Grunur um íkveikju í dómkirkjunni í Nantes Sylvía Hall skrifar 18. júlí 2020 10:12 Frá vettvangi í morgun. Vísir/AP
Slökkviliðsmenn hafa náð tökum á eld sem kom upp í dómkirkjunni í borginni Nantes í Frakklandi í morgun. Tilkynning um eldinn barst klukkan 07:44 að staðartíma. Yfirvöld munu rannsaka brunann en franskir miðlar greina frá því að grunur leiki á að um íkveikju sé að ræða. Viðbragðsaðilum hafi þó tekist að koma í veg fyrir stórtjón þó skýr ummerki eldsins megi sjá á kirkjunni og útlitið hafi verið slæmt um tíma. Breaking: There is a massive fire at the historic Nantes Cathedral in France. pic.twitter.com/QTkPsD0LSr— PM Breaking News (@PMBreakingNews) July 18, 2020 Saint-Pierre-et-Saint-Paul dómkirkjan er sögufræg og hófst bygging hennar árið 1434. Alls tók það 457 ár að ljúka verkinu og var framkvæmdum því ekki lokið fyrr en árið 1891. Samkvæmt slökkviliðinu eru skemmdirnar að mestu bundnar við orgel kirkjunnar, sem virðist vera gjörsamlega ónýtt. Hætta er á að pallurinn þar sem orgelið er gæti hrunið vegna skemmdanna og eru viðbragðsaðilar enn að störfum. Fyrir rúmu ári síðan kom eldur upp í annarri sögufrægri dómkirkju í Frakklandi, Notre Dame, og fór hún illa úr brunanum. Um mun stærri bruna var að ræða í Notre Dame, en Frakklandsforseti tilkynnti fyrr í mánuðinum að turn kirkjunnar yrði endurbyggður í upprunalegri mynd.
Frakkland Tengdar fréttir Turn Notre Dame verður endurreistur í upprunalegum stíl Turn Notre Dame-dómkirkjunnar í París, sem fór illa í bruna í apríl á síðasta ári, verður endurbyggður í sinni upprunalegu mynd. 10. júlí 2020 07:34 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Fleiri fréttir Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Sjá meira
Turn Notre Dame verður endurreistur í upprunalegum stíl Turn Notre Dame-dómkirkjunnar í París, sem fór illa í bruna í apríl á síðasta ári, verður endurbyggður í sinni upprunalegu mynd. 10. júlí 2020 07:34