Viðskipti innlent

Efna­hags­batinn kom seðla­banka­stjóra á ó­vart

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Stefán Ó. Jónsson skrifa
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir efnahagsbata Íslendinga eftir kórónuveirulægðina hafa verið meiri en hann gerði ráð fyrir.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir efnahagsbata Íslendinga eftir kórónuveirulægðina hafa verið meiri en hann gerði ráð fyrir. Vísir/Vilhelm

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir efnahagsbata Íslendinga eftir kórónuveirulægðina hafa verið meiri en hann gerði ráð fyrir. Of snemmt sé þó að segja til um framhaldið, mikið velti á árangri annarra þjóða í baráttunni við veiruna og þá ekki síst Bandaríkjanna, sem seðlabankastjóri segist hafa áhyggjur af.

Tólf mánaða verðbólga mælist nú 3 prósent og hefur ekki mælst svo há síðan í september í fyrra. Verðbólgan hefur því stígið yfir markmið Seðlabankans sem er 2,5 prósent en þrátt fyrir það telja greinendur að Seðlabankanum hafi gengið vel til að halda verðbólgu í skefjum síðastliðna mánuði þrátt fyrir mikla veikingu krónunnar.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að eftir efnahagsdýfuna í vor við upphaf faraldursins með fækkun ferðamanna, atvinnuleysi og minni eftirspurn hafi viðsnúningurinn verið hraðari en hann óraði fyrir.

„Við gripum til ákveðna aðgerða núna í vor, lækkuðum vexti, jukum lausafé í umferð og þær aðgerðir eiga eftir að skila sér miklu betur en ég sjálfur hafði áætlað. Við erum að sjá innlenda eftirspurn taka við sér, Íslendingar eru að ferðast um landið og eyða peningum. Að einhverju leiti horfurnar bjartari en við gerðum ráð fyrir, þannig að þeta er í sjálfu sér bara jákvætt,“ segir Ásgeir.

Hagfræðingar Íslandsbanka telja þannig að íslenskur markaður standi sterkum stoðum og virðist hafa getu til þess að standa af sér núverandi kreppu án langvinns samdráttar í alþjóðlegum samanburði. Seðlabankastjóri segir að til framtíðar velti einmitt margt á velgengni annarra þjóða í baráttunni við veiruna.

„Það er svo mikið sem veltur á öðrum þjóðum. Við þurfum að geta flutt út vörurnar okkar og alþjóðleg viðskipti þurfa að fara aftur af stað en við vitum ekki hvað haustið ber í skauti sér. Ég hef miklar áhyggjur af Bandaríkjunum, hvað þeir hafa í raun misst mikla stjórn á faraldrinum þar og líka hvernig gengur í heiminum yfir höfuð, það veldur manni áhyggjum að faraldurinn sé ekki genginn yfir,“ segir Ásgeir.

„Við munum áfram sjá einhver vandamál honum tengd sem gætu haft áhrif á okkur þegar haustið kemur. Hvað varðar okkar aðgerðir hér í landinu er árangurinn mun betri en við höfðum búist við.“


Tengdar fréttir

Undirliggjandi horfur krónunnar góðar

Evran um tuttugu og fimm krónum dýrari nú en í byrjun janúar. Innfluttar vörur hafa hækkað í verði á meðan hagur útflytjenda vænkast.

Mesti samdráttur á Íslandi í 100 ár

Samdráttur í efnahagsmálum Íslendinga hefur ekki verið meiri á einu ári frá því árið 1920. Atvinnuleysi verður meira á þessu ári en nokkru sinni fyrr og samdráttur í útflutningi sjávarafurða hefur ekki verið meiri síðustu fjóra áratugina.

Stýrivextir lækkaðir um 0,75 prósentur

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,75 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 1%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×