Núverandi starfsmaður Hvíta hússins ber vitni Samúel Karl Ólason skrifar 29. október 2019 07:43 Offurstinn verður fyrsti núverandi starfsmaður Hvíta hússins sem mun bera vitni vegna rannsóknar Demókrata. AP/Kevin Wolf
Offurstinn Alexander Vindman, sem situr í þjóðaröryggisráði Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, lýsti tvisvar sinnum yfir áhyggjum vegna viðleitni ríkisstjórnar Trump og utanaðkomandi aðila sem tengjast Trump til að fá yfirvöld Úkraínu til að rannsaka pólitískan andstæðing forsetans. Vindman mun bera vitni í dag vegna rannsóknar Demókrata í fulltrúadeild þingsins á mögulegum embættisbrotum Trump. Vindman mun, samkvæmt upphafsyfirlýsingu hans, segja að hann hlustaði á umdeilt símtal Trump og Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu, þann 25. júlí sem er miðpunktur rannsóknar Demókrata, og fór í kjölfarið til yfirlögmanns þjóðaröryggisráðsins og lýsti yfir áhyggjum sínum.AP fréttaveitan hefur komið höndum yfir yfirlýsinguna sem hann mun lesa í upphafi yfirheyrslunnar í dag. Þar ætlar Vindman að segja að honum hafi ekki þótt við hæfi að forsetinn hafi krafist þess að erlend ríkisstjórn ætti að rannsaka bandarískan ríkisborgara. Þar að auki hafði hann áhyggjur af því hvað slíkt myndi þýða fyrir stuðning Bandaríkjanna við Úkraínumenn.„Ég áttaði mig á því að ef Úkraínumenn framkvæmdu rannsókn gagnvart Biden-feðgunum og Burisma, yrði það túlkað sem pólitísk aðgerð og án efa myndi það leiða til þess að stuðningurinn gagnvart Úkraínu myndi tapa stuðningi beggja flokka Bandaríkjanna. Það myndi grafa undan þjóðaröryggi Bandaríkjanna,“ mun Vindman segja.Sagði málið ekki koma þjóðaröryggi við Áður hafði hann þó sömuleiðis lýst yfir áhyggjum sínum varðandi Úkraínu þegar Gordon Sondland, sendiherra Bandaríkjanna, gagnvart Evrópusambandinu, ítrekaði á fundi þjóðaröryggisráðsins þann 10. júlí hve mikilvægt það væri að Úkraínumenn rannsökuðu Biden og aðkomu yfirvalda Úkraínu að forsetakosningunum 2016. Vindman heldur því fram að hann hafi sagt Sondland að ummæli hans væru óviðeigandi og að krafan um að Úkraínumenn rannsökuðu Biden kæmu þjóðaröryggi og þar með þjóðaröryggisráðinu ekkert við. Offurstinn verður fyrsti núverandi starfsmaður Hvíta hússins sem mun bera vitni vegna rannsóknar Demókrata. Hann segist ekki vera uppljóstrarinn sem sendi formlega uppljóstrarakvörtun sem leiddi til þess að Demókratar hófu rannsókn sína og Vindman segist sömuleiðis ekki vita hver uppljóstrarinn er.Gordon Sondland, sendiherra Bandaríkjanna gagnvart Evrópusambandinu.AP/Virginia MayoTvær samsæriskenningar ráða för Viðleitni Trump-liða til að þvinga Úkraínu til að rannsaka Biden og kosningarnar snýr að tveimur samsæriskenningum. Trump og bandamenn hans hafa reynt að fá Úkraínumenn til að rannsaka þá samsæriskenningu að tölvuárásin gegn Landsnefnd Demókrataflokksins í aðdraganda forsetakosninganna 2016 hafi verið sviðsett til að koma sök á Rússa og vefþjónn Landsnefndarinnar sé í Úkraínu. Fyrirtækið Crowdstrike komst á snoðir um tölvuárásina og stöðvaði hana. Forsvarsmenn fyrirtækisins sögðu útsendara Rússlands hafa gert árásina og Alríkislögregla Bandaríkjanna, FBI, staðfesti það seinna meir. Markmið Trump með þessum ásökunum virðist vera að grafa undan Rússarannsókninni svokölluðu. Í símtali sínu við Zelensky vísaði Trump til vefþjónsins og bað hann um að komast til botns í málinu. Þá vilja Trump-liðar að Úkraínumenn rannsaki Joe Biden, sem þykir hvað líklegastur til að hljóta tilnefningu Demókrataflokksins fyrir forsetakosningarnar á næsta ári, og son hans Hunter Biden. Joe Biden, þáverandi varaforseti Bandaríkjanna, þrýsti á stjórnvöld Úkraínu um að koma Viktor Shokin, þáverandi ríkissaksóknara, úr embætti vegna þess að hann þótti ekki berjast gegn spillingu af nægilega miklum krafti og var jafnvel sjálfur sakaður um spillingu. Ríkisstjórnir nokkurra ríkja og forsvarsmenn stofnanna sem aðstoðuðu Úkraínu á þessum tíma með fjárveitingum og öðrum hætti vildu Shokin burt. Biden hafði farið til Úkraínu í desember 2015 og í ræðu á þingi landsins kallaði hann eftir brottrekstri Shokin. Honum var vikið úr starfi í mars 2016 með miklum meirihluta á þingi Úkraínu. Trump liðar hafa sakað Biden um að þvinga Shokin úr embætti með því markmiði að