Sleit krossband nýbúin að skrifa undir fyrsta atvinnumannasamninginn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. mars 2021 09:30 Ásdís Þóra Ágústsdóttir í leik með Val á móti KA/Þór í Olís deild kvenna í vetur. Vísir/Hulda Margrét Handknattleikskonan Ásdís Þóra Ágústsdóttir varð fyrir áfalli á dögunum aðeins nokkrum dögum eftir að hafa tekið sitt stærsta skrefa á ferlinum til þessa.
Leikstjórnandi Valsliðsins verður ekkert meira með Hlíðarendaliðinu á leiktíðinni eftir að hafa slitið krossband í leik með 3. flokki félagsins. Handbolti.is segir frá þessu og að Ásdís Þóra hafi nú fengið staðfestingu á alvarleika meiðslanna sem þýðir að tímabilið er búið hjá henni. Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari Vals og faðir Ásdísar Þóru, staðfesti fregnirnar við handbolta.is og hann sagði að það skýrðist á allra næstu dögum hvenær Ásdís Þóra kemst í aðgerð en vonir standa til að það verði sem fyrst eftir páska. Leiðinleg tíðindi af einni efnilegustu handknattleikskonu landsins. Handbolti.is óskar Ásdísi Þóru skjóts og góðs bata.Posted by Handbolti.is on Sunnudagur, 28. mars 2021 Ásdís Þóra skrifaði á dögunum undir samning við sænska félagið Lugi. „Hún er óslípaður demantur sem mun passa fullkomlega inn í okkar unga og efnilega lið,“ er haft eftir Kenneth Andersson, þjálfari Lugi á vef félagsins. Svíarnir vilja enn fá hana til sín þrátt fyrir meiðslin. „Forráðamenn Lugi styðja hana hundrað prósent enda horfa þeir til hennar sem framtíðarleikmanns hjá félaginu,“ sagði Ágúst Þór við handbolta.is. Þetta hefur verið allt annað en auðvelt tímabil fyrir Ágúst Þór og Valsliðið en liðið hefur misst út marga leikmenn, bæði í meiðsli og barnsburðarleyfi. Ásdís Þóra, sem er fædd í mars árið 2002, er með 2,0 mörk og 0,8 stoðsendingar í leik með Valsliðinu í Olís deildinni á þessu tímabili en var með 2,9 mörk og 1,4 stoðsendingar að meðaltali í fyrra.
Olís-deild kvenna Valur Mest lesið Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Fleiri fréttir Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Sjá meira