Innlent

Segir um­hugsunar­vert að ekki hafi verið hægt að ná þessari niður­stöðu fyrir ein­hverjum vikum

Atli Ísleifsson skrifar
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir of mikla orku hafa farið í hnútuköst í kjaradeilunni.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir of mikla orku hafa farið í hnútuköst í kjaradeilunni. Vísir/Sigurjón

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkurborgar, kveðst mjög ánægður með að samningar hafi náðst í kjaradeilu félagsmanna Eflingar og borgarinnar. Hann segir þó að of mikil orka hafi farið í hnútuköst og að umhugsunarvert sé að ekki hafi tekist að ná samningum fyrir einhverjum vikum.

„Ég er mjög ánægður með afrakstur síðustu tveggja nátta. Nú erum við búin að semja við stærstu hópana – hjá Sameyki og Eflingu. Í mínum huga er um að ræða tímamótasamninga. Stóra málið er kannski stytting vinnuvikunnar en síðan er sá grunnur sem byggt er á – Lífskjarasamningurinn – hann tryggir að við erum að sjá umtalsverða hækkun lægstu launa og kjarabætur fyrir fólk hjá borginni sem á þær sannarlega skilið. Við erum mjög ánægð með niðurstöðuna í báðum tilvikum,“ segir Dagur í samtali við Vísi.

Of mikil orka fór í hnútuköst

Aðspurður um hvernig hann líti til baka á viðræður og umræðuna síðustu vikurnar segir hann það umhugsunarvert að það hafi ekki verið hægt að ná þessari niðurstöðu fyrir einhverjum vikum síðan. „Auðvitað tók tíma að útfæra styttingu vinnuvikunnar, en staðreyndin er sú, eins og komið hefur fram, að tilboð borgarinnar í viðræðunum var gott, eins og endurspeglast í niðurstöðunni.“

Síðustu vikur hefur mikið verið rætt um samskipti Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, og Dags B. Eggertssonar borgarstjóra.Vísir/Vilhelm

Nú var mikið rætt um deilur og samskipti ykkar Sólveigar Önnu, formanns Eflingar. Hvað viltu segja um það nú þegar niðurstaða hefur náðst?

„Mér fannst allt of mikil orka fara í slíkt og einhver hnútuköst. Mér fannst þetta sjálfum ekki ganga fyrr en okkur tókst að ná allri athygli á samningana og það sem þurfti að vinna inni í Karphúsi, í útfærslum og öðru, en út úr einhverri samfélagsmiðla- og fjölmiðlaumræðu.“

Kórónuveiran hafði áhrif á gang viðræðna

Dagur nefnir einnig að kjaraviðræðurnar hafi átt sér stað á mjög sérstökum tímum. „Við höfum öðrum þræði verið að glíma við verkföll og hins vegar verið að undirbúa þjónustu borgarinnar og samfélagið undir COVID-19 og það sem tengist þessari veirusýkingu. Það er kærkomið og löngu tímabært að geta lagt verkföll og vinnudeilur að baki og einbeita okkur að því sem mestu skiptir við núverandi aðstæður.“

Heldurðu að þessi kórónuveira hafi haft áhrif á gang viðræðna?

„Já, ég held að allir hljóti að hafa fundið til ábyrgðar gagnvart því. Það er alveg ljóst að tíminn var að renna út. Ekki bara út af veirunni, heldur líka út af áhrifunum sem að verkföllin höfðu á fjölskyldur. Sérstaklega fjölskyldur leikskólabarna í Reykjavík sem ég held að sé fegnasti hópurinn sem kemst nú aftur í kærkomna rútínu. Ég vona að allir geti þá horft fram á veginn,“ segir borgarstjóri.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×