Lyfjanotkun ekki lengur frágangssök í lögreglunáminu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 6. janúar 2021 09:02 Ólafía hóf störf hjá lögreglunni í Reykjanesbæ í febrúar 2019 en henni var synjað um inngöngu í lögreglufræðanámið sama ár og aftur 2020. Notkun lyfseðilsskyldra lyfja verður ekki lengur útilokandi þáttur við inntöku í starfsnám í lögreglufræðum hjá Mennta- og starfsþróunarsetri lögreglunnar. Þetta kemur fram í tölvupósti frá Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra til Ólafíu Kristínar Norðfjörð, sem hefur tvívegis verið neitað um námið sökum þess að hún tekur kvíða- og þunglyndislyfið Sertral. Á sama tíma hefur Ólafía starfað sem lögreglumaður í Reykjanesbæ, þar sem hún nýtur mikils stuðnings kollega sinna. Samkvæmt póstinum verður inntökuferlinu einnig breytt á þann veg að umsækjendur munu þreyta þrekpróf og fara í gegnum annan undirbúning áður en þeir gangast undir læknisskoðun og sálfræðimat, ef þess er þörf. Hingað til hefur ákvörðun trúnaðarlæknis um vanhæfi, meðal annars sökum lyfjanotkunar, komið í veg fyrir að umsækjendur fá að spreyta sig í öðrum þáttum inntökuferlisins. „Ég er mjög ánægð með þetta,“ segir Ólafía en henni barst tölvupósturinn frá ráðherra 30. desember sl. í kjölfar fundar í september. Ólafía hefur áður greint frá reynslu sinni á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum en hún segist hafa mætt miklum fordómum vegna lyfjanotkunar sinnar, ekki síst af hálfu trúnaðarlæknis MSL. Var ráðlagt að hætta á lyfinu Forsagan er sú að Ólafía sótti fyrst um að komast í lögreglunámið fyrir haustönnina 2019 en fékk höfnun sökum þess að hún tekur Sertral, sem inniheldur virka efnið sertralín. Árið 2018 var sertralín í nítjánda sæti yfir 30 mest ávísuðu lyfin á Íslandi en það árið fengu 4,1 prósent þjóðarinnar ávísað lyfjum sem innihéldu efnið. Ári seinna var efnið komið í sextánda sæti og 4,3 prósent þjóðarinnar fengu því ávísað. Ólafía sagði frá því í Mannlífi að trúnaðarlæknir MSL hefði ráðlagt henni að hætta á lyfinu; þá gæti hún fengið inngöngu í námið ári seinna. Samkvæmt leiðbeiningum frá MSL árið 2019 sagði að einstaklingar sem þörfnuðust meðferðar með lyfjum sem hefðu sefjandi áhrif á miðtaugakerfið uppfylltu ekki skilyrði um heilbrigðiskröfur fyrir starfsnám. Árið 2020, eftir að Ólafía greindi frá reynslu sinni, var eftirfarandi texta bætt við: „Krafist er að umsækjendur sem hafa þurft meðferð með kvíðastillandi lyfjum, þunglyndislyfjum eða ADHD lyfjum hafi verið án slíkra lyfja í 12 mánuði áður en umsókn er metin.“ Hitti aldrei lækninn sem réði því að hún komst ekki inn Þegar Ólafía greindi frá synjuninni á Facebook árið 2019 sendu samtökin Geðhjálp frá sér yfirlýsingu þar sem þau áréttuðu að það að leita sér aðstoðar vegna geðrænna áskorana ætti og mætti aldrei nota gegn fólki. Þá hvöttu samtökin alla til að láta af mismunun í garð fólks sem byggi við frávik frá hinu „síflöktandi normi“. Það væri fagnaðarefni að fólk leitaði sér aðstoðar. Landlæknisembætti sagði við sama tilefni að ákvörðun í hverju tilviki hlyti að taka tillit til ráðlegginga læknis sem