Liv ráðin forstjóri ORF Líftækni Atli Ísleifsson skrifar 23. mars 2020 10:13 Liv Bergþórsdóttir hefur áður starfað sem forstjóri NOVA. ORF Líftækni
Liv Bergþórsdóttir hefur verið ráðin forstjóri ORF Líftækni og tekur við starfinu um næstu mánaðamót. Hún tekur við starfinu af Frosta Ólafssyni sem óskaði fyrr á árinu eftir að láta af störfum. Í tilkynningu kemur fram að hún gangi til liðs við ORF Líftækni eftir farsælan feril sem stjórnandi í fjarskiptageiranum, nú síðast sem forstjóri Nova. „Liv leiddi uppbyggingu fjarskiptafyrirtækisins Nova frá stofnun þess árið 2006 fram á mitt ár 2018. Fyrir þann tíma var hún meðal annars framkvæmdastjóri farsímafyrirtækisins Sko, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Og Vodafone og Tals. Undanfarin ár hefur Liv jafnframt setið í stjórnum fjölda fyrirtækja á Íslandi og erlendis. Liv er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og hefur lokið AMP námi við IESE Barcelona Business School,“ segir í tilkynningunni. ORF Líftækni starfar á sviði plöntulíftækni og framleiðir og selur sérvirk prótein sem notuð eru sem innihaldsefni í BIOEFFECT húðvörurnar. Sömuleiðis er unnið að læknisfræðilegum rannsóknum og öðrum þróunarverkefnum. Hjá ORF Líftækni og dótturfyrirtækjum þess starfa ríflega 70 manns.
Vistaskipti Mest lesið Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Viðskipti innlent Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Sjá meira