Erlent

Smituðum fjölgar áfram hratt á Indlandi

Samúel Karl Ólason skrifar
Heilbrigðisstarfsmenn að störfum í Mumbai. Smituðum fer hratt fjölgandi í stórum borgum Indlands.
Heilbrigðisstarfsmenn að störfum í Mumbai. Smituðum fer hratt fjölgandi í stórum borgum Indlands. AP/Rafiq Maqbool

Yfirvöld Indlands hafa nú staðfest að minnst 500 þúsund manns hafi smitast af Covid-19. Síðasta sólarhringinn greindust 17 þúsund nýsmitaðir og fer smituðum hratt fjölgandi í borgum landsins þar sem þéttbýli og návígi er mikið. Fastlega er búist við því að smituðum muni fjölga hratt áfram og sérfræðingar landsins telja að smitaðir verði minnst 770 til 925 þúsund fyrir 15. júlí.

Indland er í fjórða sæti á lista ríkja þar sem flestir smitaðir hafa greinst. Flestir eru þeir í Bandaríkjunum, en Brasilía kemur þar á eftir og svo Rússland, samkvæmt Johns Hopkins háskólanum í Bandaríkjunum, sem heldur utan um opinberar tölur.

Minnst 15.685 hafa dáið á Indlandi.

Eins og áður segir greindust 17 þúsund nýsmitaðir á síðastliðnum sólarhring. Fyrr í vikunni greindust 16 þúsund og var það met.

Til að mæta þessari miklu fjölgun smitaðra hafa yfirvöld kallað út her Indlands sem á að koma upp fjölmörgum sjúkrarýmum á skömmum tíma. Meðal annars verður notast við lestir, eins og til dæmis í Delí, höfuðborg landsins þar sem tuttugu milljónir búa. Þar eru þó eingöngu 13.200 sjúkrarými og er þörf á minnst 20 þúsund til viðbótar á næstu vikum.


Tengdar fréttir

Metfjöldi nýsmitaðra á Indlandi

Yfirvöld Indlands opinberuðu í dag að 16 þúsund nýsmitaðir af Covid-19 hafi greinst þar í landi og hefur sú tala aldrei verið hærri. Her Indlands hefur verið kallaður til til að byggja sjúkrahús í Nýju Delí, höfuðborg Indlands.

Líkbrennslur í Nýju Delí hafa ekki undan

Þeim sem smitast af Covid-19 fer nú hratt fjölgandi í höfuðborg Indlands. Staðan þar hefur versnað til muna og hafa líkbrennslur ekki undan og geta ekki brennt líkin nógu hratt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×