þekkti til þess er málið varðaði en þess ber að geta að Ólafía fékk aldrei að hitta trúnaðarlækni MSL. Þá gat hún ekki uppfyllt kröfu MSL um að skila inn umsögn frá sérfræðilækni, þar sem hún fékk lyfinu ávísað hjá heimilislækni, líkt og fjölmargir Íslendingar. Fær loks að sanna sig „Það er svo mikil þversögn í þessu því í lögregluskólanum er talað um að lögreglumenn eigi að leita sér sálfræðiaðstoðar og að við eigum að geta talað um hlutina og talað við hvort annað og að við eigum ekki að fela neitt,“ sagði Ólafía við Mannlíf í desember 2019. Þrátt fyrir gagnrýni frá Geðhjálp og heilbrigðisstarfsmönnum og yfirlýsingar ráðherra, sem sagðist á Facebook myndu beina því til ríkislögreglustjóra að skoða umrædd viðmið, breyttist ekkert og Ólafía fékk aftur höfnun í fyrra. Hún segist vita til þess að menn hafi hætt við að sækja um námið sökum þess að þeir taka lyf og veigrað sér við að tala um andlega erfiðleika vegna fordóma. Ólafía ítrekar hins vegar að hún hafi ávallt notið mikils stuðnings á vinnustað sínum. „Ég mætti litlum sem engum skilningi fyrr en ég settist niður með Áslaugu Örnu og hennar teymi. Þá fannst mér boltinn fara að rúlla,“ segir hún. „Mig langaði á tímabili að gefast upp og hugsaði að ég fengi aldrei að mennta mig sem lögreglumaður en mér fannst ég bara ekki getað látið aðra ráða því.“ Eftir langa og stranga baráttu fái hún loksins tækifæri til að spreyta sig og freista þess að standast aðra þætti inntökuferlisins. Það sé ekki sjálfgefið að hún komist inn. „En nú fæ ég alla vegna að sýna hvað í mér býr.“ Lögreglan Skóla - og menntamál Lyf Geðheilbrigði Tengdar fréttir Sérfræðiaðstoð firrir stjórnvöld ekki ábyrgð Settur umboðsmaður Alþingis hefur beint því til mennta- og starfsþróunarseturs lögreglunnar að taka mál til meðferðar að nýju, sökum þess að trúnaðarlæknir sem skilaði umsögn um umsókn manns um starfsnám svaraði ekki erindum mannsins. 30. desember 2020 17:30 Ekki megi nota vitneskju um lyfjameðferð við kvíða gegn fólki Landssamtökin Geðhjálp sendu frá sér yfirlýsingu síðdegis vegna frétta um að lögreglukonu hafi verið synjuð námsvist við Háskólann á Akureyri vegna lyfjameðferðar við kvíða. 17. desember 2019 17:19 Segir rangt að fólk með ADHD sé útilokað frá lögreglunni Ólafur Örn Bragason, forstöðumaður mennta- og starfsþróunarseturs lögreglunnar, segir reglur um einstaklinga með ADHD innan lögreglunnar ekki hafa verið hertar. 19. ágúst 2019 20:30 Mest lesið Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Innlent Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt Innlent Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Innlent Hafa náð stjórn á sinueldi í sumarhúsabyggð Innlent Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent „Það eru krakkar þarna núna sem eru bara í lífshættu” Innlent Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Erlent Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Erlent Níu drepnir í drónaárás á rútu Erlent Ætlar að tala við Pútín um að „binda enda á blóðbaðið“ Erlent Fleiri fréttir Framtíðar kvikmyndagerðarfólk í Sunnulækjarskóla á