Lögregla kölluð til vegna ófriðar í menntaskólaútilegu Sylvía Hall skrifar 27. júlí 2020 10:29 Hópur menntaskólanema var í útilegu á svæðinu og þurfti fjölskyldufólk að fara annað vegna ófriðarins. Aðsend
Lögreglan á Suðurlandi hafði afskipti af hópi gesta á tjaldsvæðinu á Laugarvatni á laugardagskvöld. Menntaskólaútilega var á svæðinu þetta kvöld og þurfti lögregla að koma og stilla til friðar. Samkvæmt heimildum fréttastofu voru fjölskyldur á svæðinu sem ákváðu að yfirgefa tjaldsvæðið um miðnætti vegna láta í menntaskólahópnum. Einhverjir í hópnum hafi verið ölvaðir með dólgslæti og því sáu sumir gestir sér ekki annað fært en að fara annað. Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, staðfestir að lögregla hafi aðstoðað aðra gesti að yfirgefa tjaldsvæðið eftir að tilkynning barst um ófrið. Það hafi þó ekki verið frekari eftirmálar vegna útkallsins. „Við höfðum afskipti af þessum málum og aðstoðuðum fólk sem vildi koma sér í burtu. Við töluðum við fólk og stilltum til friðar en svo greiddist úr því eins og kostur var,“ segir Oddur. „Það voru þarna einhverjar óspektir sem við höfðum afskipti af.“ Lögregla þurfti að vísa einhverjum gestum af svæðinu og var einn fluttur í járnum á Selfoss. Sá var orðinn rólegur þegar þangað kom og tók móðir hans við honum samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.
Lögreglumál Bláskógabyggð Tjaldsvæði Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum Sjá meira