Skoðun

Sósíalískir femínistar standa með trans konum

Sósíalískir femínistar skrifar

Undanfarin ár hefur hópum og einstaklingum sem hafa það að markmiði að niðurlægja hinsegin fólk um allan heim vaxið ásmegin. Hatur og fáfræði þessa fólks hefur í vaxandi mæli beinst að trans konum. Þessar hatursraddir reyna hvað þær geta að ná fótfestu bæði innan og utan Evrópu. Í flestum tilfellum er ofbeldið réttlætt með rakalausum trúarþvættingi.

Fordómafemínistar eða TERFS, hafa markvisst útilokað trans konur frá femínískri baráttu á grundvelli fáfræði og hugmyndafræði sem sótt er í öfgahægrið, trúarvingl og til úreltra hugmynda femínistans Germaine Greer.

Einnig hafa hópar sem kenna sig við skammstöfunina LGB-teymið (Lesbíur, Hommar og Tvíkynhneigðir, eins og þau kalla sig á Íslandi), staðið fyrir fáheyrðu ofbeldi og niðurlægingarherferðum á hendur trans konum erlendis. Í þessum hópi virðist trans fóbískt gagnkynhneigt cis fólk ráða ferð. Þegar litið er til Íslands er það sama uppá teningnum og áróður þessara afla gegn trans konum virðist eiga greiða leið að fjölda fólks og blandast oft saman við kynþáttafordóma, kvenhatur, hinseginfóbíu, rasisma, fötlunar- og fitufordóma svo dæmi séu tekin.

Hatur og fordómar gegn hinsegin fólki hefur alltaf verið til staðar á Íslandi en segja má að ný bylgja hafi farið af stað hérlendis með fordómafullum hávaða Gillzeneggers og hefur síðan skotið upp kollinum í ýmsum myndum það sem af er þessari öld. Eftir því sem trans konur og mannréttindabarátta þeirra hefur orðið sýnilegri hefur hatursorðræða í þeirra garð vaxið hraðar en illgresi í blómagarði.

Skemmst er að minnast fordómahrinu Miðflokksins á Klausturbar þar sem fólkið opinberaði þekkingarleysi sitt og fordóma, tilraun SDG til að koma í veg fyrir að frumvarp um kynrænt sjálfræði yrði lagt fyrir Alþingi og upphafning hans á fordómum J.K. Rowling í garð transkvenna. Í nýlegu viðtali við Þröst Jónsson, oddvita Miðflokksins á Austurlandi, í Kjarnanum talaði hann fjálglega um að karlar í flokknum færu bara í “kynskiptaaðgerð” til að jafna kynjahalla í framboði flokksins. Allt ber þetta að sama brunni fáfræði, trans skömmunar og aulafyndni á kostnað minnihlutahóps sem á undir högg að sækja.

Nú hefur rapparinn Erpur Eyvindarson opinberað sig sem TERF með vídeóþætti sem hann dreifði í kringum hinsegin daga í ágúst s.l. og kallast Flórgoðinn. Í þessum þætti sparar Erpur trans konum ekki fordómana og upphafningu á fáfræði þar sem hann innritar sig í orðræðuhefð fordómagengisins þannig að ekki er hægt annað en að bregðast við.

Í þessu myndbandi hikar hann ekki við að nota orðið „kynskiptingur“ um trans konur en það orð hefur afar niðrandi merkingu í heimi trans fólks. Hafði hann í frammi klúra og ógeðslega tilburði þar sem hann þóttist vera að snerta á sér ímynduð brjóst með vísun í einhverja „kynskiptinga“ vini sína og hélt á meðan uppi dólgslegu og niðrandi tali um trans konur. Hann bætir svo um betur með að karlkenna þær ofan á allt hitt.

Það er sama hvort hatursorðræðan kemur frá lærðum sálfræðingi, skemmtikröftum, stjórnmálafólki, nettröllum eða LGB-teyminu sem nú rembist eins og rjúpan við staurinn að niðurlægja trans konur, intersex- og kynsegin fólk. Þessum fordómum þarf að mæta og kveða niður.

Barátta trans kvenna er mannréttindabarátta og við sem tilheyrum jaðarsettum hópum í samfélaginu vitum þetta betur en margur sem sí-endurtekur setninguna „Það er ekkert stríð nema stéttastríð!“. Samt er yfirlýsingin notuð gegn okkur, til að gaslýsa upplifanir okkar af jaðarsetningu og þagga niður í okkur þegar við bendum á og köllum fólk til ábyrgðar fyrir orð sín og gjörðir.

Fólk í jaðarsettum hópum leitar gjarnan í hópa þar sem upplifanir þess af jaðarsetningu fá hljómgrunn. Þar er fólk sem skilur að samfélagið er gegnsýrt af fordómum og fáfræði. Í þessum fjölbreyttu hópum er hægt að berjast gegn kúgun, og gagnrýna hatursorðræðuna hverju sinni og fá stuðning til að berjast gegn fordómum. Innan þessara hópa er fólk sem glímir við fátækt. Fólk sem er í stéttarbaráttu, jafnvel innan sinna hagsmunahópa, þar sem fólk í efnahagslegri og félagslegri forréttindastöðu stýrir jafnvel allri orðræðu og tekur lítið tillit til þeirra sem hafa ekki sömu forréttindi.

Þess vegna er það ófrávíkjanleg krafa að stéttarbaráttan sé rými allra þessara hópa til að taka þátt. Trans konur og allt hinsegin fólk eru systkini okkar í stéttarbaráttunni og öll orðræða sem niðurlægir þau og jaðarsetur verður fordæmd.

-Sósíalískir femínistar mótmæla kúgun og smættun trans kvenna!

Ynda Eldborg

Margrét Pétursdóttir 

Laufey Líndal Ólafsdóttir

Elísabet Einarsdóttir

Rán Reynisdóttir

María Pétursdóttir

Arna Þórdís Árnadóttir

Ásbjörn Kristinsson

Andri Örn Erlingsson

Birna Eik Benediktsdóttir

Katrín Baldursdóttir

Jóna Guðbjörg Torfadóttir

Armando Garcia Teixeira

Ingibjörg Ingvarsdóttir

Erna Hlín

Ormur Guðjóns

Tóta Guðjóns

Gabríel Skarphéðinsson

Maggi Ómars

Kristbjörg Eva Andersen Ramos

Hrútur Teits

María Gunnlaugsdóttir

Halldóra Jóhanna Hafsteinsdóttir Âû

Elín Eddudóttir

Elsa Björk Harðardóttir

Sigurlaug Lára

Daníel Örn Arnarson

Ása Lind Finnbogadóttir

Mía Alexa

Þóra Kristín Þórsdóttir

Fjóla Heiðdal

Sigurlaug Lára

Steinunn Lilja Heiðarsdóttir

David Husby

Eydís Rán




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×