Selfossi Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Laugdælingur og Hvergerðingur hlutskarpastir í Pangeu Fjölgun falsaðra skilríkja og úrslitakvöld Eurovision Hafa náð stjórn á sinueldi í sumarhúsabyggð Hryðjuverkamálið gæti haft verulega þýðingu Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt „Það eru krakkar þarna núna sem eru bara í lífshættu” Styður tillögur að róttækum breytingum á byggingareftirliti Róttækar breytingar á byggingareftirliti og í beinni frá Basel Blöndulón fyllist sögulega snemma og staðan góð í lónum Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Svalt þokuloft ekki langt undan Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Björgunarmiðstöð byggð á Flúðum Eftirspurn á hlutabréfamarkaði mikil og blómstrandi gróður Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Hvetja stjórnvöld í Ísrael til að breyta stefnu sinni tafarlaust Hefur áhyggjur af öryggi skólabarna í Laugardal Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Umferðarljós við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar óvirk Óheillaskref að áfengi sé selt á vellinum Mikið viðbragð Gæslunnar vegna veikinda langt úti á hafi Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Bein útsending: Sterkari saman - Þjóðarsjúkrahús í 25 ár Afstaða fær 600 þúsund í verðlaun frá Reykjavíkurborg Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Sjá meira
Á sama tíma hefur Ólafía starfað sem lögreglumaður í Reykjanesbæ, þar sem hún nýtur mikils stuðnings kollega sinna. Samkvæmt póstinum verður inntökuferlinu einnig breytt á þann veg að umsækjendur munu þreyta þrekpróf og fara í gegnum annan undirbúning áður en þeir gangast undir læknisskoðun og sálfræðimat, ef þess er þörf. Hingað til hefur ákvörðun trúnaðarlæknis um vanhæfi, meðal annars sökum lyfjanotkunar, komið í veg fyrir að umsækjendur fá að spreyta sig í öðrum þáttum inntökuferlisins. „Ég er mjög ánægð með þetta,“ segir Ólafía en henni barst tölvupósturinn frá ráðherra 30. desember sl. í kjölfar fundar í september. Ólafía hefur áður greint frá reynslu sinni á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum en hún segist hafa mætt miklum fordómum vegna lyfjanotkunar sinnar, ekki síst af hálfu trúnaðarlæknis MSL. Var ráðlagt að hætta á lyfinu Forsagan er sú að Ólafía sótti fyrst um að komast í lögreglunámið fyrir haustönnina 2019 en fékk höfnun sökum þess að hún tekur Sertral, sem inniheldur virka efnið sertralín. Árið 2018 var sertralín í nítjánda sæti yfir 30 mest ávísuðu lyfin á Íslandi en það árið fengu 4,1 prósent þjóðarinnar ávísað lyfjum sem innihéldu efnið. Ári seinna var efnið komið í sextánda sæti og 4,3 prósent þjóðarinnar fengu því ávísað. Ólafía sagði frá því í Mannlífi að trúnaðarlæknir MSL hefði ráðlagt henni að hætta á lyfinu; þá gæti hún fengið inngöngu í námið ári seinna. Samkvæmt leiðbeiningum frá MSL árið 2019 sagði að einstaklingar sem þörfnuðust meðferðar með lyfjum sem hefðu sefjandi áhrif á miðtaugakerfið uppfylltu ekki skilyrði um heilbrigðiskröfur fyrir starfsnám. Árið 2020, eftir að Ólafía greindi frá reynslu sinni, var eftirfarandi texta bætt við: „Krafist er að umsækjendur sem hafa þurft meðferð með kvíðastillandi lyfjum, þunglyndislyfjum eða ADHD lyfjum hafi verið án slíkra lyfja í 12 mánuði áður en umsókn er metin.