Spennan magnast: Hildur skellti sér í Chanel partý og bauð mömmu með Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. febrúar 2020 16:56 Hildur Guðnadóttir í hári og sminki til vinstri og móður sinni til hægri.
Óhætt er að segja að spennan sé að magnast á Íslandi fyrir Óskarsverðlaunaathöfninni í Hollywood í kvöld. Hildur Ingveldardóttir Guðnadóttir er tilnefnd fyrir tónlist sína í Jókernum en Hafnfirðingurinn hefur sópað til sín verðlaunum undanfarnar vikur fyrir tónlist sína. Ekki minnkaði spennan meðal vina og ættingja Hildar og fjölskyldu eftir að Ingveldur Guðrún Ólafsdóttir, móðir hennar, veitti fólki smá innsýn í aðdraganda verðlaunanna. Þær mæðgur skelltu sér nefnilega í Chanel partý á vesturströndinni í gær þar sem Hildur var í glæsilegum kjól frá franska tískuhúsinu. „Hildur gæti verið í endalausum partýum en hún velur úr. Hún er auk þess skynsöm stúlkan mín og drekkur ekki áfengi,“ segir Ingveldur Guðrún stolt í færslu á Facebook þar sem hún lætur fylgja nokkrar stemmningsmyndir úr Hollywood.Sjá einnig:Hollywood-tónskáldið úr Hafnarfirði Greinilegt er að áreitið er mikið á íslensku tónlistarkonuna og móðir hennar dáist að henni. „Fólk í þessari stöðu þarf á allri sinni orku að halda til þess að komast í gegnum þetta.“ Ingveldur Guðrún segist aðeins hafa tekið myndir fyrir partýið en látið vera að munda símann í veislunni sjálfri. Þar hefði hún aldeilis skorið sig úr segir Ingveldur og hlær. Má ætla að hún eigi við klæðaburð gesta þar sem hefur væntanlega verið íburðarmikill miðað við glæsilega kjólinn sem Hildur klæddist. Af ummælum við færslu Ingveldar má sjá hve spennan er að magnast fyrir kvöldið. Óskarsverðlaunin verða afhent í nótt og ljóst að margur Íslendingurinn ætlar að vaka fram eftir og fylgjast með því sem gæti orðið sögulegur viðburður. Samkvæmt síðunni Oddschecker, þar sem teknir eru saman helstu stuðlar, hefur fólk í langflestum tilvikum veðjað á sigur Hildar. Samkvæmt síðunni eru líkurnar á því að verðlaunin falli í fyrsta sinn í skaut Íslendings hátt í áttatíu prósent. Tónlistarfólk, blaðamenn, alls kyns listamenn, stjórnmálamenn og kvikmyndagerðarfólk er meðal þeirra sem senda sínar bestu kveðjur til mæðgnanna. Fylgst verður með Óskarsverðlaunahátíðinni í beinni textalýsingu á Vísi í alla nótt.
Hildur Guðnadóttir Óskarinn Mest lesið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Lífið samstarf Fleiri fréttir Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Sjá meira