Fram, Valur og KA/Þór í undanúrslit Anton Ingi Leifsson skrifar 5. febrúar 2020 21:11 Karen var mögnuð í kvöld. vísir/bára
Fram, Valur og KA/Þór eru þrjú af þeim fjórum liðum sem leika í undanúrslitum í Coca-Cola bikar kvenna þetta árið. Á morgun skýrist svo hvort fjórða og síðasta liðið verður Fjölnir eða Haukar er þau mætast í Dalhúsum. Fram vann sex marka sigur á HK, 35-29, í eina úrvalsdeildarleik kvöldsins. Leikurinn var kaflaskiptur en Fram var þó sex mörkum yfir í hálfleik, 18-12. Karen Knútsdóttir var stórkostleg í liði Fram. Hún gerði ellefu mörk en Steinunn Björnsdóttir og Ragnheiður Júlíusdóttir gerðu sex hvor. Hjá HK gerði Díana Kristín Sigmarsdóttir átta og Sigríður Hauksdóttir sjö. Ríkjandi bikarmeistarar Vals lentu í ekki miklum vandræðum með Grill 66-deildarlið FH í Kaplakrika. Lokatölur 34-19 eftir að Valur hafi verið 16-9 yfir í hálfleik. Hildur Björnsdóttir og Lovísa Thompson voru markahæstar í liði Vals með sex mörk hvor en Íris Björk Símonardóttir var með 53% markvörslu. Britney Cots og Emilía Ósk Steinarsdóttir gerðu sex mörk hvor hjá Fimleikafélaginu. KA/Þór vann svo tíu marka sigur á ÍR, 30-20, eftir að hafa leitt með fimm mörkum í hálfleik, 15-10. Ásdís Guðmundsdóttir var með tólf mörk fyrir KA/Þór en Matea Lonac var frábær í markinu. Hún varði helming þeirra skota sem hún fékk á sig. Laufey Lára Höskuldsdóttir gerði sex mörk fyrir ÍR og Arna Kristín Einarsdóttir fjögur.
Íslenski handboltinn Mest lesið Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Fótbolti Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Handbolti Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Fótbolti Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Fótbolti Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Íslenski boltinn Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Fótbolti Fleiri fréttir Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Sjá meira