“ Hitti aldrei lækninn sem réði því að hún komst ekki inn Þegar Ólafía greindi frá synjuninni á Facebook árið 2019 sendu samtökin Geðhjálp frá sér yfirlýsingu þar sem þau áréttuðu að það að leita sér aðstoðar vegna geðrænna áskorana ætti og mætti aldrei nota gegn fólki. Þá hvöttu samtökin alla til að láta af mismunun í garð fólks sem byggi við frávik frá hinu „síflöktandi normi“. Það væri fagnaðarefni að fólk leitaði sér aðstoðar. Landlæknisembætti sagði við sama tilefni að ákvörðun í hverju tilviki hlyti að taka tillit til ráðlegginga læknis sem þekkti til þess er málið varðaði en þess ber að geta að Ólafía fékk aldrei að hitta trúnaðarlækni MSL. Þá gat hún ekki uppfyllt kröfu MSL um að skila inn umsögn frá sérfræðilækni, þar sem hún fékk lyfinu ávísað hjá heimilislækni, líkt og fjölmargir Íslendingar. Fær loks að sanna sig „Það er svo mikil þversögn í þessu því í lögregluskólanum er talað um að lögreglumenn eigi að leita sér sálfræðiaðstoðar og að við eigum að geta talað um hlutina og talað við hvort annað og að við eigum ekki að fela neitt,“ sagði Ólafía við Mannlíf í desember 2019. Þrátt fyrir gagnrýni frá Geðhjálp og heilbrigðisstarfsmönnum og yfirlýsingar ráðherra, sem sagðist á Facebook myndu beina því til ríkislögreglustjóra að skoða umrædd viðmið, breyttist ekkert og Ólafía fékk aftur höfnun í fyrra. Hún segist vita til þess að menn hafi hætt við að sækja um námið sökum þess að þeir taka lyf og veigrað sér við að tala um andlega erfiðleika vegna fordóma. Ólafía ítrekar hins vegar að hún hafi ávallt notið mikils stuðnings á vinnustað sínum. „Ég mætti litlum sem engum skilningi fyrr en ég settist niður með Áslaugu Örnu og hennar teymi. Þá fannst mér boltinn fara að rúlla,“ segir hún. „Mig langaði á tímabili að gefast upp og hugsaði að ég fengi aldrei að mennta mig sem lögreglumaður en mér fannst ég bara ekki getað látið aðra ráða því.“ Eftir langa og stranga baráttu fái hún loksins tækifæri til að spreyta sig og freista þess að standast aðra þætti inntökuferlisins. Það sé ekki sjálfgefið að hún komist inn. „En nú fæ ég alla vegna að sýna hvað í mér býr.“
Hitti aldrei lækninn sem réði því að hún komst ekki inn Þegar Ólafía greindi frá synjuninni á Facebook árið 2019 sendu samtökin Geðhjálp frá sér yfirlýsingu þar sem þau áréttuðu að það að leita sér aðstoðar vegna geðrænna áskorana ætti og mætti aldrei nota gegn fólki. Þá hvöttu samtökin alla til að láta af mismunun í garð fólks sem byggi við frávik frá hinu „síflöktandi normi“. Það væri fagnaðarefni að fólk leitaði sér aðstoðar. Landlæknisembætti sagði við sama tilefni að ákvörðun í hverju tilviki hlyti að taka tillit til ráðlegginga læknis sem þekkti til þess er málið varðaði en þess ber að geta að Ólafía fékk aldrei að hitta trúnaðarlækni MSL. Þá gat hún ekki uppfyllt kröfu MSL um að skila inn umsögn frá sérfræðilækni, þar sem hún fékk lyfinu ávísað hjá heimilislækni, líkt og fjölmargir Íslendingar.
