Innkalla tvær tegundir af Monster Eiður Þór Árnason skrifar 9. janúar 2021 17:45 Neytendum er bent á að skila vörunum til CCEP á Íslandi. Samsett Monster Ltd og CCEP hafa innkallað orkudrykkina Monster Lewis Hamilton LH44 og Monster Vanilla Espresso. Allar aðrar tegundir Monster-drykkja, svo sem Monster Green og Ultra, verða ekki fyrir áhrifum vegna þessarar innköllunar.
Fram kemur í tilkynningu frá Coca Cola European Partners (CCEP), dreifingaraðila Monster hér á landi, að umræddir drykkir innihaldi aukaefnið E 1520 (própýlenglýkól) í magni sem er umfram leyfilegan hámarksstyrk í reglugerð Evrópusambandsins. Ákvörðun um innköllun var tekin að viðhöfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. „Staðfest hefur verið að engin matvælaöryggisáhætta felist í neyslu drykkjanna en þar sem styrkur aukefnisins er umfram lögleg mörk vinna Monster og dreifingaraðilar þess að innköllun vörunnar af markaði.“ Neytendur sem keypt hafa ofangreindar vörur er bent á að skila þeim til CCEP á Íslandi að Stuðlahálsi 1 í Reykjavík gegn endurgreiðslu eða skiptum á samskonar vöru. Monster Lewis Hamilton LH 44 var dreift til eftirfarandi verslana: Aðföng (Hagkaup), Fjarðarkaup, Heimkaup, Iceland, Kjörbúðin, Krambúðin, Melabúðin, Miðstöðin, N1, Nettó, Tíu-ellefu, Kassinn Monster Vanilla Espresso var dreift til eftirfarandi verslana: Aðföng (Hagkaup), Fjarðarkaup, Iceland, Kjörbúðin, Krambúðin, Nettó, Póló, Tíu-ellefu, Vegamót Bíldudal, Video-markaðurinn.
Neytendur Innköllun Orkudrykkir Mest lesið Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Taka skemmtiferðaskip í Vör Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Viðskipti erlent Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Viðskipti innlent Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingin auki hvorki traust né öryggi á leigubílamarkaði Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Ein og hálf milljón í sekt vegna villandi auglýsinga Bílstólarnir gagnlausir ef þeir eru vitlaust festir Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Fjölga verslunum í Danaveldinu Innkalla ungbarnakex vegna aðskotahluta Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Sjá meira