Stærsta tap Golden State í 46 ár: „Sturtaðu þessu niður í klósettið“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. nóvember 2019 12:30 Eric Paschall var stigahæstur í liði Golden State gegn Dallas með 22 stig. vísir/getty
Golden State Warriors tapaði með 48 stiga mun fyrir Dallas Mavericks, 142-94, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Þetta er stærsta tap Golden State síðan 1973, eða í 46 ár. Golden State hefur verið með besta liðið í NBA undanfarin fimm ár en nú er öldin önnur. Allir bestu leikmenn Golden State eru meiddir og liðið er með versta árangurinn í NBA (þrjá sigra og 13 töp). Luka Doncic, Slóveninn magnaði í liði Dallas, var með þrefalda tvennu annan leikinn í röð. Hann skoraði 35 stig, tók tíu fráköst og gaf ellefu stoðsendingar. Í 1. leikhluta skoraði Doncic fleiri stig (22) en allt Golden State-liðið (16). Hann skoraði 33 af 35 stigum sínum í fyrri hálfleik. Doncic spilaði aðeins 25 mínútur í leiknum en Rick Carlisle, þjálfari Dallas, gat leyft öllum að spila þar sem úrslitin voru snemma ráðin. Dallas jafnaði félagsmet með því að skora 22 þriggja stiga körfur í leiknum. Golden State var aðeins með átta leikmenn á skýrslu í leiknum í nótt, sem er lágmark í NBA, og enginn þeirra lék með liðinu á síðasta tímabili. „Sturtaðu þessu niður í klósettið. Við verðum bara að halda áfram. Við getum ekkert tekið út úr leik sem þessum,“ sagði Steve Kerr, þjálfari Golden State, eftir leikinn í nótt. Tapið var það stærsta hjá Golden State síðan liðið tapaði með 56 stigum, 70-126, fyrir Los Angeles Lakers í úrslitum Vesturdeildarinnar 21. apríl 1973.
NBA Tengdar fréttir Clippers lagði Celtics eftir framlengdan leik Dramatík í NBA körfuboltanum í nótt. 21. nóvember 2019 07:30 Mest lesið HM-minning: Leyfði herbergisfélaganum að vera hetjan Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Er hægt að stöðva Víkingana? Sport Stóru liðin á eftir Kroupi Enski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Banna taktísku markvarðarleikhléin á HM Fótbolti Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Gerir lítið úr „slagsmálunum“ hjá Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Sjá meira
Clippers lagði Celtics eftir framlengdan leik Dramatík í NBA körfuboltanum í nótt. 21. nóvember 2019 07:30