Lögreglan Skóla - og menntamál Lyf Geðheilbrigði Tengdar fréttir Sérfræðiaðstoð firrir stjórnvöld ekki ábyrgð Settur umboðsmaður Alþingis hefur beint því til mennta- og starfsþróunarseturs lögreglunnar að taka mál til meðferðar að nýju, sökum þess að trúnaðarlæknir sem skilaði umsögn um umsókn manns um starfsnám svaraði ekki erindum mannsins. 30. desember 2020 17:30 Ekki megi nota vitneskju um lyfjameðferð við kvíða gegn fólki Landssamtökin Geðhjálp sendu frá sér yfirlýsingu síðdegis vegna frétta um að lögreglukonu hafi verið synjuð námsvist við Háskólann á Akureyri vegna lyfjameðferðar við kvíða. 17. desember 2019 17:19 Segir rangt að fólk með ADHD sé útilokað frá lögreglunni Ólafur Örn Bragason, forstöðumaður mennta- og starfsþróunarseturs lögreglunnar, segir reglur um einstaklinga með ADHD innan lögreglunnar ekki hafa verið hertar. 19. ágúst 2019 20:30 Mest lesið Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Innlent Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt Innlent Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Innlent Hafa náð stjórn á sinueldi í sumarhúsabyggð Innlent Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent „Það eru krakkar þarna núna sem eru bara í lífshættu” Innlent Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Erlent Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Erlent Níu drepnir í drónaárás á rútu Erlent Ætlar að tala við Pútín um að „binda enda á blóðbaðið“ Erlent Fleiri fréttir Framtíðar kvikmyndagerðarfólk í Sunnulækjarskóla á Selfossi Fölsuð ökuskírteini aldrei fleiri og aldrei verið eins fullkomin Laugdælingur og Hvergerðingur hlutskarpastir í Pangeu Fjölgun falsaðra skilríkja og úrslitakvöld Eurovision Hafa náð stjórn á sinueldi í sumarhúsabyggð Hryðjuverkamálið gæti haft verulega þýðingu Grunaður um að fá alls konar búnað frá fyrirtæki fyrir fíkniefnarækt „Það eru krakkar þarna núna sem eru bara í lífshættu” Styður tillögur að róttækum breytingum á byggingareftirliti Róttækar breytingar á byggingareftirliti og í beinni frá Basel Blöndulón fyllist sögulega snemma og staðan góð í lónum Hæstiréttur Brasilíu hafnar kröfu Sverris Þórs Svalt þokuloft ekki langt undan Ók fullur á nokkra kyrrstæða bíla Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu Björgunarmiðstöð byggð á Flúðum Eftirspurn á hlutabréfamarkaði mikil og blómstrandi gróður Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Hvetja stjórnvöld í Ísrael til að breyta stefnu sinni tafarlaust Hefur áhyggjur af öryggi skólabarna í Laugardal Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Umferðarljós við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar óvirk Óheillaskref að áfengi sé selt á vellinum Mikið viðbragð Gæslunnar vegna veikinda langt úti á hafi Tugmilljóna gjaldþrot meðhöndlarans Bein útsending: Sterkari saman - Þjóðarsjúkrahús í 25 ár Afstaða fær 600 þúsund í verðlaun frá Reykjavíkurborg Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Sjá meira
Sérfræðiaðstoð firrir stjórnvöld ekki ábyrgð Settur umboðsmaður Alþingis hefur beint því til mennta- og starfsþróunarseturs lögreglunnar að taka mál til meðferðar að nýju, sökum þess að trúnaðarlæknir sem skilaði umsögn um umsókn manns um starfsnám svaraði ekki erindum mannsins. 30. desember 2020 17:30
Ekki megi nota vitneskju um lyfjameðferð við kvíða gegn fólki Landssamtökin Geðhjálp sendu frá sér yfirlýsingu síðdegis vegna frétta um að lögreglukonu hafi verið synjuð námsvist við Háskólann á Akureyri vegna lyfjameðferðar við kvíða. 17. desember 2019 17:19
Segir rangt að fólk með ADHD sé útilokað frá lögreglunni Ólafur Örn Bragason, forstöðumaður mennta- og starfsþróunarseturs lögreglunnar, segir reglur um einstaklinga með ADHD innan lögreglunnar ekki hafa verið hertar. 19. ágúst 2019 20:30