Íslenski boltinn

Pepsi Max kvenna eftir 1 dag: Skalladrottningin og langskyttan í deildinni í fyrra

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Valskonur fagna Hlín Eiríksdóttur eftir eitt marka hennar í Pepsi Max deild kvenna á síðustu leiktíð.
Valskonur fagna Hlín Eiríksdóttur eftir eitt marka hennar í Pepsi Max deild kvenna á síðustu leiktíð. Vísir/Bára

Íslandsmótið í knattspyrnu byrjar með opnunarleik Pepsi Max deildar kvenna 12. júní. Það er mikil spenna fyrir því að boltinn fari aftur að rúlla en lengsta undirbúningstímabil í fótboltaheiminum varð enn lengra þökk sé kórónuveirunni.

Vísir ætlar að telja niður í fyrsta leik með því að rifja upp eitt og annað tengu úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu. Í dag er bara 1 dagur í fyrsta leikinn sem verður á milli Vals og KR á Hlíðarenda annað kvöld.

Hlín Eiríksdóttir er mjög öflugur skallamaður.Vísir/Eyjólfur

Valskonan Hlín Eiríksdóttir var skalladrottning Pepsi Max deildarinnar en hún skoraði fimm af sextán mörkum sínum með skalla. Hún skoraði einu skallamarki meira en Blikinn Alexandra Jóhannsdóttir.

Tvö af skallamörkum Hlínar komu strax í fyrsta leik þegar hún var með þrennu á móti Þór/KA á Hlíðarenda. Hlín skoraði einnig tvö skallamörk á móti ÍBV-liðinu eða eitt í hvorum leik.

Hallbera Guðný Gísladóttir lagði upp þrjú af þessu fimm skallamörkum Hlínar enda þekkt fyrir sínar frábæru fyirrgjafir.

Alexandra Jóhannsdóttir skoraði aftur á móti öll fjögur skallamörk sín í seinni umferðinni eða í leikjum á móti ÍBV, Keflavík, Stjörnunni og Fylki. Ásta Eir Árnadóttir átti stoðsendinguna á hana í þremur markanna.

Flest skallamörk í Pepsi Max deild kvenna 2019:

  • 5 - Hlín Eiríksdóttir, Val
  • 4 - Alexandra Jóhannsdóttir, Breiðabliki
  • 3 - Hólmfríður Magnúsdóttir, Selfossi 3 - Natasha Moraa Anasi, Keflavík
  • 3 - Arna Sif Ásgrímsdóttir, Þór/KA
  • 2 - Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Breiðabliki
  • 2 - Kristín Dís Árnadóttir, Breiðabliki
Marija Radojicic lætur vaða á markið í leik með Fylki í fyrra.Vísir/Bára

Fylkiskonan Marija Radojicic skoraði aftur á móti flest mörk með skotum fyrir utan teig en þrjú af sex mörkum hennar komu með skotum fyrir utan teig. Sex leikmenn komu síðan næsta með tvö mörk með langskotum.

Marija Radojicic skoraði tvö af langskotsmörkum sínum eftir að hafa tekið sex eða fleiri snertingar á boltann en það þriðja kom í fyrstu snertingu.

Flest mörk með langskotum í Pepsi Max deild kvenna 2019:

  • 3 - Marija Radojicic, Fylki
  • 2 - Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, Breiðabliki

    2 - Sveindís Jane Jónsdóttir, Keflavík
  • 2 - Hulda Hrund Arnarsdóttir, Fylki
  • 2 - Sophie Mc Mahon Groff, Keflavík
  • 2 - Eva Rut Ásþórsdóttir, HK/Víkingi

    2 - Emma Rose Kelly, ÍBV



Fleiri fréttir

Sjá meira


×