Enginn að tala niðrandi um fólk úr 101 Reykjavík Kristján Már Unnarsson skrifar 6. desember 2020 08:30 Helgi Björnsson jöklafræðingur og Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor í grasafræði, eiga jörðina Hruna í Skaftárhreppi. Einar Árnason Hjónin Helgi Björnsson jöklafræðingur og Þóra Ellen Þórhallsdóttir grasafræðingur eiga sitt annað heimili á jörðinni Hruna á Brunasandi, sem þau keyptu fyrir átján árum. „
Okkur hefur verið tekið afskaplega vel hérna,“ segir Helgi í þættinum Um land allt á Stöð 2, spurður um mannlífið í Skaftárhreppi. Þóra Ellen segir sig hafa dreymt um að eignast hluta af fjalli en fengið í staðinn mjög fallegar lindir.Einar Árnason Þau eru bæði meðal höfunda bókar um Brunasand, sem Sögufélag Vestur-Skaftfellinga gaf út fyrir fimm árum, um yngstu sveit á Íslandi. „Við erum bara hluti af samfélaginu, held ég,“ segir Helgi. „Það er kannski ekki víst að öllum finnist það,“ skýtur Þóra Ellen að og hlær. Helgi svarar að enginn sé að tala niðrandi um fólk úr 101 Reykjavík. Hruni er við jaðar Brunahrauns. Fyrir Skaftárelda árið 1783 var þarna svartur jökulsandur og Hverfisfljót rann vestan við svæðið þar sem bærinn var byggður sem nýbýli árið 1825. Hraunið þrýsti Hverfisfljóti austar og er farvegur þess núna talsvert austan við Brunasandsbæina.Einar Árnason Næstu nágrannar þeirra eru bændurnir á Sléttu, frændurnir Páll Elíasson og Elías Ásgeirsson, þeir einu sem enn stunda hefðbundinn búskap á Brunasandi. Elías er alinn upp í Breiðholtinu í Reykjavík og móðir hans Elín Elíasdóttir, systir Páls, flutti til baka í sveitina úr borginni fyrir nokkrum árum. Páll Elíasson, Elías Ásgeirsson og Elín Elíasdóttir rækta sauðfé og nautgripi á bænum Sléttu. Systkinin Páll og Elín bjuggu fyrstu æviárin í Hruna, þar sem afi þeirra og amma voru bændur, en fluttu síðan með foreldrum sínum á Sléttu.Einar Árnason Bæði Slétta og Teygingalækur voru stofnuð sem nýbýli frá Hruna. Á Teygingalæk er núna rekin fiskeldisstöð. Rekstrarstjóri hennar er Anna Magdalena Buda, sem flutti frá Póllandi fyrir tólf árum. Hér má sjá sex mínútna myndskeið úr þættinum:
Um land allt Skaftárhreppur Eldgos og jarðhræringar Hús og heimili Landbúnaður Tengdar fréttir Hitinn frá hrauninu skýrir hraða myndun byggðar á Brunasandi Volgt vatn undan heitu hrauni Skaftárelda í áratugi eftir að gosinu lauk flýtti fyrir landnámi gróðurs á svæði sem áður var svartur jökulsandur. Þetta segir Þóra Ellen Þórhallsdóttir grasafræðingur að hljóti að vera skýringin á því hversvegna ný sveit myndaðist ótrúlega fljótt á Brunasandi. 30. nóvember 2020 22:33 Hraun Skaftárelda skóp nýja sveit eftir Móðuharðindin Skaftáreldum og Móðuharðindunum sem þeim fylgdu hefur verið lýst sem mestu hörmungum Íslandssögunnar. Talið er að fimmtungur þjóðarinnar hafi látist og 75 prósent af bústofni landsmanna fallið af völdum eldgossins í Lakagígum árin 1783-1784. 29. nóvember 2020 22:12 Sagnir um bardaga sem skýra nafn Orustuhóls Orustuhóll er áberandi kennileiti í Skaftárhreppi sem blasir við frá hringveginum skammt austan við bæjahverfið Foss á Síðu. Brunahraun, en svo nefnist hraun Skaftárelda á þessum slóðum, umlykur hólinn á alla kanta. 2. desember 2020 05:05 Hyggst njóta morgunkaffis með útsýni til Öræfajökuls Hreiðar Hermannsson, eigandi Stracta Hótels á Hellu, er ekki aðeins að reisa hótel á eyðijörðinni Orustustöðum austan Kirkjubæjarklausturs. Hann er jafnframt að byggja einbýlishús þar sem hann hyggst eiga lögheimili. 3. desember 2020 23:21 Byggðu nýtt íbúðarhús í jaðri Skaftáreldahrauns Á jörðinni Hraunbóli á Brunasandi hafa hjónin Þuríður Helga Benediktsdóttir, atvinnumálafulltrúi Skaftárhrepps, og Birgir Teitsson arkitekt reist nýtt íbúðarhús í jaðri Brunahrauns, en svo kallast þessi álma hraunsins sem rann í Skaftáreldum árin 1783 til 1784. 5. desember 2020 08:21 Segir vatnið eina gullið sem kemur úr Skaftáreldahrauni Kalt vatn sem sprettur undan Skaftáreldahrauni er grunnur tveggja eldisstöðva í Skaftárhreppi sem báðar sérhæfa sig í bleikjueldi. Fiskeldisfræðingur, sem stýrir öðru fyrirtækinu, segir vatnið í raun eina gullið í Eldhrauni. 