Alli biðst afsökunar á að hafa gert grín að Asíubúa og Wuhan-veirunni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. febrúar 2020 08:30 Alli skoraði sjálfsmark með myndbandi sem hann birti á SnapChat um helgina. vísir/getty
Dele Alli, leikmaður Tottenham og enska landsliðsins, hefur beðist afsökunar á myndbandi sem hann birti á SnapChat á laugardaginn. Þar gerði hann grín að asískum manni og Wuhan-veirunni. Í myndbandinu sést Alli með andlitsgrímu á flugvelli. Hann beindi svo myndavélinni á símanum sínum að grunlausum asískum manni sem sat skammt frá honum og loks að flösku með sótthreinsandi efni. „Þessi vírus verður að vera fljótari en þetta til að ná mér,“ skrifaði Alli. Myndbandið féll vægast sagt í grýttan jarðveg og Alli var harðlega gagnrýndur fyrir það. Hann sá að sér, eyddi myndbandinu og baðst afsökunar á framferði sínu. „Ég vil biðjast afsökunar á myndbandi sem ég birti á SnapChat. Það var ekki fyndið. Ég áttaði mig strax á því og tók það út,“ sagði Alli í afsökunarbeiðninni. „Ég brást sjálfum mér og félaginu. Maður á ekki að grínast með þetta. Hugur minn er hjá öllum í Kína.“ Alli er núna í vetrarfríi ásamt samherjum sínum í Tottenham. Næsti leikur Spurs er gegn Aston Villa á sunnudaginn.
Enski boltinn Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Íslenski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast Íslenski boltinn Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Fleiri fréttir Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Sjá meira