Innlent

Segir málsmeðferðina stórskrítna

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar.
Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar. Vísir/Egill

Íslenska ríkið braut reglur EES um mat á umhverfisáhrifum þegar það breytti lögum um fiskeldi í október 2018. Þetta er bráðabirgðaákvörðun Eftirlitsstofnunar EFTA.

Úrskurðanefnd Umhverfis og auðlindamála felldi úr gildi starfsleyfi tveggja fiskeldisfyrirtækja 27. september 2018. Í kjölfarið voru sett lög á Alþingi sem veittu ráðherra málaflokksins leyfi til að veita bráðabirgðarekstraleyfi. Félagasamtökin Landvernd kvörtuðu til ESA því þau töldu að lagasetningin stæðist ekki EES-reglur um umhverfismat.

Auður Önnu Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar, segir að meðferð málsins á Alþingi hafa verið stórskrítna. Frumvarpið var lagt fram og samþykkt samdægurs.

„Þetta er dæmi um það hvað er mikilvægt að við rösum ekki úr ráði fram og að við förum varlega í þessar ákvarðanatökur þegar er verið að breyta lögum. Að það sé opið og gagnsætt samráð, allar upplýsingar séu upp á borðum.“

Auður segir að Landvernd hefði fylgt málinu eftir fundum með þingflokkunum.

„Þegar þetta var lagt fyrir á alþingi að þá var enginn sem greiddi atkvæði gegn þessu frumvarpi sem sýnir bara að upplýsingarnar sem þingmenn fengu voru ekki réttar. Ég vona að þetta dæmi verði til þess að svona muni ekki gerast aftur. Að lög sem eru alls ekki neyðartilfelli að þau verði ekki sett með þessum hætti heldur verði mjög vandað til ákvarðanatökunnar.“

Aðspurð hvaða þýðingu ákvörðunin hefur segir Auður.

„Ákvörðunin ætti að þýða það að þau verði felld úr gildi, þau samræmast ekki EES-reglum þannig að þau geta ekki staðið eins og þau eru. Þetta hefur ekki þýðingu fyrir fiskeldisfyrirtækin sem fengu þessi ólöglegu rekrarleyfi því þau eru núna komin með fullgild rekstrarleyfi en í framhaldinu þýðir þetta að það verður ekki hægt að beita þessum ráðum sem sjávarútvegsráðherra vildi beita í þágu þessara tveggja fyrirtækja,“ segir Auður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×