Finnar nota hunda til að þefa uppi smitaða flugfarþega Kjartan Kjartansson skrifar 24. september 2020 13:09 Kossi er einn hundanna sem á að þefa uppi kórónuveirusmitaða farþega í flugstöðinni í Vantaa. Hann var áður björgunarhundur á Spáni og hefur reynslu af því að þefa eftir krabbameini í fólki. Vísir/EPA
Hundar sem eru þjálfaðir til að greina kórónuveirusmit þefa nú af farþegum sem fara um Vantaa-flugvöll í Helsinki í tilraunaskyni. Ekki hefur verið sýnt fram á getu hundana til þess að þefa uppi smitað fólk með vísindalegum rannsóknum og eru þeir því notaðir samhliða hefðbundinni skimun. Tíu leiðbeinendur með fimmtán hunda eru nú í þjálfun til að þefa uppi veiruna en einkarekinn dýraspítali fjármagnar tilraunaverkefnið. Anna Hielm-Björkman, aðjúnkt við Háskólann í Helsinki og sérfræðingur í fylgdardýrum, segir Reuters-fréttastofunni að hundarnir geti numið sjúkdóminn allt að fimm dögum áður en sá smitaði finnur fyrir einkennum. Farþegar sem bjóða sig fram til þess að taka þátt í tilrauninni nudda grisju við hálsinn á sér sem er sett í dós. Starfsmenn fara með dósina í annað herbergi þar sem hundarnir rýna í grisjuna með trýninu. Timo Aronkyto, varaborgarstjóri Vantaa, segist sjá fyrir sér að í framtíðinni gætu sérþjálfaðir hundar farið um á milli farþega líkt og tollleitarhundar gera fyrir.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Dýr Finnland Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Sjá meira