Ekkert kósí eða jólalegt við afleiðingar veðurofsans Jakob Bjarnar skrifar 13. desember 2019 13:45 Grein Unnar Valborgar um stöðuna á Norð-Vesturlandi eftir óveðrið hefur vakið mikla athygli.
Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, segir ekkert kósí, jólalegt eða huggulegt við veðurofsann sem gekk yfir landið í vikunni. Hún skrifaði grein sem hún birti á Facebook-síðu sinni sem hefur vakið mikla athygli. Þar sem hún fer yfir málið en í samtali við Vísi segir hún kveikjuna að pistli sínum þá að hún hafi oft rekið sig á athugasemdir við færslur þar sem fólk var að lýsa veðurofsanum og rafmagnsleysinu þessa efnis; huggulegt, kósí og jólalegt. „Sem það er náttúrlega alls ekki,“ segir Unnur Valborg en fólk fyrir norðan hefur til að mynda átt við rafmagnsleysi að stríða með skelfilegum afleiðingum. Hún segir spurð það vissulega vera svo að einhverrar firringar gæti, að það séu að rofna tengsl sem fólk á höfuðborgarsvæðinu hafi við landsbyggðina. „Ég vil engu að síður taka það skýrt fram að ég vil alls ekki vera að etja höfuðborginni og dreifbýlinu saman. Ég held að við ættum að vinna saman. Við þurfum á hvoru öðru að halda. En, það eru vissulega ákveðin atriði sem fólk hefur ekki skilning á.“ Pistil Unnar Valborgar má sjá í heild sinni hér neðar en honum hefur nú þegar verið deilt víða um netið. Þar fer hún yfir nokkur atriði sem sannarlega eru ekkert sérstaklega hugguleg. Frá Sauðárkróki.vísir/jói k Staðan á Norðurlandi vestra Ég held að fólk geri sér enga grein fyrir áhrifum veðursins undanfarna daga á líf fólks hér á Norðurlandi vestra (og víðar á landsbyggðinni). Ég og mín fjölskylda getum ekki yfir neinu kvartað þó rafmagnslaust hafi verið í hátt í 40 klukkustundir. Við höfðum hita á húsinu, áttum batteríisútvarp, ég hafði hlaðið 2 hleðslubanka svo ég hafði hlaðinn síma allan tímann, nóg var af kertum, 2 luktir og nóg af rafhlöðum. Í húsinu er varmaskiptir svo ég gat látið heitt vatnið renna beint í kakóbollana svo það kom ekki að sök að við vorum ekki með prímus. Við áttum nægan mat þó flestar máltíðir væru kaldar en reyndar er ótrúlegt hvað hægt er að hita mikið með heitu vatni einu. Skóflunni hafði ég stungið inn í forstofu sem kom sér vel því ítrekað þurftum við að moka okkur út. Það kann að vera að einhverjum þyki þetta kósí og vissulega eru myndir sem ég hef birt á samfélagsmiðlum jólalegar að sjá. En það er fátt kósí og jólalegt við eftirfarandi (samantekið úr stöðufærslum vina á fb - tekið upp orðrétt – vona að viðkomandi fbvinir fyrirgefi að þetta sé tekið upp án leyfis): vísir/jói k - Enn rafmagnslaust. Hiti inni 7,4°C. Símasamband en internet kemur og fer. - Búin að hella niður hátt í 1000 lítrum sem voru í mjólkurtanknum. Það má ekki selja mjólk sem lendir í kælirofi. - Fordinn stendur sig með prýði. Hann er notaður til að hlaða símana og er eina farartækið á bænum sem ekki er lokað inni eða týnt í skafli. - Kýrnar fá bara vatn og hey, ekkert kjarnfóður og ekkert mjólkað…Við þrífum básana ekstra vel og ekstra mikið af sagi í básana. Þær voru bara ekkert pirraðar við mig áðan. Sögðu bara að við yrðum