Tíu látnir eftir árás á bílalest varaforsetans Atli Ísleifsson skrifar 9. september 2020 08:15 Lífverðir varaforsetans voru í hópi látinna og særðra. AP
Tíu manns hið minnsta eru látnir eftir að sprengjuárás var gerð á bílalest afganska varaforsetans Amrullah Saleh í höfuðborginni Kabúl. BBC segir frá því að Saleh, sem áður stýrði leyniþjónustu landsins, hafi særst lítillega, en hann var á leiðinni til vinnu þegar árásin var gerð. Árásin er gerð á sama tíma og formlegar viðræður afganskra stjórnvalda og leiðtoga Talibana eru í þann mund að hefjast. Verður fundað í Katar og er vonast til að hægt verði að ná samkomulagi sem myndi fela í sér endalok margra ára óaldar í landinu. Saleh hefur í gegnum árin verið hávær í andstöðu sinni við hreyfingu Talibana, en Talibanar hafa hins vegar hafnað því að bera ábyrgð á árásinni í morgun. Saleh ræddi við fjölmiðla nokkru eftir árásina og sagðist þá hafa sloppið með lítilsháttar brunasár á annarri hendi. Hét hann því að halda stjórnmálalegri baráttu sinni áfram. Lífverðir varaforsetans voru í hópi látinna og særðra.
Afganistan Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Fleiri fréttir Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Sjá meira