Innlent

Mikill meirihluta meðlima ÖBÍ einmana þessa dagana

Samúel Karl Ólason skrifar
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands.
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands. Vísir/Lögreglan

Íslendingar í félagsforðun eru að upplifa það hvernig mörgum öryrkjum líður dagsdaglega. Þetta sagði Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands, á upplýsingafundi Almannavarna vegna kórónuveirunnar í dag. Hún sagði þennan tíma hafa reynst mörgum erfiður.

Þuríður sagði Öryrkjabandalagið hafa gert könnun meðal meðlima og 30 prósent svarenda hafi sagst eiga erfitt með að nálgast nauðsynjar eins og lyf og mat. Langflestir, eða um 70 prósent, hafi þó sagst vera einmana.

„Vegna Covid-19, hefur fólk alls staðar í þjóðfélaginu þurft að vinna heima, vera í sóttkví eða í einangrun. Landsmenn hafa nú upplifað heim margra öryrkja og þá meina ég einangrunina. Ég á til dæmis sjálf tvö ömmubörn sem hafa nú verið í einangrun ásamt foreldrum sínum í þrjár vikur. Það hefur reynt á,“ sagði Þuríður.

Hún sagði að nú gæti fólk mögulega almennt betur sett sig í spor þeirra sem séu að hluta til útilokaðir frá samfélaginu vegna fötlunar eða veikinda.

Kvíði, hræðsla og óöryggi er eðlilegur fylgifiskur þessa tíma og sagði Þuríður mikilvægt að tala við vin, ættingja eða sérfræðinga þegar slíkar tilfinningar koma yfir fólk. Vísaði hún í Hjálparsíma Rauða krossins, 1717.

Þuríður nefndi einnig Geðhjálp, þjónustumiðstöðvar sveitarfélaga og fleiri aðila eins og Öryrkjabandalagið sjálft.

Hún sagði Íslendinga þurfa að hugsa út í hvernig samfélagið ætti að vera eftir að faraldrinum lýkur. Heilbrigðisþjónustan og gott aðgengi að henni væri öllum mikilvægt og sömu sögu væri að segja um félagsþjónustuna.

Þuríður beindi orðum sínum einnig til stjórnvalda og bað þau um að skilja engan eftir og það þyrfti að sjást í aðgerðum þeirra að við værum öll á sama báti.

Hlusta má á Þuríði á fundinum hér að neðan. Hún tók til máls eftir rétt rúmar þrettán mínútur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×