Tveir Þórsarar í liði umferðarinnar í Þýskalandi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. október 2019 20:00 Oddur er næstmarkahæsti leikmaður Balingen-Weilstetten á tímabilinu. vísir/getty
Sveitungarnir Oddur Gretarsson og Arnór Þór Gunnarsson eru í liði 10. umferðar í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Hornamennirnir knáu, sem koma báðir úr Þór á Akureyri, léku afar vel fyrir lið sín, Balingen-Weilstetten og Bergischer, í síðustu umferð. Oddur skoraði átta mörk úr níu skotum þegar nýliðar Balingen lögðu Füchse Berlin að velli, 31-30. Fimm af mörkum Odds komu af vítalínunni. Hann var markahæstur í liði Balingen ásamt Filip Taleski. Arnór skoraði sex mörk úr jafn mörgum skotum þegar Bergischer gerði jafntefli við Göppingen, 25-25. Hann var markahæstur leikmanna Bergischer í leiknum. Oddur er næstmarkahæsti leikmaður Balingen í þýsku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Hann hefur skorað 34 mörk, fjórum mörkum minna en Vladan Lipovina. Balingen er í 14. sæti deildarinnar með sex stig, einu sæti neðar en Bergischer sem er með átta stig. Arnór er næstmarkahæstur hjá Bergischer í vetur með 45 mörk. Hann hefur skorað þremur mörkum minna en Jeffrey Boomhouwer. Á síðasta tímabili var Arnór markahæsti leikmaður Bergischer og sjöundi markahæsti leikmaður þýsku deildarinnar. Lið 10. umferðar þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta má sjá hér fyrir neðan.
Þýski handboltinn Tengdar fréttir Oddur markahæstur er Balingen vann Oddur Grétarsson var markahæstur í liði Balingen sem vann eins marks sigur á Füchse Berlin í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. 20. október 2019 15:44 Arnór markahæstur í jafntefli Arnór Þór Gunnarsson var markahæstur í liði Bergischer sem gerði jafntefli við Göppingen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. 20. október 2019 13:34 Mest lesið Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Íslenski boltinn Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Körfubolti Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira
Oddur markahæstur er Balingen vann Oddur Grétarsson var markahæstur í liði Balingen sem vann eins marks sigur á Füchse Berlin í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. 20. október 2019 15:44
Arnór markahæstur í jafntefli Arnór Þór Gunnarsson var markahæstur í liði Bergischer sem gerði jafntefli við Göppingen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. 20. október 2019 13:34