Alls ekki takmarkið að sextíu prósent þjóðarinnar smitist Kristín Ólafsdóttir skrifar 16. mars 2020 15:20 Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir. Vísir/Vilhelm
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að misskilnings gæti í samfélaginu um hjarðónæmi. Hann leiðrétti þennan misskilning á upplýsingafundi almannavarna vegna kórónuveirunnar í dag og áréttaði að það væri ekki markmið heilbrigðisyfirvalda að sem flestir smituðust af veirunni. Þá ræddi hann jafnframt möguleika á nýjum aðferðum við smitrakningar, sem til að mynda hafa verið notaðar í Suður-Kóreu. Enn sem komið er hafa 180 einstaklingar, langflestir af höfuðborgarsvæðinu, greinst með veiruna hér á landi. Þórólfur nefndi sérstaklega að veiran hefði jafnframt greinst í þremur öðrum landshlutum, sem hefði þó verið viðbúið. Þá kvað hann ekki mikið samfélagssmit í gangi en sagði þó að búast mætti við því að slíkum smitum fjölgi töluvert á næstu vikum. Vonandi sýkist sem fæstir Þá benti Þórólfur á að borið hefði á misskilningi varðandi hugtakið hjarðónæmi á ýmsum miðlum. Þórólfur áréttaði að hjarðónæmi segði til um það hvað þurfi að bólusetja stóran hluta af þjóðinni til að skapa ónæmi í samfélaginu, þannig að veira sem kemur inn í það nái ekki að þrífast. Þórólfur sagði að útbreiðslustuðull kórónuveirunnar sem nú berst manna á milli væri þrír. Það þýddi að ef við hefðum bóluefni gegn veirunni þyrftu um 60 til 70 prósent þjóðarinnar bólusetningu til að mynda hjarðónæmi. „Þetta þýðir ekki það að það sé eitthvað takmark hjá okkur að sextíu til sjötíu prósent af þjóðinni muni sýkjast af þessari veiru. […] Nú hversu margir munu sýkjast, það vitum við hreinlega ekki og vonandi verða það sem fæstir, og sérstaklega þessir viðkvæmu hópar, það má ekki gleyma því.“ Markmiðið sé ávallt að hægja á útbreiðslu veirunnar og það muni vonandi gerast án þess að hátt hlutfall þjóðarinnar sýkist. Þá áréttaði Þórólfur að flestir sem fá veiruna fái væg einkenni. Starfsmaður við skimun fyrir kórónaveirunni hjá Íslenskri erfðagreiningu í Turninum Kópavogi. Í morgun höfðu alls sextán greinst með veiruna eftir skimun í Turninum.Vísir/Vilhelm Misskilningur um smithlutfall og dánartölur Þá var Þórólfur inntur eftir því að margir klóruðu sér nú í hausnum yfir því að hlutfall smitaðra hér á Íslandi væri ef til vill hærra en til að mynda í kínversku borginni Wuhan, þar sem veiran á upptök sín. Þórólfur sagði að þar gætti einnig ákveðins misskilnings. Tala yfir smitaða fari alfarið eftir því hversu mikið væri verið að leita að veirunni. Margar þjóðir rannsaki nú til að mynda aðeins einstaklinga sem sýni mikil einkenni sýkingar. Þetta eigi við um þjóðir á borð við Svía og Dani. Þar sé ekki skimað fyrir veirunni líkt og á Íslandi, þar sem einnig er verið að leita innan raða einkennalítilla einstaklinga. Í Kína hafi verið hið sama uppi á teningnum. Þar hafi í flestum tilfellum verið rannsakaðir einstaklingar með mikil einkenni. Þannig miði dánartala jafnframt við þá sem voru rannsakaðir og voru með staðfest smit. Til að fá réttari mynd sé betra að miða við hversu margir létust í þessum löndum miðað við höfðatölu, og hversu margir hafi þurft að leggjast inn á gjörgæsludeild. Þórólfur kvaðst jafnframt hafa séð dánartöluútrekninga upp á nokkur þúsund manns á Íslandi. „Þetta eru ekki réttar tölur,“ sagði Þórólfur og lagði ríka áherslu á það. Skoða nýjar aðferðir til að rekja smit Inntur eftir því hvort almannavarnir og sóttvarnalæknir skoðuðu nú að taka upp nýjar aðferðir við smitrakningu sagði Þórólfur að svo væri. Þannig væri verið að kanna möguleika á að nota til dæmis smáforrit sem hægt er að hlaða niður í síma. Með því væri hægt að greina öll nálæg símtæki á ákveðnu tímabili. „Hins vegar þarf bæði að sannreyna svona aðferðir, hvernig virkar hún, er hún eins hjálpleg og hægt er, hvernig á að vinna úr því og svo þarf að gæta persónuverndarsjónarmiðum í þessu. […] Það er erfitt að segja hvort við gætum gripið til þessara ráðstafana.“ Þá bentu bæði Þórólfur og Alma Möller landlæknir á að lönd eins og Suður-Kórea hefðu nýtt sér slíka tækni en ríkið hefði verið að þróa hana lengi. Þá hefði lögum í landinu verið sérstaklega breytt eftir MERS-faraldurinn svo hægt yrði að nota slíka tækni í framtíðinni. Og nú byggju yfirvöld að því.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Almannavarnir Tengdar fréttir Svona var sextándi upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14:00 í Skógarhlíð 14. 16. mars 2020 13:29 Mikilvægt að Íslendingar standi saman Guðni Th. Jóhanness, forseti Íslands, sagði reyna á Íslendinga og nú þurfi þeir að sýna hvað í þeim búi. Hann sagði skipta miklu máli að sýna styrk og samstöðu og lagast að aðstæðum. 16. mars 2020 09:00 Meirihluti kórónuveirusmitaðra nú utan Kína Þau tímamót urðu í nótt að meirihluti þeirra sem greinst hafa með kórónuveirusmit í heiminum eru nú utan Kína. 16. mars 2020 07:00 „Klárum þetta í júlí“ Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, segist ekki hafa heyrt af öðru en að viðbúnaður á Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi vegna gruns um kórónuveirusmit hjá farþega í vél Icelandair frá Kaupmannahöfn hafi verið eins og viðbragðsáætlun gerir ráð fyrir. 16. mars 2020 07:29 Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Fleiri fréttir Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Sjá meira
Svona var sextándi upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14:00 í Skógarhlíð 14. 16. mars 2020 13:29
Mikilvægt að Íslendingar standi saman Guðni Th. Jóhanness, forseti Íslands, sagði reyna á Íslendinga og nú þurfi þeir að sýna hvað í þeim búi. Hann sagði skipta miklu máli að sýna styrk og samstöðu og lagast að aðstæðum. 16. mars 2020 09:00
Meirihluti kórónuveirusmitaðra nú utan Kína Þau tímamót urðu í nótt að meirihluti þeirra sem greinst hafa með kórónuveirusmit í heiminum eru nú utan Kína. 16. mars 2020 07:00
„Klárum þetta í júlí“ Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, segist ekki hafa heyrt af öðru en að viðbúnaður á Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi vegna gruns um kórónuveirusmit hjá farþega í vél Icelandair frá Kaupmannahöfn hafi verið eins og viðbragðsáætlun gerir ráð fyrir. 16. mars 2020 07:29