Hefndaraðgerðir Donalds Trump Bandaríkjaforseta gegn andófsfólki minna á aðfarir Sovétríkjanna sálugu, að mati fyrrverandi undirofursta í Bandaríkjaher sem bar vitni í rannsókn Bandaríkjaþings á meintum embættisbrotum Trump í fyrra. Hann sagði skilið við herinn eftir rúmlega tuttugu ára starf í gær eftir að Trump kom í veg fyrir að hann yrði hækkaður í tign.
Alexander Vindman, undirofursti, var fenginn til að bera vitni í rannsókn fulltrúadeildar Bandaríkjaþings á hvort Trump hefði framið embættisbrot í samskiptum sínum við úkraínsk stjórnvöld í haust. Hann var sérfræðingur þjóðaröryggisráðsins í málefnum Úkraínu og hafði hlustað á umdeilt símtal Trump og Volodýmýrs Zelenskíj, Úkraínuforseta.
Bar Vindman að Trump hefði þrýst á forseta Úkraínu að gera sér pólitískan greiða með því að rannsaka Joe Biden, væntanlegan mótframbjóðanda sinn. Það taldi Vindman vera óviðeigandi ósk og möguleg misnotkun á völdum forseta.
Trump var kærður fyrir embættisbrot í kjölfarið en var sýknaður í öldungadeildinni þar sem Repúblikanaflokkur hans er með meirihluta í febrúar. Um leið og sýknan lá fyrir fylgdu öryggisverðir Vindman út úr Hvíta húsinu og sömuleiðis tvíburabróður hans sem hafði hvergi komið nálægt rannsókninni á Trump.
Til stóð að Vindman fengi stöðuhækkun hjá Bandaríkjaher í byrjun sumars en verulegur dráttur varð á því að Hvíta húsið samþykkti lista yfir þá sem átti að hækka í tign. Lögmaður Vindman tilkynnti á endanum um að Vindman ætlaði að hætta í hernum og sakaði Trump og Hvíta húsið um ná sér niður á honum fyrir að hafa borið vitni. Vindman vildi ekki tefla framgangi félaga sinna í hernum í hættu með því að halda kyrru fyrir.
Minnir á gerræðisstjórnir sem fjölskyldan flúði
Uppsögn Vindman tók gildi í gær og birtist þá aðsend grein eftir hann í Washington Post þar sem hann gagnrýnir Trump og ríkisstjórn hans harðlega. Sakar hann forsetann og bandamenn hans um að hafa beitt sig bolabrögðum, ógnunum og hefndaraðgerðum. Það hafi komið í veg fyrir framgang hans í hernum til frambúðar.
Lýsir Vindman því að þegar hann hafði áhyggjur af framferði Trump og undirróðri gegn undirstöðum lýðræðisins hrinti af stað atburðarás sem svipti hulunni af spillingu Trump-stjórnarinnar.
„Aldrei áður á ferli mínum eða í lífinu hef ég talið gildum þjóðar okkar ógnað meir en á þessari stundu. Ríkisstjórnin okkar hefur undanfarin ár minnt meira á gerræðisstjórnirnar sem fjölskylda mín flúði fyrir meira en 40 árum en landið sem ég hef varið lífi mínu í að þjóna,“ skrifar Vindman en fjölskylda hans flúði Sovétríkin sálugu.
Bandarískir borgarar verði fyrir sams konar árásum og harðstjórar beiti gagnrýnendur sína og pólitíska andstæðinga.
„Þeim sem velja hollustu við bandarísk gildi og tryggð við stjórnarskrána fram yfir trúmennsku við lyginn forseta og þá sem greiða götu hans er refsað,“ skrifar Vindman.
Boðar Vindman að hann ætli sér að tjá sig um þjóðaröryggismál á sama tíma og hann sækir doktorsnám í alþjóðasamskiptum við Johns Hopkins-háskóla á næstunni.