verja son sinn, Hunter Biden, sem þá var í stjórn úkraínska orkufyrirtækisins Burisma Holdings. Nokkrum árum áður hafði verið opnuð rannsókn á mögulegu fjárþvætti eiganda fyrirtækisins. Það eru engar vísbendingar um að Joe Biden, né Hunter, hafi gert nokkuð saknæmt og ekki er víst hvort að Hunter hafi yfir höfuð verið til rannsóknar. Biden var að framfylgja utanríkisstefnu Bandaríkjanna sem sendiboði Barack Obama, þáverandi forseta Bandaríkjanna, yfir margra mánaða skeið. Þá segja embættismenn í Úkraínu að rannsóknin gagnvart Burkima hafi verið stöðvuð af Shokin sjálfum, áður en Biden fór að kalla eftir brottrekstri hans. Framburður Vindman er ekki í samræmi við framburð Sondland sem hélt því fram við yfirheyrslu að enginn meðlimir þjóðaröryggisráðsins hafi lýst yfir áhyggjum vegna Úkraínumálsins. Sondland sagðist sömuleiðis ekki hafa gert sér grein fyrir því að einhver tenging væri á milli Biden og Burisma.
Bandaríkin Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum Ákæruferli þingsins gegn Trump Úkraína Tengdar fréttir Vissu að Trump hefði stöðvað aðstoð á meðan þrýstingur stóð yfir Upplýsingar sem New York Times hefur undir höndum grafa undan málsvörn Trump og bandamanna hans varðandi samskipti hans við Úkraínu á þessu ári. 23. október 2019 16:37 Sagði þingnefnd að Trump hefði gert „kaup kaups“ við Úkraínu Framburður sendiherra Bandaríkjanna gagnvart ESB virðist grafa undan málsvörn Trump forseta um samskipti hans við úkraínsk stjórnvöld. 27. október 2019 17:48 Greiða atkvæði í þinginu um rannsókn Demókrata Greidd verða atkvæði um rannsókn Demókrata á hugsanlegum embættisbrotum Donald Trump í samskiptum sínum við úkraínsk stjórnvöld fyrr á árinu í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í vikunni. 28. október 2019 21:56 Skoðun á uppruna Rússarannsóknarinnar er nú sakamálarannsókn Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur hafið sakamálarannsókn á ástæðum þess Rússarannsóknin svokallaða var hafin á sínum tíma. 25. október 2019 09:03 Trump bað þingmenn um að verja sig af hörku og þeir hlýddu Þingmenn Repúblikanaflokksins ollu usla í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í gær þegar þeir ruddu sér leið inn í fundarherbergi þar sem lokaður nefndarfundur fór fram. 24. október 2019 12:00 Mest lesið Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir Innlent Íslendingar gerðu það sem tröllunum mistókst Innlent Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Innlent „Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Innlent Á sjötta hundrað lentu í vandræðum Innlent Töluverður viðbúnaður vegna tilkynningar um kajak Innlent Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Erlent Reykur sást á flugvallarsvæðinu Innlent Framtíð Framsóknar, afbrotatölfræði og vankantar á tryggingamarkaði Innlent Kerfið er vandamálið ef það styður ekki nýsköpun Innlent Fleiri fréttir Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Íranir mótmæla á ný Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Sjá meira
Vissu að Trump hefði stöðvað aðstoð á meðan þrýstingur stóð yfir Upplýsingar sem New York Times hefur undir höndum grafa undan málsvörn Trump og bandamanna hans varðandi samskipti hans við Úkraínu á þessu ári. 23. október 2019 16:37
Sagði þingnefnd að Trump hefði gert „kaup kaups“ við Úkraínu Framburður sendiherra Bandaríkjanna gagnvart ESB virðist grafa undan málsvörn Trump forseta um samskipti hans við úkraínsk stjórnvöld. 27. október 2019 17:48
Greiða atkvæði í þinginu um rannsókn Demókrata Greidd verða atkvæði um rannsókn Demókrata á hugsanlegum embættisbrotum Donald Trump í samskiptum sínum við úkraínsk stjórnvöld fyrr á árinu í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í vikunni. 28. október 2019 21:56
Skoðun á uppruna Rússarannsóknarinnar er nú sakamálarannsókn Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur hafið sakamálarannsókn á ástæðum þess Rússarannsóknin svokallaða var hafin á sínum tíma. 25. október 2019 09:03
Trump bað þingmenn um að verja sig af hörku og þeir hlýddu Þingmenn Repúblikanaflokksins ollu usla í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í gær þegar þeir ruddu sér leið inn í fundarherbergi þar sem lokaður nefndarfundur fór fram. 24. október 2019 12:00