Íslenski boltinn

Afmælisbarnið Karen María er sú marksæknasta í allri deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Karen María Sigurgeirsdóttir í viðtali við ÞórTV eftir sigurinn á Stjörnunni þar sem hún átti beinan þátt í þremur af fjórum mörkum.
Karen María Sigurgeirsdóttir í viðtali við ÞórTV eftir sigurinn á Stjörnunni þar sem hún átti beinan þátt í þremur af fjórum mörkum. Skjámynd/ÞórTV

Þór/KA stelpurnar eru á toppnum eftir tvær umferðir í Pepsi Max deild kvenna eftir tvo sannfærandi heimasigra. Margar hafa spilað vel í þessum leikjum en fáar þó betur en Karen María Sigurgeirsdóttir.

Þór/KA liðið missti vissulega mikið fyrir þetta tímabil og þá sérstaklega af miðjunni. Eftir stóðu yngri leikmenn sem þurftu að taka miklu meiri ábyrgð.

Karen María Sigurgeirsdóttir fer þar fremst í flokki en hún heldur upp á nítján ára afmælið sitt í dag sem marksæknasti leikmaður Pepsi Max deildar kvenna til þessa í sumar. Karen fæddist 22. júní 2001.

Karen María Sigurgeirsdóttir hefur verið með bæði mark og stoðsendingu í fyrstu tveimur leikjunum. Hún skoraði tvö mörk og gaf stoðsendingu Hulda Ósk Jónsdóttur á í 4-1 sigri á Stjörnunni og var með mark og stoðsendingu á fyrirliðann Örnu Sif Ásgrímsdóttur í 4-0 sigri á ÍBV.

Bæði mörkin frá Huldu Ósk og Örnu Sif komu með skalla úr markteig eftir fast leikatriðið. Í marki Huldu sendi Karen María hornspyrnu á hana en mark Örnu kom eftir aukaspyrnu frá Karen.

Karen María Sigurgeirsdóttir hefur því samtals komið af fimm af átta mörkum Þór/KA liðsins í þessum tveimur leikjum og er með tveggja marka forskot á aðra leikmenn þegar við leggjum saman mörk og stoðsendingar.

Karen María hefur þegar gert betur en allt sumarið í fyrra þegar hún var samanlagt með 2 mörk og 2 stoðsendingar í átján leikjum.

Marksæknasti leikmaður Pepsi Max deildar kvenna 2020:

(Flest mörk + stoðsendingar í fyrstu tveimur umferðunum)

  • 5 sköpuð mörk
  • Karen María Sigurgeirsdóttir, Þór/KA (3 mörk + 2 stoðsendingar)
  • 3 sköpuð mörk
  • Alexandra Jóhannsdóttir, Breiðabliki (2 mörk + 1 stoðsending)
  • Elín Metta Jensen. Val (3 mörk + 0 stoðsendingar)
  • Margrét Árnadóttir, Þór/KA (2 mörk + 1 stoðsending)
  • Miyah Watford, ÍBV (2 mörk + 1 stosending)
  • Stephanie Mariana Ribeiro, Þrótti (2 mörk + 1 stoðsending)



Fleiri fréttir

Sjá meira


×