Sauma þurfti sex spor í andlit manns eftir slagsmál í Hlíðunum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 8. desember 2020 06:28 Maðurinn var fluttur á bráðadeild Landspítala áður en hann var færður í fangaklefa. Vísir/Vilhelm Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um slagsmál í Hlíðahverfi klukkan hálftólf í gærkvöldi.
Fjórir menn voru handteknir grunaðir um líkamsárás. Þeir voru allir ölvaðir og voru vistaðir í fangageymslu lögreglu. Flytja þurfti einn mannanna til aðhlynningar á bráðadeild áður en hann var færður í fangaklefa en að því er segir í dagbók lögreglu mun sá hafa verið sleginn í andlitið með flösku eða glasi. Á slysadeild þurfti að sauma sex spor í andlit mannsins. Tveimur klukkustundum áður, klukkan 21:30, hafði lögreglunni borist tilkynning um líkamsárás í Mosfellsbæ. Að því er segir í dagbók lögreglu höfðu þrír karlmenn og ein kona ráðist þar á par og veitt þeim áverka. Einhverjar deilur voru á milli fólksins en þau grunuðu voru farin af vettvangi þegar lögregla kom á vettvang. Fólkið er einnig grunað um hótanir, eignaspjöll og rán. Málið er í rannsókn og er ekki vitað nánar um meiðsl þeirra sem ráðist var á. Laust eftir klukkan hálftólf var síðan tilkynnt um innbrot við Ingólfstorg í miðbænum. Þar er skautasvell Nova þessa dagana og sá vitni menn fara inn í skúr við svellið og stela skautum. Mennirnir fóru af vettvangi í tveimur bílum og er málið í rannsókn.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Maðurinn fannst látinn Innlent Blöskrar framkoma sérsveitar og afskiptasemi nágranna Innlent Grunaðir um að skiptast á að nauðga konu Innlent Icelandair þurfi að kannast við reglur réttarríkisins Innlent Krefja blaðamann Samstöðvarinnar um fimmtán milljónir Innlent Inga skellihló að Sigurði Inga Innlent Demókratar uggandi yfir niðurstöðum skoðanakannana Erlent Fjögur í varðhaldi vegna innbrota í Elko Innlent Faðirinn ekki lengur í einangrun Innlent Tveir í bílnum sem ók út af Innlent Fleiri fréttir Banaslys við Fossá Erlend glæpagengi fá Íslendinga til að ræna reiðhjólaverslanir Miðflokkurinn marktækt stærri en Sjálfstæðisflokkurinn Tíðindi í glænýrri könnun, innbrotafaraldur og biðin sem sligar fjölskyldur Fjögur í varðhaldi vegna innbrota í Elko Tveir í bílnum sem ók út af Nokkur vitni að banaslysi við Brúará Stefnt að hertara eftirliti á landamærunum í nóvember Inga skellihló að Sigurði Inga Útsvarsaukningin aðeins hugsuð til tveggja ára Skerða orku til stórnotenda Alvarlegt umferðarslys við Fossá á Skaga Segir fjármálaráðherra ekki kunna að reikna Blöskrar framkoma sérsveitar og afskiptasemi nágranna Tveir hafa játað sök í stóra fíkniefnamálinu sem fer ekki fet Verður formaður stjórnar Matvælasjóðs Faðirinn ekki lengur í einangrun Þurfi að komast út úr kjarasamningum „með góðu eða illu“ Landris og kvikusöfnun heldur áfram Sigurður Ingi segir skort á sálfræðingum vandamál Baldur greiddi fjórðung kostnaðar við framboð sitt sjálfur Maðurinn fannst látinn Garðabæ óheimilt að skerða þjónustu við ellefu ára stúlku Bein útsending: Málþing um fóstur- og nýburaskimanir Svandís vill formannsstólinn og það hægir á íbúðauppbyggingu Fjarðarheiði lokuð og bílar fastir Bjarkey ekki undir feldi Segir gagnrýni kvenna á leikskólastefnu Kópavogs tvískinnung Einn á slysadeild eftir árekstur tveggja hlaupahjóla Icelandair þurfi að kannast við reglur réttarríkisins Sjá meira