James brást á ögurstundu og Lakers töpuðu þriðja leiknum í röð Sindri Sverrisson skrifar 23. febrúar 2021 07:31 Gestirnir frá Washington reyna að verjast LeBron James sem skoraði 31 stig í nótt en það dugði ekki til. Getty/Katelyn Mulcahy Meistarar LA Lakers töpuðu þriðja leiknum í röð í nótt þegar þeir urðu að sætta sig við tap í framlengdum leik gegn Washington Wizards, 127-124, á heimavelli sínum í Los Angeles. Lakers hafa nú tapað fjórum af síðustu fimm leikjum sínum og ljóst að liðið saknar þeirra Anthony Davis og Dennis Schröder. Davis verður frá keppni í þrjár vikur til viðbótar en Schröder ætti bara að missa af einum leik í viðbót. LeBron James skoraði 31 stig, átti 13 stoðsendingar og tók níu fráköst fyrir Lakers en hann klikkaði hins vegar á ögurstundu, af vítalínunni í lok venjulegs leiktíma. Bradley Beal var í stuði í framlengingunni og skoraði sex stig í þremur sóknum undir lokin. Hann gerði alls 33 stig fyrir Washington og Russell Westbrook 32 en hann var líkt og Beal einnig með sex stig í framlengingunni. Utah styrkti stöðu sína á toppnum með þristaregni varamanna Washington hefur nú unnið fimm leiki í röð, í fyrsta sinn í þrjú ár, og hefur fikrað sig upp af botninum í 13. sæti austurdeildarinnar. Lakers eru jafnir grönnum sínum í LA Clippers í 2.-3. sæti vesturdeildar, með 22 sigra og 10 töp. Utah Jazz styrktu þar með stöðu sína á toppi vesturdeildar en liðið hefur unnið 25 leiki og tapað aðeins sex. Í nótt voru Charlotte Hornets fórnarlömbin í 132-110 sigri. Leikmenn Utah skoruðu úr 28 þriggja stiga körfum í leiknum, þar af 19 frá varamönnum liðsins en það er met í deildinni. Úrslitin í nótt: Houston 100-120 Chicago Dallas 102-92 Memphis Oklahoma 94-108 Miami Phoenix 132-100 Portland Utah 132-110 Charlotte LA Lakers 124-127 Washington NBA Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira
Lakers hafa nú tapað fjórum af síðustu fimm leikjum sínum og ljóst að liðið saknar þeirra Anthony Davis og Dennis Schröder. Davis verður frá keppni í þrjár vikur til viðbótar en Schröder ætti bara að missa af einum leik í viðbót. LeBron James skoraði 31 stig, átti 13 stoðsendingar og tók níu fráköst fyrir Lakers en hann klikkaði hins vegar á ögurstundu, af vítalínunni í lok venjulegs leiktíma. Bradley Beal var í stuði í framlengingunni og skoraði sex stig í þremur sóknum undir lokin. Hann gerði alls 33 stig fyrir Washington og Russell Westbrook 32 en hann var líkt og Beal einnig með sex stig í framlengingunni. Utah styrkti stöðu sína á toppnum með þristaregni varamanna Washington hefur nú unnið fimm leiki í röð, í fyrsta sinn í þrjú ár, og hefur fikrað sig upp af botninum í 13. sæti austurdeildarinnar. Lakers eru jafnir grönnum sínum í LA Clippers í 2.-3. sæti vesturdeildar, með 22 sigra og 10 töp. Utah Jazz styrktu þar með stöðu sína á toppi vesturdeildar en liðið hefur unnið 25 leiki og tapað aðeins sex. Í nótt voru Charlotte Hornets fórnarlömbin í 132-110 sigri. Leikmenn Utah skoruðu úr 28 þriggja stiga körfum í leiknum, þar af 19 frá varamönnum liðsins en það er met í deildinni. Úrslitin í nótt: Houston 100-120 Chicago Dallas 102-92 Memphis Oklahoma 94-108 Miami Phoenix 132-100 Portland Utah 132-110 Charlotte LA Lakers 124-127 Washington
Houston 100-120 Chicago Dallas 102-92 Memphis Oklahoma 94-108 Miami Phoenix 132-100 Portland Utah 132-110 Charlotte LA Lakers 124-127 Washington
NBA Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira