Um bólusetningu flugáhafna Baldur Vilhjálmsson skrifar 14. apríl 2021 12:01 Víða um heim leggja yfirvöld áherslu á að bólusetja flugáhafnir sínar til að liðka fyrir bæði nauðsynlegum vöruflutningum og endurreisn ferðaþjónustunnar. Þegar bólusetningarferli flugáhafna víðsvegar um heiminn eru skoðuð bendir flest til þess að íslenskar áhafnir séu mjög aftarlega i ferlinu. Tilmæli alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) eru að flugfólk sé í 3. forgangshópi (e. 3. phase) þegar kemur að bólusetningum og hefur Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA) tekið undir það frá upphafi faraldurs. Þann 25.mars ítrekaði EASA svo tilmæli sín um að áhafnir yrðu bólusettar eins fljótt og hægt er í samræmi við afhendingarferli bóluefnis. Á Íslandi eru flugáhafnir hins vegar í 10. forgangshópi – það er að segja í alls engum forgangi. Í sjálfu sér er það ekkert vandamál að við flugfólk séum ekki sett framar í forgangshóp bólusetninga að því gefnu að við séum bara heima, dveljumst innanlands eins og flestir aðrir landsmenn. Sú er þó ekki raunin og við erum á ferð og flugi. Að sama skapi gæti tregðan við bólusetningu íslenskra áhafna haft verulega neikvæð áhrif á komandi ferðamannatíð. Erlend yfirvöld setja flugsamgöngur í forgang Erlendis hafa stór flugfélög á borð við Emirates, Qatar Airways, Etihad og flugfélög undir SIA samsteypunni í Singapore bólusett flest allt sitt flugfólk og hafið markaðsókn með þá staðreynd í fararbroddi. Þetta gera flugfélögin í náinni samvinnu við sín stjórnvöld og eru þessar aðgerðir þeirra bara dæmi um það sem er að gerast í flugheiminum. Auðvitað munu farþegar í náinni framtíð skoða þessi atriði eins og önnur þegar velja á flugfélag til að ferðast með. Þessi flugfélög eru, og hafa verið, bæði beint og óbeint í samkeppni við Icelandair um farþega yfir Atlantshafið. Önnur stór félög, evrópsk og bandarísk, munu keppast við að gera slíkt hið sama til þess að laða til sín farþega. Í Bandaríkjunum er forgangsröðun flugáhafna misjöfn eftir ríkjum en samkvæmt fyrirliggjandi lista eru flugfreyjur og -þjónar yfirleitt í hóp 1a, 1b eða 1c. Örfá ríki innan USA setja flugfólk í annan hóp og enn færri í þann þriðja. Þá hafa bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) sett aukinn þrýsting á yfirvöld um að flýta bólusetningum flugmanna, og virðast þær, eftir forsetaskiptin hafa tekið talsvert stökk. Minna má á að bandarískt flugfélag hefur lagt fram all þétta flugáætlun til Íslands í sumar. Bresk flugfélög hugsa sér örugglega líka gott til glóðarinnar í Geldingadölum um leið og tækifæri gefst. Við megum ekki láta það gerast að íslensk flugfélög verði ekki samkeppnishæf, þegar síst skyldi í þessum málum. Hætta á smiti áhafna erlendis Icelandair og ýmsir aðrir aðilar hafa ítrekað óskað þess að áhafnir fari framar í forgangsröðun fyrir bólusetningar, en án árangurs. Því miður hefur túlkun fjölmiðla helst verið sú að óskin sé dæmi um n.k. forréttindafrekju flugfólks og flugfélags þrátt fyrir að hagur heildarinnar, ferðaþjónustunnar og flugfélagsins liggi augljóslega undir.Þess má geta til samanburðar að starfsfólk Leifsstöðvar, sem er í sýnilegri nánd við ferðafólk, var sett í forgangshóp 4 sem er vel. Það eru t.d. tollafgreiðslufólk, landamærastarfsmenn og ræstitæknar sem fara ekki úr landi en sjá ferðamenn í seilingarfjarlægð, oft jafnvel í gegnum gler. Sá hópur hefur að mestu verið bólusettur. Til að liðka um fyrir flugþjónustu var sniðin sér undantekningarregla fyrir flugfólk sem er þannig að sé farið í vinnuna erlendis og heim aftur, þurfi ekki neinar ráðstafanir eftir heimkomu, sé fjarvera frá Íslandi innan við 72 klst. Svo merkilegt sem það er, þá er þetta túlkað sem vinnusóttkví. Sé fjarvera lengri þarf áhafnarmeðlimur að fara í hefðbundið sóttkvíarferli eins og aðrir. Út af fyrir sig er þetta gott framlag til ferðaþjónustunnar sem ber að þakka, það væri mjög kostnaðarsamt og snúið fyrir flugfélagið ef áhafnir enduðu alltaf í sóttkví eftir hverja vinnuferð. Frá upphafi faraldurs hefur Icelandair lagt ríka áherslu á faglega fræðslu til starfsfólks, að gætt sé að sóttvörnum og að farið sé að ýtrustu reglum til að forðast smit. Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að hætta á smiti er talsverð erlendis þrátt fyrir að farið sé eftir ýtrustu reglum til að forðast smit. Innviðir erlendra hótela, áhafnarútur, flugvellir, veitingastaðir sem senda á hótel o.s.fr.v , og starfsfólk allra þessara staða geta verið smitberar. Snertifletir eru margir og tilskylda nánd milli fólks er vonlaust að tryggja. Erlend flugfélög með framsýn yfirvöld fá verulegt forskot Samkvæmt upplýsingavef yfirvalda er spáð að hópur 10, sem inniheldur í raun alla sem ekki eru í forgangshópum, verði bólusettur frá ca. 7. júni til loka júlí. Spár hafa ekki staðist vel hingað til og áætlanir enn síður. Virkni síðustu bólusetninga íslenskra flugáhafna mun því líklega ekki verða að fullu náð fyrr en í fyrsta lagi seint í haust eða næsta vetur. Ekki er ólíklegt að sú staða komi upp að þegar erlend yfirvöld áætla að meirihluti flugfólks flugfélaga í hverju landi fyrir sig séu bólusettur, verði starfandi áhafnarmeðlimum erlendra ríkja, sem ekki hafa verið bólusettir að fullu, meinað að koma til viðkomandi landa. Sú staða gæti því skyndilega leitt til þess að Icelandair yrði sem múlbundið við staur vegna áhafnaskorts, uppistaða Icelandair áhafna væri enn óbólusett og það flug sem þó er flogið héðan til London, Boston og annarra áfangastaða Icelandair myndi raskast verulega tímabundið. Á meðan myndu erlend flugfélög með framsýn yfirvöld sér til aðstoðar fljúga héðan og þaðan, þ.m.t á okkar helstu mörkuðum milli Evrópu og USA. Það væri líka vart á vandræðin bætandi hér hjá okkar litla flugfélagi, með spriklandi ferðamannagos í bakgarðinum, að erlend flugfélög hirtu í þokkabót rjómann af upphafi nýrrar ferðamannatíðar á íslandi vegna skammsýni í bólusetningum á íslensku flugfólki. Spilað lottó með flugáhafnir og landamærasmit Hurð hefur skollið nærri hælum, því a.m.k þrisvar á undanförnum mánuðum hefur mér verið tilkynnt að smit hafi fundist hjá farþegum í flugi hjá mér. Þó hef ég aðeins flogið brot af farþegaflugi Icelandair undanfarna 10-12 mánuði, þannig að tilfellin eru vafalaust fleiri. Að mati sóttvarnarlæknis hefur sóttkví fyrir áhöfn í mínum tilfellum ekki talist nauðsynleg, en jafnframt hefur verið mælst til þess að hegðun okkar eftir flugið væri sem næst í líkingu við sóttkví og að við fylgdumst vel með heilsunni. Hvað þýða þessi tilmæli? Þau þýða bara í mínum huga að verið er að spila lottó með flugáhafnir og landamærasmit sem flugfólk gæti auðveldlega borið til landsins. Það væri svo miklu einfaldara að bólusetja áhafnir, losna við að mestu leyti líkur á að áhafnir beri smit inn í landið, gera Icelandair samkeppnishæfara, og losnað við að lenda í því sjónarspili sem ég reifaði hér ofar um hugsanleg bönn vinnuferða hjá óbólusettum áhafnarmeðlimum. Það gæti allt eins ræst eins og margt annað skrýtið tengt Covid, sem hefur ræst undanfarna mánuði. Eftir stendur svo líka spurningin af hverju ekki er farið að tilmælum WHO og EASA hérlendis við bólusetningu flugfólks gegn Covid. Höfundur er flugstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Fréttir af flugi Mest lesið Excel-heilafúinn í Ráðhúsinu: Þegar tónlistarnám varð munaðarvara Jónas Sen Skoðun Hverjir unnu þorskastríðin? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Myasthenia Gravis – Sjaldgæfur sjúkdómur sem þarf meiri sýnileika Júliana Magnúsdóttir,Marianne Elisabeth Klinke Skoðun Fjallkonan Steinar Harðarson Skoðun Húshjálp í skuldaborg - nýjasta froðan í Ráðhúsinu? Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað eiga Obamacare og Borgarlínan sameiginlegt? Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun PISA: Eru forsendurnar þær sömu í öllum löndum? Björn Þórisson Skoðun ESB-umræðan: Þegar úrelt vinstrisýn þjónar sömu niðurstöðu og sérhagsmunir hægrisins Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Minna kerfi og meiri hverfi Róbert Ragnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Fáum samninginn á borðið Greta Lind Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hver á að halda utan um hægri vænginn? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Króna eða evra? Umræða sem á skilið meira en slagorð Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Her- og gervimenn Viðreisnar Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Húshjálp í skuldaborg - nýjasta froðan í Ráðhúsinu? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun ESB-umræðan: Þegar úrelt vinstrisýn þjónar sömu niðurstöðu og sérhagsmunir hægrisins Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hvað eiga Obamacare og Borgarlínan sameiginlegt? Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Minna kerfi og meiri hverfi Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Fjallkonan Steinar Harðarson skrifar Skoðun Ísland séð úr leikskóla Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Sjálfbær landbúnaður er öryggismál Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Félagsleg heilsa ræsisrottnanna Unnur Hrefna Jóhannsdóttir skrifar Skoðun PISA: Eru forsendurnar þær sömu í öllum löndum? Björn Þórisson skrifar Skoðun Myasthenia Gravis – Sjaldgæfur sjúkdómur sem þarf meiri sýnileika Júliana Magnúsdóttir,Marianne Elisabeth Klinke skrifar Skoðun Myasthenia Gravis – Sjaldgæfur sjúkdómur sem þarf meiri sýnileika Júliana Magnúsdóttir,Marianne Elisabeth Klinke skrifar Skoðun Eftirlit Alþingismanna með ráðuneytunum Pétur Halldórsson skrifar Skoðun Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Kári beislaður við Vaðöldu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Það vantar ekki enn eitt átakið – það vantar aðgerðir Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Að leita langt yfir skammt Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Framkvæmd skólastefnu fær falleinkunn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Slönguspilið og svikamyllan Teitur Atlason skrifar Skoðun Þetta er algjört möst í fríið Hildur Vattnes Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Ég vel hattana sjálf Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Við erum að selja loftslagsmálin vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Hin meinta lýðræðisveisla Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Excel-heilafúinn í Ráðhúsinu: Þegar tónlistarnám varð munaðarvara Jónas Sen skrifar Skoðun Andleg heilsa ungs fólks Héðinn Unnsteinsson skrifar Skoðun Sá maður sem ég sá á skjánum var ekki ég Gísli Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Myasthenia Gravis – Sjaldgæfur sjúkdómur sem þarf meiri sýnileika Júliana Magnúsdóttir,Marianne Elisabeth Klinke Skoðun
Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
ESB-umræðan: Þegar úrelt vinstrisýn þjónar sömu niðurstöðu og sérhagsmunir hægrisins Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun
Skoðun ESB-umræðan: Þegar úrelt vinstrisýn þjónar sömu niðurstöðu og sérhagsmunir hægrisins Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Myasthenia Gravis – Sjaldgæfur sjúkdómur sem þarf meiri sýnileika Júliana Magnúsdóttir,Marianne Elisabeth Klinke skrifar
Skoðun Myasthenia Gravis – Sjaldgæfur sjúkdómur sem þarf meiri sýnileika Júliana Magnúsdóttir,Marianne Elisabeth Klinke skrifar
Skoðun Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson skrifar
Myasthenia Gravis – Sjaldgæfur sjúkdómur sem þarf meiri sýnileika Júliana Magnúsdóttir,Marianne Elisabeth Klinke Skoðun
Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
ESB-umræðan: Þegar úrelt vinstrisýn þjónar sömu niðurstöðu og sérhagsmunir hægrisins Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun