Sonur eins ríkasta manns Kína sagður hafa synt yfir á til að láta vita af mannránstilraun Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 15. júní 2020 23:30 Lögreglumaður í Foshun í Kína. EPA/ALEX PLAVEVSKI
Lögregluyfirvöld í Kína segjast hafa komið í veg fyrir bíræfna tilraun til mannráns þegar fimm menn, sagðir vopnaðir sprengjubúnaði, brutust inn á heimili He Xiangjian, eins ríkasta manns Kína, og reyndu að ræna honum. Sonur hans er sagður hafa náð að sleppa úr haldi mannræningjanna og synt yfir nærliggjandi á til þess að gera lögreglu viðvart. Mannránstilraunin er sögð hafa átt sér stað í gærkvöldi og hafa erlendir miðlar eftir staðarmiðlum í Kína að mannræningjarnir hafi brotið sér leið inn í lúxusvillu hins 77 ára Xiangjian í borginni Foshan í gær. Lögregla var kölluð á vettvang síðdegis og segir í frétt New York Times að um tólf tímum síðar hafi verið búið að handtaka mennina sem ætluðu sér að ræna Xiangjian. Xiangjian er sagður hafa sloppið heill heilsu og er það ekki síst þakkað 55 ára gömlum syni hans sem sagður er hafa synt yfir á til þess að hringja á lögregluna. Gríðarlegur viðbúnaður var vegna hins meinta mannráns en íbúar í grennd segjast ekki hafa þurft að halda sig innandyra frá því að lögregla mætti á svæðið. Xiangjian er stofnandi Midea Group, eins þekktasta framleiðenda heimilistækja í Kína en auðæfi hans eru metin á 25 milljarða dollara, um þrjú þúsund milljarða króna. Xiangjian lét af störfum sem stjórnarformaður Midea árið 2012 en hann og fjölskylda hans eru enn stærstu hluthafarnir. Í frétt BBC segir að mannránstilraunin hafi verið afar vinsælt umræðuefni á kínverskum samfélagsmiðlum, þar sem tilrauninni hafi meðal annars verið líkt við hasarmynd.
Kína Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Fleiri fréttir Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Sjá meira