að sætta okkur við að þær færu ekki í fulla nyt aftur eftir svona meðferð. - Við erum komin í á annan sólarhring af rafmagnsleysi - og af því að húsin okkar eru hituð með rafmagni; þá er ástandið orðið vægast sagt kuldalegt. Það er úlpuveður inni, það gengur hratt á kerta- og batterísbirgðir heimilisins. - [bóndinn] hefur verið að dunda sér við að gefa og sæða í svarta myrkri til þess að sauðburðurinn okkar fari ekki í fokk. Lengi vel var rafmagnslaust á Sauðárkróki.vísir/jói k - Í gær fór ég að vitja að hrossum í vonsku veðri kom að 10 hrossum í snjó og var byrjað að fenna yfir þau náði að bjarga þeim úr snjónum. Í morgun fór ég aftur, sá í snoppuna á henni Freyju. Fórum að moka henni upp, henni var náð með góðra hjálp nágranna. Freyja er núna inn í hesthúsi og vona ég svo innilega að hún nái sér. ♥️ maður vonar að enginn þurfi að lenda í þessu því þó maður sé með breitt bak þá er stutt í tárin. - Það var svo sannarlega áskorun að vinna við þessar aðstæður, sinna fólkinu okkar [á heilbrigðisstofnuninni] með höfuðljós og með nokkkur batterískerti. - Hér hefur t.d. verið rafmagnslaust í tæpa 51 klukkustund! - það verður kalt... En við förum undir sæng og höldum okkur þar. - Komið á þriðja sólarhring í stöðugu rafmagnsleysi á mínu heimili. - Rafmagnslaust síðan 14 í gær, hitaveitulaust síðan í nótt og sömuleiðis símasambandslaust. - Sjúkrahúsið á Hvammstanga þar sem mamma dvelur, hefur nú verið rafmagnslaust síðan um miðjan dag í gær, sjúkrahúsið er án vararafstöðvar. - þurfti í óveðrinu að finna til lyf handa sjúklingum í svartamyrkri með vasaljós á enninu. Bærinn rafmagnslaus og ekkert varaafl. - Fékk loksins langþráð símtal að heiman þegar pabbi og [bróðir] náðu að brjótast út á þjóðveg og ná daufu símasambandi loksins þegar hríðinni slotaði. Allt í lagi með bæði fólk og eignir en ennþá rafmagnslaust og kalt orðið í húsum. Ef ekki kemst rafmagn á á morgun gætu leiðslur farið að gefa eftir í kuldanum framundan. - Hann hætti lífi sínu til að reyna að koma rafmagni á svæðið í þessu bandvitlausa veðri sem hefur verið síðustu daga. snjóbíllinn sem hann var á valt á leiðinni og þurfti hann að ganga á næsta bæ í aftakaveðri til að komast í skjól, svo hélt hann áfram á endastöð sem tók í allt 9 klst (tekur venjulega 30 mín) einnig var símasambandslaust svo ekki var hægt að ná í hann og vissum við fjölskyldan ekkert hvar hann var niður kominn í allt of langan tíma! Hann stóð svo rafmagnsvaktina í bandvitlausu veðri í einn og hálfan sólarhring. - Bjargað af ísköldum bænum ásamt tveimur ungum dætrum (af visir.is) Ein kunningjakona mín var ein heima, án hita, en náði að hita sér vatn með teljósum… Það væri hægt að halda áfram. vísir/jói k Það er árið 2019! Eins og sjá má þá hefur ástandið hér verið graf alvarlegt og sér ekki fyrir endan á því enn. Innviðir hér og víða annarsstaðar á landinu eru augljóslega ekki í lagi. Við því verða ráðamenn að bregðast – og það strax. Sveitarstjórnir tveggja sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa ályktað um stöðuna og eins og gefur að skilja er þungt hljóð í sveitarstjórnarmönnum (tenglar í ályktanir þeirra í athugasemd við færsluna). Það er því ekkert kósí og jólalegt við þetta óveður og eftirköst þess. Það er ekki bara kalt á þeim bæjum sem eru búnir að vera rafmagnslausir lengi heldur eru bændur að verða fyrir eignatjóni og verulegu tekjutapi. Verst er að horfa upp á dýrin, að þurfa að grafa hross upp úr snjó og eru júgurbólgur og annað farið að hrjá sumar kýrnar þar sem ekki er varaafl til að knýja róbóta í fjósum. Því til viðbótar þurfa þau framleiðslufyrirtæki sem hér eru að henda vörum af kælum og framleiðsla liggur eðlilega niðri. Verslanir þurfa mögulega að henda skemmdri kælivöru o.s.frv. Það er því ljóst að um stórtjón er að ræða. Ég get ekki látið hjá líða að þakka viðbragðsaðilum, björgunarsveitarmönnum, heilbrigðisstarfsfólki, lögreglumönnum, viðgerðarmönnum og konum, og einstaklingum sem hafa staðið vaktina nótt sem dag til að gera líf okkar hinna bærilegra á meðan á þessum hremmingum stendur. Þeirra framlag er ómetanlegt.
Óveður 10. og 11. desember 2019 Mest lesið Loka fyrir umferð til að rannsaka banaslys Innlent Fauk í Kristrúnu í fyrirspurnartíma Innlent Keyrir út póst með nauðgunardóm á bakinu Innlent Umdeildir leikir í sumarbúðum: „Það eru sem betur fer breyttir tímar“ Innlent Rúta skíðlogar í Hafnarfirði Innlent Neita öll sök í Reykholtsmálinu Innlent Pósturinn sendir starfsmanninn í leyfi Innlent Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Erlent Tilkynnt um mann með sverð Innlent Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Erlent Fleiri fréttir Kjartan Atli leiðir Samfylkinguna í Garðabæ Heimsmarkaðsverð í hæstu hæðum, sannir aðdáendur Laufeyjar og harka í ESB umræðum Tilkynnt um mann með sverð Stöðvuðu stút með naglamottu „Ég hef aldrei heyrt aðra eins fyrirspurn á ævinni“ Fyrsta konan sem skipuð er yfirlögregluþjónn Fauk í Kristrúnu í fyrirspurnartíma Loka fyrir umferð til að rannsaka banaslys Umdeildir leikir í sumarbúðum: „Það eru sem betur fer breyttir tímar“ Rúta skíðlogar í Hafnarfirði Neita öll sök í Reykholtsmálinu Pósturinn sendir starfsmanninn í leyfi Óveðrinu slotar í bili og átak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Kæra aftur útboð Vestmannaeyjabæjar á líkamsræktarstöð Enginn verði á biðlista eftir hjúkrunarrými eftir þrjú ár Bein útsending: Ný áætlun fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila Flestir telja veikindarétt og starfsöryggi ríkari hjá hinu opinbera Um 500 leituðu skjóls í fjöldahjálparstöð og á hótelum Aldrei séð flóð falla á þessum stað á átján ára ferli Guðmundur Ingi snýr aftur á þing í dag „Mjög mikill fjöldi sem við vorum að taka á móti“ Keyrir út póst með nauðgunardóm á bakinu Hundruð manns í fjöldahjálparstöðvum fyrir norðan: „Það var bara snælduvitlaust veður“ Eldur kviknaði í fjölbýli í Úlfarsárdal Þrír fluttir á slysadeild ofan af Hellisheiðinni eftir tvo árekstra Afturkölluð tilnefning grunsamlegri eftir misvísandi svör Rúta út af og Þingvallavegi lokað Tvö snjóflóð skammt frá byggð í Siglufirði Galdrakarlinn í AUS Rammagerðin fari með fleipur í fjölmiðlum og beri sjálf ábyrgð á stöðunni Sjá meira