Drengurinn fannst við Grábrók Samúel Karl Ólason skrifar 23. apríl 2020 17:16
Björgunarsveitir á Vesturlandi og höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út í dag vegna leitar að tíu ára dreng sem varð viðskila við fjölskyldu sína við Hreðavatn upp úr hádegi. Lögreglu og björgunarsveitum var gert viðvart á fjórða tímanum. Drengurinn fannst svo skömmu fyrir klukkan sex við gjallgíginn Grábrók og var hann heill á húfi. Rúmlega 200 björgunarsveitarmenn tóku þátt í leitinni í kringum Hreðavatn þegar mest var. Þar að auki var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út. Henni var þó snúið við þegar drengurinn fannst. Rúmlega 200 björgunarsveitarmenn komu að leitinni.Vísir/Jóhann Fjörutíu leitarhópar voru myndaðir og var fyrst leitað í skóginum við vatnið vestanvert. Þar er mikið kjarrlendi, hraun og klettar. Farið var fótgangandi og á fjórhjólum og var notast við dróna og leitarhunda. Ábendingar frá almenningi urðu til þess að leitinni varð beint norður fyrir vatnið í áttina að Bifröst. Þremur tímum seinna fannst drengurinn um fimm kílómetra frá þeim stað þar sem hann týndist. Drengurinn var vel á sig kominn og glaður að sjá foreldra sína aftur að sögn Þórs Þorsteinssonar vettvangsstjóra hjá Landsbjörg.
Borgarbyggð Björgunarsveitir Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Sjá meira