26. júlí 2020 22:10 Mest lesið Er þetta hinn nýi hvíti karlmaður? Lífið Enn reið Tarantino vegna þess sem hann gerði íslenskum konum Lífið 50+: Það má segja Nei við barnapössun Lífið Fór í hjartastopp eftir að hafa borðað 10.000 hitaeiningar á dag Lífið Retinól-salat tekur yfir TikTok Matur Theodór Elmar og Pattra í sundur Lífið Leikur plötusnúð á Hollywood sem eltir æskuástina til Spánar Lífið Eru þetta bestu gamanmyndir sögunnar? Bíó og sjónvarp Gummi Ben gerir aldargamla fjölskylduuppskrift Lífið Inga Sæland fór á kostum í „Hvort myndir þú?“ Lífið Fleiri fréttir Bryndís Líf og Stefán eiga von á dreng Leikur plötusnúð á Hollywood sem eltir æskuástina til Spánar Fór í hjartastopp eftir að hafa borðað 10.000 hitaeiningar á dag Er þetta hinn nýi hvíti karlmaður? 50+: Það má segja Nei við barnapössun Gummi Ben gerir aldargamla fjölskylduuppskrift Inga Sæland fór á kostum í „Hvort myndir þú?“ Enn reið Tarantino vegna þess sem hann gerði íslenskum konum Lýsa endalokum vinsæls frasa: „Megi six-seven hvíla í friði“ Harbour og „Madeline“ sögð hafa endurnýjað kynnin Menningarmýs komu saman í jólafíling Retró-draumur í Hlíðunum Fjarlægði tónlistina þar til nýja platan hefur verið fjármögnuð „Ég heillast af hættunni“ „Mér finnst þessi vegferð okkar ótrúlega glæsileg“ Sögufrægt hús falt fyrir tvö hundruð milljónir Máttu ekkert gera og fóru þá að trufla Sunna Ben og Andri Freyr héldu „ponsulítið brúðkaup“ Helgi Ómars nú Heilsu-Helgi Þurfa að staðfesta á fimm ára fresti að dóttir þeirra sé enn með Downs Theodór Elmar og Pattra í sundur Kristján Guðmundsson látinn Simmi Vill í meðferð Sambærilegt því að spila með Real Madrid Fyrirmynd Lucy úr Narníu látin Tískukóngur og húðdrottning ástfangin Nína Björk og Aron selja einbýlið við Grettisgötu Unnur Eggerts kom íslenska innsoginu á kortið Tók á móti dóttur sinni á bílaplaninu: „Allt er gott sem endar vel‘“ Ástin blómstrar hjá Kristínu Ruth og Arnari Snæ Sjá meira
Hitinn frá hrauninu skýrir hraða myndun byggðar á Brunasandi Volgt vatn undan heitu hrauni Skaftárelda í áratugi eftir að gosinu lauk flýtti fyrir landnámi gróðurs á svæði sem áður var svartur jökulsandur. Þetta segir Þóra Ellen Þórhallsdóttir grasafræðingur að hljóti að vera skýringin á því hversvegna ný sveit myndaðist ótrúlega fljótt á Brunasandi. 30. nóvember 2020 22:33
Hraun Skaftárelda skóp nýja sveit eftir Móðuharðindin Skaftáreldum og Móðuharðindunum sem þeim fylgdu hefur verið lýst sem mestu hörmungum Íslandssögunnar. Talið er að fimmtungur þjóðarinnar hafi látist og 75 prósent af bústofni landsmanna fallið af völdum eldgossins í Lakagígum árin 1783-1784. 29. nóvember 2020 22:12
Sagnir um bardaga sem skýra nafn Orustuhóls Orustuhóll er áberandi kennileiti í Skaftárhreppi sem blasir við frá hringveginum skammt austan við bæjahverfið Foss á Síðu. Brunahraun, en svo nefnist hraun Skaftárelda á þessum slóðum, umlykur hólinn á alla kanta. 2. desember 2020 05:05
Hyggst njóta morgunkaffis með útsýni til Öræfajökuls Hreiðar Hermannsson, eigandi Stracta Hótels á Hellu, er ekki aðeins að reisa hótel á eyðijörðinni Orustustöðum austan Kirkjubæjarklausturs. Hann er jafnframt að byggja einbýlishús þar sem hann hyggst eiga lögheimili. 3. desember 2020 23:21
Byggðu nýtt íbúðarhús í jaðri Skaftáreldahrauns Á jörðinni Hraunbóli á Brunasandi hafa hjónin Þuríður Helga Benediktsdóttir, atvinnumálafulltrúi Skaftárhrepps, og Birgir Teitsson arkitekt reist nýtt íbúðarhús í jaðri Brunahrauns, en svo kallast þessi álma hraunsins sem rann í Skaftáreldum árin 1783 til 1784. 5. desember 2020 08:21
Segir vatnið eina gullið sem kemur úr Skaftáreldahrauni Kalt vatn sem sprettur undan Skaftáreldahrauni er grunnur tveggja eldisstöðva í Skaftárhreppi sem báðar sérhæfa sig í bleikjueldi. Fiskeldisfræðingur, sem stýrir öðru fyrirtækinu, segir vatnið í raun eina gullið í Eldhrauni. 26. júlí 2020 22:10