Hvað er til ráða gegn Covid-19 kvíða? Marteinn Steinar Jónsson skrifar 27. apríl 2020 15:00 Óvissan vegna áhrifa veirunnar sem veldur Covid-19 sjúkdómnum á heilsufarslega og fjárhagslega afkomu er íþyngjandi og til þess fallin að ýta undir þrálátar tilfinningar streitu, kvíða og ótta. Ógnin eflist, verður áleitnari, þegar við eigum ekki auðvelt með að sjá fyrir hverjar heilsufarslegar og fjárhagslegar afleiðingar faraldursins koma til með að verða. Fyrirkvíðinn ryður öðrum og erfiðari tilfinningum braut. Ótti og ógn út frá sálfræðilegu sjónarhorni Af ofansögðu er ljóst að andleg líðan okkar ræðst verulega af því hversu auðvelt við eigum með að spá fyrir um framvinduna, persónuleg afdrif okkar og afkomu. Kvíði og streita eru fylgifiskur þess að eiga erfitt með að sjá fyrir um, hvernig hlutirnir koma til með að verða á næstu mánuðum og misserum. Þær aðstæður, sem við stöndum frammi fyrir, eru sannarlega ódæmigerðar, minna helst á söguþráð bandarískra Hollywood hamfarakvikmynda. Þó svo að Covid-19 faraldurinn sé raunhæf ógn við heilsu og afkomu, er samt sem áður brýnt að dregnar séu réttar ályktanir fremur en að byggt sé á getgátum. Þegar staðið er frammi fyrir nagandi óvissu, hafa margir sterka tilhneigingu til að fylla í eyðurnar, leita handahófskenndra skýringa og byggja á þeim. Ef erfitt reynist að ráða í framvinduna, er hætta á að við ofmetum líkur þess að illa fari fremur en að kanna nánar sannleiksgildi hugmynda okkar, hverju beri að trúa og hverju ekki. Þetta helst gjarnan í hendur við vanmat á eigin getu til að sigrast á kringumstæðunum. Ef við föllum í þá gryfju að taka mark á neikvæðum, handahófskenndum tilgátum, á vanlíðan og örvænting greiðan aðgang. Það sem við einblínum á öðlast aukið vægi, verður sem olía á eld kvíða, ótta og vonleysis. Okkur hættir þess vegna til að horfa framhjá augljósum staðreyndum, sem vitna um hið gagnstæða, að ekki sé ástæða til gera úlfalda úr mýflugu. Hér er vísað til sértækrar athygli, þeirrar tilhneigingar að horfa eingöngu til upplýsinga, sem styðja fyrirfram gefnar tilgátur og loka augunum fyrir öllu því sem vitnar um hið gagnstæða. Skynsemisrök, byggð á vandaðri og traustri upplýsingaöflun, eiga ekki upp á pallborðið, heldur tilfinningarök; forsendur byggðar á tilfinningalegri líðan. Með öðrum orðum: „Vegna þess að mér líður svona, þá hlýtur þetta að vera svona.“ Mörgum hættir til að grufla án afláts í kvíðahugsunum. Samtímis telja þeir sér trú um að þetta sé gagnlegt, til marks um ábyrgðarkennd og viðleitni til að leita lausna. Hér er um sjálfsblekkingu að ræða. Grufl er hugarvíl sem leiðir í öngstræti kvíða, ótta og örvæntingar. Írski málshátturinn: „You will never plow a field by turning it over in your mind,“ gerir þeirri staðreynd góð skil. Hvernig fáum við dregið úr ótta og kvíða? Komið hefur verið inn á mikilvægi þess að forðast innantómar getgátur, þó svo að framvinda atburða sé hulin sjónum okkar. Til að verjast slíkri tilhneigingu er nauðsynlegt að efla með sér hæfni til að greina á milli þess sem mögulegt er að leita svara við og þess, sem við fáum engin skýr svör við. Ef svörin eru ekki fyrir hendi, er betra að segja: „Ég hef engin skýr svör við þessu,“ fremur en að setja fram getgátur og hugmyndir er bjóða heim tilfinningum uggs og ótta. Jafnframt er brýnt að gera sér skýra grein fyrir algjöru gagnsleysi þess að róta og grufla í kvíðahugsunum og telja að það athæfi sé til marks um ábyrgt hugarfar, viðleitni til lausnar þess vanda sem fyrir hendi er. Ekki verður framhjá því litið að erfiðar hugsanir og tilfinningar skjóta upp kollinum þegar síst varir. Við þurfum ekki að dvelja við þær og leyfa þeim að brjóta okkur niður. Við getum lært hagnýtar aðferðir sem hafa uppbyggileg áhrif á líðan. Í þessu sambandi skiptir miklu að halda vöku sinni. Fram hefur komið að það sem við einblínum á, vex og dafnar. Það er í okkar valdi að beina athyglinni strax frá hverju því sem vinnur gegn góðri líðan. Við þurfum ekki að grufla í vanlíðan. Þegar erfiðar hugsanir og tilfinningar leita á hugann getur reynst vel að kyrra öndun og róa hugann. Samtímis getum við beint athyglinni að hugsunum sem efla og viðhalda innri ró og vellíðan. Gagnreynt úrræði gegn kvíða og vanlíðan felst í framkvæmdinni. Að hefjast handa við að gera hluti sem geta haft uppbyggileg áhrif. Dæmi um slíkt er að leita traustra upplýsinga um vafaatriði sem ýtt hafa undir óróa. Í mörgum tilfellum verður slíkt til þess fallið að leiðrétta misskilning og draga úr kvíða. Við getum tekið til hendinni heima fyrir, komið í verk því, sem staðið hefur til að gera, taka til í geymslunni, mála húsnæðið o.s.frv. Fyrir þá sem hyggja á nám, gæti verið tilvalið að hefja undirbúning, setja sig inn í væntanlegt námsefni o.s.frv. Með því að leggja áherslu á framkvæmd þess sem hægt er að gera núna, þó að aðstæður og horfur séu ef til vill erfiðar, komum við hreyfingum á hlutina og á okkur sjálf. Áræðni og framtakssemi skilar sér að jafnaði í betri líðan. Gott er að brjóta viðfangsefnin niður í lítil og vel skilgreind skref. Þó svo að útlitið sé dökkt, þurfa aðstæðurnar samt ekki að hamla að við getum tekist á við framvinduna. Viðgetum breytt túlkun okkar og afstöðu til hlutanna, leyst úr læðingi önnur úrræði, möguleika og leiðir að bættum hag. Í erfiðum kringumstæðum þarf oftar en ekki að víkka út sjóndeildarhringinn og losa um fastbundna túlkun og afstöðu sem ef til vill vinnur gegn árangri. Ef líðan okkar er ennþá afleit, getur gott trúnaðarsamtal haft mikið að segja. Við getum hugleitt hvaða úrræði hafa áður gefið góða raun og um leið leitað hjálparráða, sem leynst geta í núverandi aðstæðum, eitthvað sem vert væri að kanna nánar. Í stað þess að einblína á vandamálin er ætíð betra að beina sjónum að tækifærum. Stundum er mikilvægt að minna sig á að við þurfum ekki endilega að vita þessa stundina hver framvindan verður og hvað gera skal. Með tíð og tíma breytast forsendur og aðstæður. Fram munu koma upplýsingar um nýja möguleika og þá gefst oftar en ekki ráðrúm til að vinna að úrlausn þess sem hvílt hefur á okkur. Höfundur er sálfræðingur hjá Úrlausn sálfræðiþjónustu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Mest lesið Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað gæti ESB-aðild þýtt fyrir almenna íbúa landsbyggðanna? Stefanía V. Gísladóttir skrifar Skoðun Hvönnin í bjarginu Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun 25,2% árangur Gísli Garðarsson skrifar Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum með blaðamönnum Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar Skoðun Þess vegna segjum við NEI þann 29. ágúst Þorvaldur Þorvaldsson skrifar Skoðun Ég kýs JÁ ! - Hvers vegna? skrifar Skoðun Kveðja til hleðslukvíðans Úlfar Linnet skrifar Skoðun Samkeppnishæfni Íslands Ingvar Þóroddsson skrifar Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Traust er ekki sjálfgefið Hilmar Freyr Gunnarsson skrifar Skoðun Evrópusambandið, skjól frá Bandaríkjunum? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar
Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar