Atla Rafni voru dæmdar 5,5 milljónir króna í skaða- og miskabætur fyrir ólögmæta uppsögn. Þórdís Elva er afar ósátt við niðurstöðuna og setur upphæð bótanna sem Atla eru dæmdar í samhengi við bætur í kynferðisbrotamálum. Steinunn Ólína fagnar aftur á móti dómnum og segir Þórdísi Elvu sjálfskipaðan leiðtoga fórnarlamba.
Mjög snúið mál
Pistlaskrif þeirra Þórdísar Elvu og Steinunnar Ólínu hafa vakið mikla athygli. Ekki síst þar sem leikarastéttin er að einhverju leyti klofin í málinu, það þykir afar viðkvæmt og afar fáir tjáð sig um það opinberlega.Annars vegar er um að ræða einn vinsælasta leikara þjóðarinnar undanfarin áratug og hins vegar leikhússtjóra í öðru af tveimur stóru leikhúsum landsins. Leikhúslífið á Íslandi er eins og svo margt annað. Þar þekkja allir alla, fjölmargir vinir beggja og fleiri aðila og erfitt að styðja þétt við bak annars frekar en hins.
Eða eins og Birna Hafstein, formaður Félags íslenskra leikara, sagði í viðtali við Vísi í gær:
„Ég hef ekkert meiri upplýsingar en hver annar varðandi þetta, þannig lagað. En get sagt bæði sem formaður og persónulega að ég finn til með öllum hlutaðeigandi. Þetta er lítið samfélag sem við búum í og þarna horfum við til þess að meintir gerendur og þolendur eru á sama vinnustað í erfiðum málum sem upp koma; þetta er mjög snúið.“

Uppsögn rétt fyrir jólasýningu
Málið kom upp fyrir jólin 2017 skömmu fyrir jólasýningu Borgarleikhússins þar sem Atli Rafn var í lykilhlutverki. Sýningunni var frestað á meðan annar leikari var þjálfaður upp í hlutverkið sem Atli Rafn átti að sinna. Brottreksturinn vakti mikla athygli.Héraðsdómur taldi að með ákvörðun sinni um að víkja Atla Rafni frá störfum og fresta frumsýningu Medeu með tilkynningu í fjölmiðlum hafi Kristín og Leikfélag Reykjavíkur vegið að æru hans og persónu. Ákvörðunin hafi haft mikil áhrif á Atla Rafn, og kunni að hafa áhrif á líf hans og störf til lengri tíma litið.
Kristín og Leikfélag Reykjavíkur hafa áfrýjað málinu til Landsréttar.

„Ég þekki leikkonur sem voru neyddar til að leika í gamansýningum með dáið barn í maganum og brostið hjarta, og hættunni á að það færi að sturtublæða í miðri sýningu, en þær fengu ekki frí til að syrgja og láta skafa út fóstrið,“ segir Þórdís Elva.
„Ég þekki leikkonur sem hafa verið reknar úr hlutverkum sínum því þær fitnuðu, því röddin á þeim fór í taugarnar á einhverjum, eða 'af því bara'. Ég þekki leikkonur sem voru látnar leika á sviði við hlið manna sem káfuðu á kynfærum þeirra, jafnvel eftir að þær sögðu frá því. Ég þekki leikkonur sem voru reknar rétt fyrir frumsýningu því þær voru 'of vel undirbúnar' og það ógnaði egói leikstjórans.“
Réttur þeirra var, að því er virtist, enginn segir Þórdís Elva.
Hún bætir við í athugasemd hvert hlutverk hennar hafi verið í #metoo hreyfingunni síðla árs 2017.
„Fyrir tveimur árum völdu íslenskar sviðslistakonur mig til að vera fulltrúi þeirra í metoo byltingunni, söfnuðu fyrir flugmiða handa mér og flugu mér heim til Íslands (en ég var stödd í Svíþjóð) til að sinna því mikilvæga verkefni. Ég hlaut líka það hlutverk að taka við frásögnum þeirra af ofbeldi, valdníðslu og áreitni innan úr bransanum. Ég fékk að vita margt sem ég mun aldrei gleyma og þetta var eitt erfiðasta hlutskipti sem ég hef fengið, en jafnframt eitt það veigamesta.“
Hærri bætur en nokkur nauðgunarþoli hefur séð
„Svo kemst stjórnandi að því að fjórar starfskonur eru hræddar við einn og sama leikarann, því í sjö mismunandi tilvikum hafi konum fundist mörkum sínum vera misboðið af hans hálfu, að þeirra sögn. Maðurinn er látinn fara,“ segir Þórdís um uppsögn Atla Rafn sem aðeins hafði starfað í nokkra mánuði í Borgarleikhúsinu þegar málið kom upp.Þórdís sýpur hveljur yfir skaðabótunum og miskabótunum sem Atla Rafni voru dæmdar. Fjórar milljónir í skaðabætur og 1,5 milljónir í miskabætur.
„Nú eru honum dæmdar hærri bætur en nokkur nauðgunarbrotaþoli í sögu landsins hefur fengið. Hærri en 17 ára stúlkan sem var haldið fanginni og nauðgað heila helgi. Hærri en allir hópnauðgunarþolendur Íslands, líka þær sem smituðust af ólæknandi sjúkdómi við ofbeldið.
Hærri en allir sem hafa verið misnotaðir og sviptir æsku sinni. Burtséð frá sekt eða sakleysi einstakra manna er þessi heildarmynd rammskökk.Fleiri hafa tekið undir með Þórdísi Elvu hvað bótagreiðslurnar varðar. Réttargæslumenn í kynferðisbrotamálum skrifuðu grein á Vísi í vikunni um sama efni.

Rétturinn til að þagga kynferðisofbeldi í hel
„Ég hlaut bágt fyrir þegar ég lagði til að þær konur sem borið hafa Atla sökum í einkaspjalli við leikhússtjórann kærðu hann ef hann hefði brotið af sér. Ég er enn þeirrar skoðunar og jafnframt þeirrar skoðunar að þær geri öllum fórnarlömbum kynferðisofbeldis óleik með því að gera það ekki. Hver er þessi réttur þeirra til að þegja? Er það rétturinn til að þagga niður í sjálfum sér? Fyrst heimtum við að heimurinn hætti að þagga niður kynferðisofbeldi en nú viljum við hafa réttinn til að þagga sjálfar kynferðisofbeldi í hel og réttinn til að bera menn sökum án þess að þurfa að standa fyrir máli okkar? Það er ofbeldi af verstu skúffu eins og dómsúrskurður í máli Atla ber vitni um.“
Víkur hún svo að fyrrnefndum pistli Þórdísar Elvu og umræðu hennar um samanburð á bótagreiðslum. Það sé þvælulist til að skapa ringulreið.
Efast um að peningar bæti skaða af kynferðisofbeldi
„Hvort Atli er kynferðisbrotamaður veit enginn með vissu nema meint fórnarlömb hans sem hafa valið að þagga meinta glæpi hans í hel en Þórdís Elva sem skeytir engu um aðalatriði þegar kemur að eigin frama sem leiðtoga fórnarlamba ofbeldis hrópar á Facebook.“Steinunn Ólína segir hárrétt að miskabætur til þolenda kynferðisofbeldis séu skelfilega lágar en henni sé þó til efs að peningar bæti slíkan skaða.
„Að leggja slíka ofuráherslu á það er til marks um skilningsleysi Þórdísar Elvu á aðstæðum þeirra sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi.“

Hrein andstyggð á drottnunargirni
„Þórdís Elva var áður sjálfskipaður brautryðjandi á Íslandi í afhjúpun ofbeldismanna að amerískri fyrirmynd og hvatti fórnarlömb til þess að stíga fram og segja frá í hópi sviðslistakvenna. Hún hafði gert slíkt sjálf og bætti um betur, því hún markaðssetti ofbeldi sem hún sagðist hafa orðið fyrir með eftirminnilegum hætti í bók, með fyrirlestrum þar sem henni fylgdi meintur ofbeldismaður um allar álfur og gekkst við því að kalla sig nauðgara til að styðja rétt hennar til að segja frá og mæta ofbeldismanni sínum.“Verkið vakti mikla athygli bæði hér á landi og erlendis og má sjá neðst í greininni.
Það skal viðurkennt að ég hef hreina andstyggð á þeirri drottnunargirni og hefndarfýsn sem birtist í þessu niðurlægjandi og sjálfsupphefjandi verki Þórdísar Elvusegir Steinunn Ólína.
Í máli Atla Rafns kveði við nýjan tón hjá Þórdísi.
„Nú styður hún rétt fórnarlamba til að þegja og leggur ofuráherslu á að peningagreiðslum til ofbeldisþola sé ábótavant. Upprætum við ofbeldi með því að ríkið greiði hærri bætur til þolenda? Nei. Mun kynferðisofbeldi afleggjast með öllu eigi fólk á hættu að verða fyrir fjártjóni vegna brota sinna? Nei. Bætum við líðan ofbeldisfórnarlamba með peningum? Nei. Greiðslur, sama hversu háar, til fórnarlamba ofbeldis eru aðeins viðurkenning á því að á viðkomandi hafi verið brotið en bætir engan skaða. Engan. Svo villuljós Þórdísar Elvu er engum til gagns og allra síst þolendum ofbeldis.“