Aníta Ösp Ingólfsdóttir setti saman páskaborgarann á Grill 66 25. mars 2020 13:20 Aníta Ösp Ingólfsdóttir matreiðslumeistari töfraði fram Páskaborgarann á Grill 66. Grill 66
Í fyrra myndaðist sú hefð á Grill 66 á Olísstöðvunum að fá utanaðkomandi matreiðslumeistara til að útbúa sérstakan páskahamborgara fyrir stöðvarnar. Að þessu sinni var gengið til samstarfs við matreiðslumeistarann og hamborgaraunnandann Anítu Ösp Ingólfsdóttur sem töfraði fram bragðlaukaveisluna Jerome. Aníta hefur víða komið við í veitingageiranum bæði hérlendis og erlendis en hún starfaði meðal annars á Michelin-stjörnustað í Chicaco á vegum Matthias Merges, en einnig í New York og á Bahamas. Páskaborgarinn Jerome er skemmtileg og spennandi samsuða, en hann samanstendur af hefðbundnum nautaborgara og steiktum lambasneiðum, sem Aníta kallar „tribute til gamla góða páskalambsins hjá mömmu“. Á borgarann fara, auk lambakjötsins, tvær gerðir af ostum, maribo og gouda, djúpsteiktir „krispí“ laukhringir, sýrðar agúrkur, salatblanda, bernaise-sósa og sriracha-sósa. Punkturinn yfir i-ið er svo pretzel-brauðið sem ekki hefur oft sést á hamborgarastöðum hérlendis. Páskaborgarinn verður aðeins fáanlegur fram yfir páska og full ástæða til að hvetja hamborgaraunnendur til að láta hann ekki fram hjá sér fara. Að gefnu tilefni er rétt að minna á að hægt er að afgreiða mat af Grill 66 um bílalúgur í Norðlingaholti, Gullinbrú Selfossi, Akranesi, Siglufirði, Ólafsfirði og Dalvík. Þessi kynning er unnin í samstarfi við Grill 66.
Matur Páskar Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Kynlíf á ekki að vera vont Lífið Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Lífið Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira