Innlent

Loka bæjar­miðlinum í mót­mæla­skyni

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Vefsíðunni budardalur.is hefur verið lokað í mótmælaskyni.
Vefsíðunni budardalur.is hefur verið lokað í mótmælaskyni. Skjáskot

Staðarmiðlinum Búðardalur.is hefur verið lokað í mótmælaskyni vegna breytingu á aðalskipulagi sem heimilar að vindmyllur verði reistar á hluta jarða Sólheima og Hróðnýjarstaða í Laxárdal að því er fram kemur í tilkynningu frá vefsíðunni Búðardalur.is.

Þá segir að forsvarsmenn síðunnar geti ekki sætt sig við þetta en þeir beri framtíð og hagsmuni Dalanna meira fyrir brjósti en núverandi sveitarstjórn virðist gera. Vefsíðunni hefur því verið lokað ásamt vefmyndavél sem hefur verið aðgengilega í Búðardal frá árinu 2011. 

Sigurður Sigurbjörnsson, aðal eigandi budardalur.is, segir í samtali við fréttastofu að aðal áhyggjuefnið sé hve hratt sé farið í þessar breytingar. Ekki hafi verið settar reglur um nýtingu vindorku á Íslandi og aðstandendur síðunnar séu á móti því að hægt sé að kaupa jarðir og „selja sveitarstjórn einhverja hugmynd um að sveitarfélagið græði á því mikla peninga í framtíðinni og af því skapist fjöldi starfa út af því sem þeir ætla að gera á jörðinni.“

Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti einróma á fundi sínum í dag breytingu á aðalskipulagi sem gerir það kleift að reisa vindmyllur á hluta jarðanna Sólheimum og Hróðnýjarstöðum eins og áður sagði. Málið hefur verið til umfjöllunar hjá Vísi og Stöð 2 undanfarnar vikur en meðal annars hefur verið greint frá því að til skoðunar er hvort útiloka eigi vindmyllugarða á friðlýstum svæðum og viðkvæmum fuglasvæðum.

„Okkur finnst ekki tímabært að sveitarfélagið geri þetta og við skiljum ekki hvað liggur á hjá sveitarfélaginu,“ segir Sigurður. „Við höfum bara verið að óska eftir því, og við teljum okkur ekki endilega bara vera að berjast fyrir okkur. Við teljum okkur vera að berjast fyrir alla landsmenn vegna þess að ef að þetta verður að veruleika þarna er verið að skapa fordæmi.“

„Nefndu mér einhvern sem er tilbúinn að fá svona nágranna sem ætlar að byggja orkuver í bakgarðinum hjá þér. Það er enginn til í það sem ég hef hitt,“ segir Sigurður en hann á lögheimili á næsta bæ við Hróðnýjarstaði og búa foreldrar hans þar nú.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra, sagði á Alþingi þann 25. maí síðastliðinn það klárt mál að vindorka heyri undir rammaáætlun um virkjanakosti.

Skúli Thoroddsen, lögmaður Storm Orku, sem áformar vindmyllur á Hróðnýjarstöðum telur vindorku hins vegar ekki falla undir rammaáætlun, ferlið sé í tómri þvælu, valdi miklum töfum og geti skapað ríkinu bótaskyldu.

Þá hefur Fuglaverndarfélag Íslands varað við því að vindmyllugarðar verði leyfðir á farleiðum fugla og á búsvæðum hafarna og hvatt til varfærni og vandaðs umhverfismats. Þá hefur Ólafur K. Nielsen, formaður Fuglaverndarfélagsins, lýst yfir áhyggjum vegna vindmyllugarðanna.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×