er texti sunginn við tónlist en við reynum að nota innblásturinn frá ljóðunum inn í tónlistina. En ég les ljóðin á mismunandi stöðum í flutningnum og þau eru birt í efnisskránni. Anders notar líka mikið röddina og syngur norska vögguvísu á einum stað,“ útskýrir hún. Eftir tónleikana í Sigurjónssafni verða einir í Hjarðarholti í Dölum.
Tónlist Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira