Vill eitt af efstu sætum Samfylkingar í Norðvesturkjördæmi Atli Ísleifsson skrifar 24. mars 2021 14:48 Gunnar Rúnar vill eitt af efstu sætunum á framboðslista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi. Gunnar Rúnar Kristjánsson, bóndi og starfsmaður Rarik á Blönduósi, gefur kost á sér í 1. til 4. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi.
Frá þessu greinir Gunnar Rúnar í tilkynningu sem send er á fjölmiðla. Þar segir að hann sé fæddur og uppalin í Laugarnesi í Reykjavík en þó lengst af búið utan höfuðborgarsvæðisins meðal annars í Danmörku, Hvanneyri og Selfossi. „Frá 1997 hef ég búið á Akri í Húnavatnshreppi. Ég er giftur Jóhönnu Erlu Pálmadóttur og eigum við tvö uppkomin börn. Ég er menntaður í búvísindum frá landbúnaðarháskólanum í Danmörku. Auk þess hef ég verið í mastersnámi í opinberri stjórnsýslu í HÍ og á ritgerðina eftir. Við höfum rekið lítið sauðfjárbú á Akri en auk þess starfa ég hjá Rarik á Blönduósi. Frá því að ég byrjaði að fylgjast með stjórnmálum hefur jafnaðarstefnan verið sú stefna sem hefur höfðað mest til mín. Ég gekk í samfylkinguna 2012. Ég er 63 ára gamall og þykir sjálfsagt mörgum skrítið að ég skuli vera að þessu framboðsbrölti orðin þetta gamall en því er til að svara að áhugi minn á meiri þátttöku í stjórnmálum en starfi í grasrótinni eingöngu hefur bara aukist. Gunnar Rúnar Kristjánsson.Aðsend Norðurvesturlandskjördæmi er víðfemasta kjördæmið í landinu og jafnframt það fámennasta. Við skorum líka hæst þegar kemur að því að telja kílómetra án bundins slitlags. Þrátt fyrir þetta er atvinnulífið í kjördæminu nokkuð fjölbreytt hvort heldur sem litið er til opinberra starfa eða starfa á almennum markaði. Sjávarútvegur er og hefur verið mjög mikilvæg atvinnugrein í kjördæminu og landbúnaður er önnur atvinnugrein sem er einkennandi fyrir kjördæmið. Háskólar og háskólasetur eru í öllum kimum og sama má segja um framhaldsskóla. Þá á stóriðnaðurinn sér fulltrúa á Grundartanga. Sjávarútvegurinn má muna sinn fífil fegri og því má auðveldlega breyta með því að leggja uppboðsleiðina til grundvallar úthlutun aflamarks. Hún tryggir ekki bara sanngjarnt verð til þjóðarinnar vegna nýtingar á sameiginlegri auðlind heldur opnast tækifæri fyrir nýja aðila að komast inn í atvinnugreinina. Aukin nýsköpun innan sjávarútvegsins hefur líka leitt til þess að allur hluti fisksins er nýttur. Þetta vil ég efla. Greinar innan landbúnaðrins hafa gengið misvel. Þar hefur sauðfjárræktin algjöra sérstöðu en sú grein hefur verið á fallanda fæti frá því um miðjan 9. áratuginn. Möguleikar í framleiðslu landbúnaðarvara felast í framleiðslu sem í einu og öllu samræmist heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Ég fullyrði að framleiðsla landbúnaðarvara á okkar norðlensku slóðum getur aldrei orðið án stuðnings en núverandi stuðningsfyrirkomulag, sem er nær eingöngu framleiðslutengt, virkar ekki og er sauðfjárræktin gott vitni um það. Samtvinna þarf alla framleiðslu við stefnu Íslands um minnkun á losun kvoltvísýrings (CO2) út í andrúmsloftið. Háskólarnir þrír og háskólasetrin eru í íbúum kjördæmisins mikilvæg og starfsemi þeirra ætti að efla frekar en hitt. Sorpeyðing er í hugum margra stórt vandamál en mér finnst eðlilegra að horfa á það sem áskorun. Stórauka þarf flokkun úrgangs og nota allt sem nýtanlegt er. Jafnaðarstefnan sem grundvallast í Frelsi – Jafnrétti – Samstaða á sér langa sögu en á jafnmikið erindi við landsmenn í dag eins og áður. Við upplifum að fátækt er að aukast og lífeyrisþegar og öryrkjar bera minna og minna úr býtum. Kreppur eins og við búum við í augnablikinu magna upp erfiðleika þessarra hópa. Þá er auðurinn að safnast á mun færri hendur. Þetta er auðvelt að laga en viljinn þarf að vera fyrir hendi. Mig skortir ekki viljan til að breyta þessu fái ég afl til,“ segir í tilkynningunni frá Gunnari Rúnari.
Samfylkingin Alþingiskosningar 2021 Norðvesturkjördæmi Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira