Jón Axel og félagar fengu á sig sigurkörfu 0,7 sekúndum fyrir leikslok Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. febrúar 2020 15:30 Jón Axel Guðmundsson var ískaldur í seinni hálfleik eins og liðsfélagar hans. Getty/Lee Coleman
Jón Axel Guðmundsson og félagar í Davidson töpuðu á grátlegan hátt í bandaríska körfuboltanum í nótt. Það var ekki nóg með að þeir misstu niður tuttugu stiga forskot heldur skoruðu mótherjarnir þeirra hálfgerða flautukörfu sem færði þeim sigurinn. Davidson liðið varð þá að sætta sig við 72-73 tap fyrir Saint Joseph skólanum eftir að Cameron Brown setti niður þriggja stiga körfu 0,7 sekúndum fyrir leikslok. Jón Axel Guðmundsson fann sig ekki í leiknum og klikkaði meðal annars á öllum þremur skotum sínum í seinni hálfleiknum sem Davidson liðið tapaði með tuttugu stiga mun. Davidson var komið með 19 stiga forystu í hálfleik, 40-21, en Jón Axel var með 6 stig, 7 fráköst og og 2 stoðsendingar í þessum flotta fyrri hálfleik. Það gekk hins vegar ekkert upp í seinni hálfleiknum sem Davidson tapaði 52-32. Davidson hitti aðeins úr 9 af 28 skotum sínum utan af velli og öll sjö þriggja stiga skotin rötuðu ekki rétta leið. Á sama tíma hittu leikmenn Saint Joseph's úr 9 af 15 þriggja stiga skotum sínum í hálfleiknum. Jón Axel lék allar tuttugu mínúturnar en var 0 af 3 í skotum og náði ekki að gefa stoðsendingu. Grindvíkingurinn endaði því leikinn með 6 stig og 2 stoðsendingar á 39 mínútum en tók 11 fráköst.
Bandaríski háskólakörfuboltinn Mest lesið Englendingar Evrópumeistarar eftir framlengdan leik Fótbolti Leikur Chelsea og Benfica blásinn af Fótbolti FH-ingar flytja Kaplakrika í Laugardalinn Fótbolti Einhenta undrið ekki í NBA Körfubolti „Versta hugmynd sem hefur komið fram“ Fótbolti Penninn á lofti í Keflavík Körfubolti Aðeins Færeyingurinn öflugi hefur búið til fleiri mörk á HM en Elmar Handbolti „Þvílík vika“ hjá Andreu Sport Níu ár síðan að strákarnir okkar „slökktu á“ Steve McClaren í beinni á Sky Sports Fótbolti Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Fótbolti Fleiri fréttir Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Sjá meira