Herdís hættir sem forstjóri Reykjalundar Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 8. nóvember 2019 17:45 Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri Reykjalundar hefur sagt upp störfum. Vísir/Sigurjón
Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri Reykjalundar hefur sagt upp störfum. Í bréfi sem hún sendi til starfsfólks Reykjalundar segir að hennar persóna hafi að ósekju verið dregin inn í deilur sem eigi sér djúpar rætur og forsögu sem henni sé óviðkomandi. Herdís segist hafa gengið inn í erfiðar aðstæður í ágúst þegar stjórn SÍBS, réð hana til starfa. Hún telur að sem forstjóri hafi hún komið því til leiðar sem hún taldi nauðsynleg næstu skref í flóknum aðstæðum. Hún óskar Reykjalundi alls hins besta og vonar að starfsfólki og framtíðarstjórnendum Reykjalundar gangi vel að vinna úr þeim áföllum sem dunið hafa yfir. Mikillar óánægju hefur gætt á meðal starfsfólks Reykjalundar eftir að skipuritsbreytingar voru kynntar og stjórnendum sagt upp störfum. Bréf Herdísar til starfsfólks Reykjalundar í heild sinni:Í ágústmánuði bauð þáverandi forstjóri Reykjalundar mér starf framkvæmdastjóra endurhæfingarsviðs, að afloknu faglegu ráðningarferli. Ég þáði boðið og réði mig til starfa á Reykjalundi, í góðri trú og af einlægum áhuga. Hlakkaði mikið til að taka þátt í því góða starfi sem Reykjalundur er þekktur fyrir og bjóða fram færni mína og krafta fyrir starfsemina.Strax á fyrsta degi í starfi varð mér ljóst að framundan væru miklir óvissutímar. Forstjóra Reykjalundar hafði verið sagt upp störfum fáeinum klukkustundum eftir að ég ritaði undir ráðningarsamning og nokkrum dögum síðar framkvæmdastjóra lækninga. Staðan kom mér mjög á óvart, en síðar kom á daginn að við ráðningu mína hafði ég ekki verið upplýst um afar mikilvæg atriði sem vörðuðu starfsemina og innri samskipti á vinnustaðnum. Atburðarásin frá uppsögn fyrrum forstjóra hefur dregið upp á yfirborðið mikla ólgu sem hefur kraumað undir yfirborðinu til lengri tíma, eins og öllum er löngu orðið ljóst. Við þær aðstæður tók ég umbeðin að mér starf forstjóra tímabundið. Tvö skilyrði setti ég fyrir þeirri tímabundnu skipan minni í starf forstjóra; 1) að starf forstjóra yrði auglýst og hann ráðinn í faglegu ferli og 2) að skipuð yrði starfsstjórn yfir Reykjalund með það að markmiði að endurskipuleggja stjórnfyrirkomulag, skipurit og rekstrarform á meðan unnið væri að varanlegri lausn fyrir vinnustaðinn. Hvoru tveggja er nú í góðum farvegi; ráðning forstjóra er í gangi og starfsstjórn Reykjalundar verður skipuð.Við þau tímamót tel ég rétt að staldra við og endurskoða mína aðkomu að Reykjalundi. Aðstæður voru og eru nú allt aðrar en mér voru kynntar í lok sumars, þegar ég var ráðin til starfa sem framkvæmdastjóri og síðar tímabundið sem forstjóri. Mín persóna hefur að ósekju dregist inn í deilur sem eiga sér djúpar rætur og forsögu sem er mér með öllu óviðkomandi. Ég gekk inn í mjög erfiðar aðstæður, að beiðni stjórnar SÍBS, og hef sem forstjóri komið því til leiðar sem ég taldi nauðsynleg næstu skref í flóknum aðstæðum. Ég lít svo á að ég hafi lokið þeim verkefnum sem ég var kölluð til tímabundið sem forstjóri og þau tvö skilyrði sem ég tel nauðsynleg verkefni fram á við séu nú komin í höfn. Í ljósi þess hef ég ákveðið að hætta störfum á Reykjalundi, frá því tímamarki sem starfstjórn tekur til starfa í næstu viku.Ég óska Reykjalundi alls hins besta og vona af öllu hjarta, að starfsfólki og framtíðarstjórnendum Reykjalundar gangi vel að vinna úr þeim áföllum sem dunið hafa yfir, að endurhæfa sjálfan vinnustaðinn, bæta lífsgæði og hamingju þeirra sem hér starfa. Aðeins þannig getur Reykjalundur sinnt sínu hlutverki, skjólstæðingum til heilla.Herdís Gunnarsdóttir
Ólga á Reykjalundi Vistaskipti Tengdar fréttir Sjúkraþjálfunardeild Reykjalundar lýsir yfir þungum áhyggjum Nauðsynlegt sé að heilbrigðisyfirvöld bregðist við og að ráðningar nýrra stjórnenda verði endurskoðaðar. 1. nóvember 2019 12:51 Vilja að framkvæmdastjórn Reykjalundar víki og skipuð verði starfsstjórn Sjúkratryggingar Íslands og Landlæknir ætla á næstunni að meta hvort Reykjalundur geti uppfyllt núverandi þjónustusamning. Yfirlæknir taugasviðs Reykjalundar segir að það verði ómöglegt þegar allar uppsagnir lækna hafa tekið gildi. 1. nóvember 2019 19:00 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Sjá meira
Sjúkraþjálfunardeild Reykjalundar lýsir yfir þungum áhyggjum Nauðsynlegt sé að heilbrigðisyfirvöld bregðist við og að ráðningar nýrra stjórnenda verði endurskoðaðar. 1. nóvember 2019 12:51
Vilja að framkvæmdastjórn Reykjalundar víki og skipuð verði starfsstjórn Sjúkratryggingar Íslands og Landlæknir ætla á næstunni að meta hvort Reykjalundur geti uppfyllt núverandi þjónustusamning. Yfirlæknir taugasviðs Reykjalundar segir að það verði ómöglegt þegar allar uppsagnir lækna hafa tekið gildi. 1. nóvember 2019 19:00