Grænt ljós á nýtt deiliskipulag fyrir Laugaveginn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. febrúar 2020 15:25 Númerin endurspegla ekki röðina á framkvæmdunum. Vonir standa til að hefja framkvæmdir í vor og ljúka á tveimur til þremur árum. Reykjavíkurborg
Skipulags- og samgönguráð samþykkti í dag nýtt deiliskipulag fyrir Laugaveg sem göngugötu. Hluti Laugavegs, Skólavörðustígs og Vegamótastígs verður gerður að varanlegum göngugötum að því er segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Unnið verði í framhaldinu að hönnun ýmissa lausna til að bæta götuna og umhverfið. Gert er ráð fyrir að endurnýja allt yfirborð, gróður, götugögn og lýsingu. Laugavegur við Klapparstíg. Hann hefur verið lokaður fyrir bílaumferð síðan vorið 2019.Vísir/Vilhelm Afmörkun svæðis er Laugavegur og Bankastræti frá Klapparstíg að Þingholtsstræti. Skólavörðustígur milli Bergstaðastrætis og Laugavegar. Vegamótastígur frá Laugavegi að Grettisgötu. Formaður skipulags- og samgönguráðs segir þreytu komna í miðbæinn vegna framkvæmda. Áfangaskipt framkvæmd geti vonandi skapað meiri sátt um framkvæmdina. Stefna að minna raski með áfangaskiptingu Framkvæmdir verða unnar í níu áföngum og verða smáar í sniðum. Takmarkið borgarinnar er að rask við framkvæmdir verði sem minnst og einblínt verður á eitt svæði í einu til að forðast neikvæða upplifun. „Áherslan er því ekki á allsherjar endurbætur með stórum vinnuvélum og tilheyrandi truflunum heldur verður unnið með smærri skala,“ segir í tilkynningu frá borginni. Frá framkvæmdum á Hverfisgötu í sumar sem drógust fram á haust.Vísir/vilhelm Framkvæmdir verða í samvinnu við rekstrar- og fasteignaeigendur. Rétt er að minnast lokunar Hverfisgötu í sumar sem dróst verulega. Voru rekstrareigendur afar ósáttir og hafa raunar stefnt borginni vegna málsins. Meira líf og aukin upplifun „Markmiðið með framkvæmdunum er að gæða göturnar meira lífi með því að veita gangandi vegfarendum aukið rými. Þannig er skapað betra verslunarumhverfi sem svarar nýjum áskorunum þar sem upplifun og þjónusta eru stór þáttur,“ segir í tilkynningunni. Áhersla sé lögð á að auka upplifun þeirra sem um svæðið fara með því að skapa eftirtektarvert rými hvort sem það er með leiksvæðum, setaðstöðu eða gróðri. Öryggi og aðgengi í fyrirrúmi „Laugavegurinn hefur verið helsta verslunargata Reykjavíkur frá fornu fari samhliða lifandi mannlífi og menningu,“ segir í tilkynningunni. Vegna sögu sinnar og starfsemi hafi gatan mikið aðdráttarafl fyrir gesti og gangandi, jafnt innlenda sem erlenda. Markmiðið með breytingunum sé að fanga anda miðborgarinnar og fíngerðan skala hennar og sömuleiðis mynda sterka tengingu frá Hlemmi að Kvos. Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulagsráðs Reykjavíkurborgar.Vísir/Baldur „Vönduð borgarhönnun með öryggi og vellíðan gangandi vegfarenda verður í fyrirrúmi. Algild hönnun með aðgengi fyrir alla verður höfð að leiðarljósi við útfærsluna í samráði við notendur og hagsmunasamtök. Alls voru haldnir níu fundir um fyrirhugaðar breytingar með hagsmunaaðilum á síðasta ári.“ Minnt er á að við göngugötusvæðin eru bílastæðahúsin Bergsstaðir og Traðarkot sem bjóði upp á alls 328 bílastæði. Einnig séu bílastæðahús í Kolaportinu og Hafnartorgi, alls 1266 stæði. Komið til móts við verslunareigendur Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulags- og samgönguráðs, segir í samtali við Vísi að stefnt sé á að hefja framkvæmdir strax í vor. Það sé hægt vegna breyttrar nálgunar. Að skipta verkinu niður í áfanga auk þess sem ekki þurfi að skipta út öllum lögnum á veginum, eins og hafi þurft að gera á Hverfisgötunni sem dæmi. Unnið verði á smærri stöðum í einu og jafnvel hægt að flytja lausnir tilbúin á svæðið í einhverjum tilfellum. Hvert og eitt svæði fái upplyftingu í stíl við byggingar á svæðinu. Þannig fái Laugavegurinn ekki sterílt lúkk heldur endurspegli frekar hversu fjölbreyttur Laugavegurinn sé. Sigurborg reiknar með að verkinu ljúki á tveimur til þremur árum. Reynt sé að koma til móts við verslunareigendur og rekstaraðila með því að skipta framkvæmdinni svona upp. „Það er óhætt að segja að það sé komin ákveðin þreyta í miðbæinn vegna framkvæmda,“ segir Sigurborg. Á dagskrá í framhaldinu sé svo að gera Laugaveginn að göngugötu allt árið, alla leið upp að Hlemmi. Sú tillaga var samþykkt í borgarstjórn árið 2018.
Borgarstjórn Göngugötur Reykjavík Samgöngur Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Erlent Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Innlent Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Erlent Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Innlent Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Innlent Fleiri fréttir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Sjá meira