Vísbendingar um heimilisofbeldi sem þú sem vinnufélagi ættir að vita af og hafa í huga Rakel Sveinsdóttir skrifar 5. nóvember 2020 07:01 Sigþrúður Guðmundsdóttir. Vísir/Vilhelm „
Vinnustaðir geta verið mjög mikilvægir þegar kemur að því að hjálpa fólki af ofbeldisheimilum, hvort sem er þeim sem beitir ofbeldinu eða þeim sem fyrir því verður, „ segir Sigþrúður Guðmundsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins. Þar geti stuðningur og hvatning til að stíga út úr aðstæðum skipt máli. „Það skiptir til dæmis máli fyrir þolanda að mæta skilningi þegar illa gengur, að geta fengið að fara úr vinnu til að sækja aðstoð vegna ofbeldisins, og fá hvatningu til þess,“ segir Sigþrúður. „Vísbendingarnar geta verið margvíslegar enda ofbeldið mismunandi og oft mjög lúmskt, segir Sigþrúður. Í dag og í gær fjallar Atvinnulífið á Vísi um það hvort vinnustöðum komi heimilisofbeldi við en í fréttum fjölmiðla hefur komið fram að heimilisofbeldi sé að aukast á tímum kórónufaraldurs. Í kjölfar #metoo byltingarinnar brást atvinnulífið við með ýmsum aðgerðum, en nú er spurt hvort tilefni sé til að atvinnulífið hugi að málum almennt og þá ekki síst að málefnum heimilisofbeldis? Vísbendingar fyrir samstarfsfólk Sigþrúður segir að samstarfsfólk og vinnustaðir geti verið vakandi yfir vísbendingum ef grunur leikur á að einhver innan vinnustaðarins sé þolandi heimilisofbeldis. Sigþrúður tekur hér nokkur dæmi sem hægt er að styðjast við og þar sem Kvennaathvarfið styður við konur talar hún hér um þolendur í kvenkyni. Sumt getur verið augljóst eins og líkamlegir áverkar, það að maki fylgi og sæki viðkomandi í vinnu og hafi eftirlit með henni, konan virðist óttast makann og til dæmis lenda í vandræðum ef hún er beðin um að vinna lengur, virðist ekki hafa aðgang að laununum sínum.Konur á ofbeldisheimilum nota oft heilbrigðisþjónustu mikið og geta verið með alls konar óútskýrða kvilla svo tíð veikindi geta verið vísbending,“ segir Sigþrúður. Sigþrúður segir vinnustaði geta verið mjög mikilvægir til að sporna við heimilisofbeldi. Stuðningur og hvatning til þolenda skipti svo miklu máli.Vísir/Vilhelm Vinnustaðurinn oft einu tengsl þolenda við samfélagið Þá segir Sigþrúður oft mikilvægt að spyrja. „Svo er gott að hafa í huga að besta ráðið til að komast að einhverju er að spyrja og að rannsóknir sýna að konur sem búa við ofbeldi vilja láta spyrja sig,“ segir Sigþrúður. Þegar fólk er spurt um ofbeldi segir Sigþrúður samt mikilvægt að með spurningunni fylgi boð um stuðning. Þá segir hún einnig að þótt rannsóknir hafi sýnt að konur vilji láta spyrja sig, breyti það því ekki að konum finnist oft erfitt að skilgreina sig sem þolendur og svari því neitandi. Þá er ráð að falast eftir því hvort þær séu hræddar heima, hafi verið meiddar eða eitthvað slíkt. En eru einhverjir vinnustaðir umfram aðra sem ættu að íhuga það sérstaklega að innleiða aðgerðaráætlun gegn heimilisofbeldi? Við sjáum það í Kvennaathvarfinu að oft eru vinnustaðir einu tengslin sem konur á ofbeldisheimilum hafa við samfélagið utan heimilisins,“ segir Sigþrúður og bætir við: „Það getur verið í tilfellum erlendra kvenna sem tengjast bara maka sínum og vinnustað en hafa ekki annað bakland en það getur líka átt við um íslenskar konur enda er einangrun oft hluti ofbeldisins.“ Þá segir hún fræðslu góða forvörn. „Almennt held ég að það sé mjög mikilvægt að vinnustaðir bjóði upp á fræðslu um ofbeldi og hvernig bregðast megi við því, bæði ef einhver er beittur ofbeldi en líka ef fólk er að beita ofbeldi,“ segir Sigþrúður.
Heimilisofbeldi Stjórnun Vinnustaðurinn Góðu ráðin Tengdar fréttir Fyrsti vinnustaðurinn til að sporna við heimilisofbeldi í Covid ISAL hefur nú innleitt aðgerðaráætlun til að sporna við heimilisofbeldi. Aðgerðaráætlunin byggir á nokkrum leiðum til að aðstoða starfsfólk sem gætu verið þolendur heimilisofbeldis til að stíga út úr þeim aðstæðum. 4. nóvember 2020 07:00 Mest lesið Skuldar félagi Einars 44 milljónir og gæti misst 295 milljóna hús Viðskipti innlent Fegurð er glæpur kom út í mínus Viðskipti innlent „Alls konar fólk heyrt í mér um alls konar hluti“ Viðskipti innlent Atvinnumissir: „Ég kunni nú ekki við að spyrja Jón beint“ Atvinnulíf Þetta kostar skyndibiti á Íslandi Neytendur Segir engar breytingar hafa verið gerðar á uppskrift SS pylsna Neytendur Þrjár verslanir í Múlunum sektaðar eftir rassíu Neytendastofu Neytendur Bæta við níunda áfangastað sínum á Spáni Viðskipti innlent Stórfyrirtæki hyggja á uppbyggingu á Hólmsheiði Viðskipti innlent Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Viðskipti erlent Fleiri fréttir Atvinnumissir: „Ég kunni nú ekki við að spyrja Jón beint“ Nýtt trend: Engir yfirmenn á vinnustaðnum Fótboltastelpan um starfsframann: „Að sækja sér tækifærin sjálfur“ „Fyrir mann sem er skrifblindur og lesblindur er þetta ekkert auðvelt“ „Ég verð auðveldlega meyr en segi engum frá því“ Draumar rætast: „Konur þurfa ekki alltaf að vera á skrilljón“ Draumar rætast: „Lengi skammaðist ég mín ...“ Biskupinn á hlaupum með Bubba Morthens og Sísí með Grýlunum Tvöfalt líf Ara: „Í fyrra túraði ég í sex vikur“ Klara á Kanarí: „Fólk kom með ferðatöskur af saltfiski og seldi“ Eiginkonan kvartar undan fíflagangi á morgnana Að ná til baka tilfinningunni: Það er gaman í vinnunni Á mannamáli: „Ég er bara einhver „nobody,“ við erum ekki með nein gögn“ Góð ráð til að hvetja starfsfólk til dáða fyrir síðustu spretti ársins Að yfirstíga eitthvað rosalega vandræðalegt atvik Litlu fyrirtækin: Upplifa sjálfbærni sem aukavinnu og vesen Google leiðin: Fjögur atvinnuviðtöl yfirdrifið nóg Ný tækifæri: Til dæmis skór úr endurunnu sjávarplasti Að lifa af hræðilega þynnku í vinnunni Sjá meira
Fyrsti vinnustaðurinn til að sporna við heimilisofbeldi í Covid ISAL hefur nú innleitt aðgerðaráætlun til að sporna við heimilisofbeldi. Aðgerðaráætlunin byggir á nokkrum leiðum til að aðstoða starfsfólk sem gætu verið þolendur heimilisofbeldis til að stíga út úr þeim aðstæðum. 4. nóvember 2020 07:00