Segja að Kolbeinn sé á förum frá AIK Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. desember 2020 15:36 Kolbeinn Sigþórsson hefur skorað 26 mörk fyrir íslenska A-landsliðið. Getty/Matthew Ashton Kolbeinn Sigþórsson þarf að finna sér nýtt félag fyrir næsta tímabil ef marka má heimildir Expressen í Svíþjóð.
Íslenski landsliðsframherjinn Kolbeinn Sigþórsson mun ekki spila áfram hjá sænska úrvalsdeildarliðinu AIK eftir þetta tímabil samkvæmt fréttum í Svíþjóð. Expressen hefur heimildir fyrir því að samningi Kolbeins verði rift en hann var í gildi út næsta ár. Kolbeinn kom til sænska liðsins í mars 2019 en þá var hann búinn að glíma lengi við mjög erfið meiðsli. AVSLÖJAR: Kolbeinn Sigthorsson går skilda vägar med AIK bryter kontraktethttps://t.co/o0Kbg0cS9E— SportExpressen (@SportExpressen) December 1, 2020 Kolbeinn Sigþórsson var í síðasta landsliðshóp og kom inn á sem varamaður í leiknum á móti Englandi á Wembley. Kolbeinn deilir markameti landsliðsins með Eiði Smára Guðjohnsen en báðir hafa þeir skorað 26 mörk fyrir A-landsliðið. Kolbeinn Sigþórsson hélt upp á þrítugsafmælið í mars síðastliðnum en hann hefur einnig spilað í Hollandi og Frakklandi á sínum atvinnumannaferli. Kolbeinn var líka lánaður til Galatasaray í Tyrklandi en náði aldrei að spila leik með liðinu vegna meiðsla. Kolbeinn skoraði 3 mörk í 17 leikjum með AIK á 2019 tímabilinu en er markalaus í 5 leikjum á núverandi tímabili þar sem meiðsli hafa sett sinn svip á hans þátttöku. Það er því miður ekkert nýtt fyrir hann.
Sænski boltinn Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Handbolti Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Tók óvænt þátt eftir að mamma skráði hana Sport Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Leikurinn í kvöld klárast rétt fyrir miðnætti og því dræm mæting Sport Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Fótbolti Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Íslenski boltinn Fleiri fréttir Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Býst við dæmigerðum leik upp á Skaga í Tallinn Kokhraustir Eistar þegar búnir að toppa sig Andleg og líkamleg heilsa fín í mikilli törn Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Bíða eftir upplýsingum um hráka Ísraelans Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Frakkland - Belgía 4-1 | Varamennirnir björguðu Frökkum Selfoss missir mikið efni Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Arnar sat fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Gylfi með til Eistlands Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik Sjá meira