Ómar Ingi frábær í sigri Magdeburgar | Fyrsta tap Löwen og Bergischer Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 15. október 2020 19:30 Ómar Ingi Magnússon í leik með íslenska landsliðinu. vísir/daníel
Alls léku fjórir Íslendingar með liðum sínum í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Aðeins einn þeirra var þó í sigurliði. Ómar Ingi Magnússon var frábær í liði Magdeburgar sem vann sex marka útisigur á Ludwigshafen. Gerði hann fimm af 28 mörkum Magdeburgar í kvöld, lokatölur 28-22. Gísli Þorgeir Kristjánsson – sem er að komast af stað að nýju eftir meiðsli – lék ekki með Magdeburg í kvöld. Liðið er í 3. sæti deildarinnar þegar fjórar umferður eru búnar. Hefur Magdeburg unnið þrjá leiki og aðeins tapað einum. Arnór Þór Gunnarsson skoraði tvö mörk er Bergischer tapaði naumlega á heimavelli fyrir Wetzlar með tveggja marka mun í kvöld. Lokatölur 22-20 Wetzlar í vil eftir að staðan hafði verið jöfn 13-13 í hálfleik. Bergischer er í 6. sæti deildarinnar sem stendur en þetta var fyrsta tap liðsins í deildinni á tímabilinu. Þá skoraði Ýmir Örn Gíslason eitt mark er Rhein-Neckar Löwen tapaði á heimavelli gegn Leipzig í kvöld. Lokatölur 23-28 og gestirnir fóru því heim með stigin tvö. Alexander Petersson komst ekki á blað í liði Löwen. Ýmir Örn og Alexander eru sem stendur í 5. sæti deildarinnar með Löwen en þetta var einnig fyrsta tap liðsins í deildinni.
Handbolti Þýski handboltinn Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn Fleiri fréttir FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Sjá meira