Ríkasti maður Tékklands fórst í þyrluslysi Atli Ísleifsson skrifar 29. mars 2021 07:15 Auðævi Kellners voru metin á 17,5 milljarða Bandaríkjadala samkvæmt tímaritinu Forbes. PPF Milljarðamæringurinn Petr Kellner, ríkasti maður Tékklands, var í hópi fimm manna sem fórust í þyrluslysi við Knik-jöklulinn í Alaska á laugardaginn. Kellner, sem var stofnandi og meirihlutaeigandi í PPF Group, varð 56 ára gamall.
Reuters segir að greint hafi verið frá andlátinu í tilkynningu frá PPF Group sem hefur meðal annars unnið að fjárfestingum í fjármálageiranum, fjarskiptum, líftækni, fasteignum og fleiru í Evrópu, Asíu og Bandaríkjunum. Voru auðævi Kellners metin á 17,5 milljarða Bandaríkjadala samkvæmt tímaritinu Forbes. Rannsókn er hafin á orsökum slyssins, en Kellner ku hafa verið í Alaska í skíðaferðalagi. Einn komst lífs af úr slysinu og dvelur hann nú á sjúkrahúsi í Anchorage. Tveir Tékkar og þrír Bandaríkjamenn fórust í slysinu, þar með taldir tveir leiðsögumenn frá Tordrillo fjallakofanum. AP segir Kellner hafa verið tíður gestur í Tordrillo fjallakofanum, sem er að finna nokkru austur af Anchorage.
Tékkland Bandaríkin Andlát Mest lesið Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Viðskipti innlent Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Viðskipti innlent Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Samstarf Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira