206 íslenskir lagahöfundar sendu inn lag eftir ljóð Hannesar Hafstein Stefán Árni Pálsson skrifar 29. október 2020 12:30 206 lög verða í keppninni.
Þátttaka í lagakeppni Hannesarholts, Leynist lag í þér? við ljóð Hannesar Hafstein kom skemmtilega á óvart, en 206 lög skiluðu sér í keppnina. Formaður dómnefndar er Þórður Magnússon en í dómnefnd sitja einnig þau Kristjana Stefánsdóttir og Tryggvi M. Baldvinsson. Einnig eru þau Vala Eiríksdóttir á FM957, Ósk Gunnarsdóttir á Bylgjunni og Ómar Úlfur á X977 í dómnefnd. Ekki veitir af að hafa stóran og fjölbreyttan dómarahóp til að fara yfir þennan mikla fjölda mjög svo fjölbreyttra laga sem eiga það sameiginlegt að vera við ljóð Hannesar Hafstein. „Viðtökurnar voru frábærar og fram úr okkar björtustu vonum, en það leynir sér ekki hvað við Íslendingar eigum mikið af hæfileikafólki. Meðal þátttakenda eru bæði þekktir og óþekktir lagahöfundar og fjölbreytnin gríðarleg,“ segir Vigdís Jóhannsdóttir stjórnarformaður Hannesarholts. Dómnefnd hefur þegar hafið störf en aðstandendur keppninnar eru að skoða leiðir til að verðlaunað enn fleiri þátttakendur. KPMG styrkti verðlaunaféð fyrir 1. 2. og 3. sætið, en nú er leitað fleiri leiða til að útvíkka þetta enn frekar og styðja við enn fleiri þátttakendur. Hvernig það verður gert verður kynnt betur á næstunni. Hannesarholt hefur alla tíð stutt við listamenn og tónlistarsenuna og draumurinn um að setja af stað lagakeppni við ljóð Hannesar Hafstein hefur lifað lengi. Hannes Hafstein skildi eftir sig hundruð ljóða af fjölbreyttum toga og það er mikið gleðiefni að hátt á annað hundrað tónlistarmenn á öllum aldri hafi fundið innblástur í ljóðum Hannesar til lagasmíðar.
Tónlist Tengdar fréttir Efna til lagasamkeppni við ljóð Hannesar Hafstein Lagakeppnin Leynist lag í þér? stendur nú sem hæst en með keppninni vill Menningarhúsið Hannesarholt hvetja tónlistarfólk til að semja lag við ljóð Hannesar Hafstein. Skilafrestur er til 20. október 7. október 2020 13:01 Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira
Efna til lagasamkeppni við ljóð Hannesar Hafstein Lagakeppnin Leynist lag í þér? stendur nú sem hæst en með keppninni vill Menningarhúsið Hannesarholt hvetja tónlistarfólk til að semja lag við ljóð Hannesar Hafstein. Skilafrestur er til 20. október 7. október 2020 13:01