Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Agnar Már Másson skrifar 18. september 2026 13:55 Kastriot Pepaj í dómsal. Vísir Saksóknari krefst þess að Sævar Örn Hilmarsson og Kastriot Pepaj hljóti átta og hálfs árs fangelsisdóm, meðal annars fyrir skipulagningu fíkniefnainnflutnings í Dettifossmálinu. Tveimur ungum skipverjum verði gert að sæta að lágmarki sjö ára fangelsi.
Þetta kom fram í málflutningi Arnfríðar Gígju Arngrímsdóttur saksóknara í réttarhöldum í Dettifossmálinu í dag. Sævar og Kastriot eru ákærðir, ásamt tveimur ungum skipverjum af gámaskipinu Dettifossi, fyrir innflutning á fjórtán lítrum af amfetamínvökva. Saksóknari krafðist þess einnig að sakborningar greiddu 9,4 milljóna króna sakarkostnað og að efni tengd málinu yrðu gerð upptæk. Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir saksóknari í Dettifossmálinu.Vísir/Anton Brink Saksóknari sagði fullsannað að skipverjarnir tveir sem fluttu efnin frá Þýskalandi væru aðalmenn málsins, ekki hlutdeildarmenn, og ættu að sæta ábyrgð sem slíkir. Arnfríður sagði þó að sakborningum til málsbóta yrði að líta á að skipverjarnir hefðu hreint sakavottorð, sem og Kastriot. Sævar hafi þó ekki hreina sakaskrá en þau brot kæmu ekki til skoðunar í þessu máli enda aðallega um umferðarlagabrot og annað slíkt að ræða, eða eldri brot. Hún sagði það skipverjum til málsbóta að þeir væru ungir að árum, 21 árs og 22 ára. Þá hefðu þeir verið mjög samvinnufúsir, einkum annar þeirra. Þeir hefðu báðir sýnt iðrun. Til þyngingar lítur saksóknari til þess að um mikið magn, um 14 lítrar af amfetamínvökva, er að ræða af töluverðum styrkleika, sem sé um 47 prósent. „Þetta er mikið magn sem þeir vissu að þeir væru að flytja inn,“ sagði hún um skipverjana tvo. Dómkvaddur matsmaður staðfesti í gær að úr fjórtán lítrunum mætti framleiða rúm fjörutíu kíló af amfetamínsúlfati. Fluttu flöskur frá Þýskalandi Sævar og Kastriot eru sagðir hafa skipulagt innflutninginn og fengið skipverjana til að sækja fjórtán lítra af amfetamínbasa til Bremerhaven. Sævar þekkti annan skipverjann og hafði samband við hann fyrir ferðina, að sögn saksóknara. Þeir eru sagðir hafa rætt saman á Signal. Sævar er sagður hafa verið undir dulnefninu „Cloud“ og Kastriot undir nafninu „Milan“. Þegar Dettifoss kom til hafnar 13. apríl hleraði lögregla símtal milli skipverjanna um felustaði fyrir efnin. Lögregla fylgdist með skipverjunum flytja farangur í land og handtók annan þeirra heima hjá honum. Í bíl hans fundust fjórar flöskur með amfetamínbasa í tveimur íþróttatöskum. Skipverjarnir játuðu sök að hluta. Cloud og Milan Signal-samskipti milli skipverja og „Cloud“ leiddu lögreglu heim til Sævars, þar sem sími skráður á Cloud-reikninginn fannst að sögn saksóknara. Í honum hafi einnig verið samskipti milli „Cloud“ og „Milan“ sem lögregla segir vera Kastriot. Bæði Kastriot og Sævar neita sök. Sævar neitaði að tjá sig fyrir dómi og sagðist vantreysta ákæruvaldinu. Kastriot sakaði lögreglu um að hafa komið kannabis fyrir á heimili hans. Arnfríður sagði engan fót fyrir því. Skipverjarnir séu aðalmenn Hún benti á að skipverjarnir hefðu sjálfir stungið upp á ílátum fyrir efnin og fundarstað í Bremerhaven og því væri útilokað að smætta hlut þeirra niður í hlutdeild. „Ákæruvaldið telur fullsannað að þeir séu aðalmenn,“ sagði Arnfríður. Arnfríður tók fram að ljóst væri að skipverjarnir óttuðust Sævar, sem er töluvert eldri en þeir. Þeir nefndu ítrekað ónafngreinda einstaklinga í vitnisburði sínum, sem saksóknari telur hafa verið Sævar. „[Annar skipverjinn] vildi ekki nafngreina einstaklinginn sökum ótta við hann,“ sagði hún. „Ákæruvaldið mun ekki geta fallist á að hlutur þeirra verði smættaður í hlutdeild,“ sagði hún er hún nefndi að skipverjarnir hefðu sjálfir stungið upp á því hvers konar ílát hefði verið hentugra og stungið upp á fundarstaðnum í Bremerhaven. Sækjandi telji „fullsannað að þeir séu aðalmenn“. Frétt hefur verið uppfærð.
Fíkniefnasmygl með Dettifossi Dómsmál Smygl Fíkniefnabrot Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Sjá meira